Réttur - 01.03.1941, Qupperneq 26
um þaó að æsa þjóðina upp í stríðstryllingu. Það er
til dæmis talið, að ítalir geti ekki framleitt nema svo
sem 350 flugvélar á mánuði, og er þaö ekki einu sinni
tíundi hluti af framleiðslugetu Sovétríkjanna eöa
Þýzkalands á þessu sviði.
ítali skortir algerlega mörg hráefni, sem nauðsyn-
leg eru til hernaðar, svo sem togleður, króm og fósfat.
Framleiðsla landsins fullnægir aðeins tæplega 1% af
olíuþörf þeirra, fúmlega 3% af kolaþörfinni, álíka
miklu af eirþörfinni o. s. frv. Af jámi og stáli fram-
leiða þeir liðlega þriðjung þess, er landið þarfnast. ít-
alir eru því líkt stæðir og Japanir að því leyti, að þeir
verða að flytja inn langflest af því, sem til hemaðar
þarf, og þó að fjárhagur landsins væri ekki jafnbág-
borinn og verið hefur, einkum eftir styrjaldirnar í Ab-
essiníu og á Spáni, væri styrjaldarrekstur á þeim
grundvelli nógu erfiður. Þaö er óhætt að fullyrða, að
ítalir hafi ekki fyrir styrjöldina getað safnað sér hrá-
efnabirgðum, sem nokkm nemi, en síðan Mussolini
sagði bandamönnum stríð á hendur síðastliðið sum-
ar, hafa þeim verið lokaöar leiðirnar til hráefnaland-
anna, bæði um Súezskurð og Njörvasund. Eftir þess-
um leiðum fengu þeir árið 1938 fimm sjöttu hluta af
öllum innflutningi sínum, og af þeim innflutningi
voru þrír fjórðu hlutar hráefni, sem þeir þarfnast, þar
á meðal öll sú olía, er herskipaflotann og flugliðið
vantar. En nú er vitanlegt, aö Þjóðverjar eru ekki af-
lögufærir í þessu efni, sízt að því er olíuna snertir.
Þetta gæti skýrt það, hve ítalski flugflotinn hefur
verið athafnalítill að undanförnu, að því er virðist, og
þá ekki síður ítölsku herskipin, sem mörg ganga fyr-
ir olíu.
Þjóöverjar geta ekki séð ítölum farborða 1 langri
styrjöld, enda má telja víst, að Mussolini hefði ekki
steypt sér út i þessa styrjöld, ef hann hefði ekki treyst
því, að henni væri lokiö með hruni Frakklands. En
26