Réttur


Réttur - 01.03.1941, Síða 34

Réttur - 01.03.1941, Síða 34
ið, hæga, mjúka sogið, sem líktist andardrætti sof- andi manns, þungu undirölduna, sem vissi á brim. — Háu, öskrandi kvikurnar, sem skullu í grjótiö og herj- uðu fjöruna meö mismunandi áfergju, allt upp í stór- brimið um haustið, sem braut upp kjallarann og var nærri búið að kippa húsinu áf grunninum. Þá höfðu víst allir verið hræddir nema hún. Hún var ekki hrædd við sjóinn, og þegar hún var ein fann hún stundum til ' undarlegrar löngunar að láta öldurn- ar vagga sér í svefn og gleyma öllu — öllu. Þær höfðu einhver sefjandi áhrif á hana, og það var svo gott að geta gleymt. En í þetta sinn fengu þær hana ekki til að gleyma. Hún hafði tengt svo marga drauma um breytt og betra líf við það að mamma hennar fengi þessa stööu. Hlýja, snotra íbúð innarlega í bænum, fallegri föt, betra fæð'i, kannski skemmtanir, ef heilsan leyfði. — Nei, hún ætlaði ekki að vera heimtufrek, láta mömmu sína ráða öllu, en það að vita hana hafa eitthvað milli handa var sigurglöð tilhugsun. Vikum saman höfðu þær beðið eftir fullnaðarsvari, og nú var hún orðin nærri því vonlaus um allt saman. Hún litaðist um í fátæklegu stofunni. — Hún hafði dökk augu eins og móðir hennar, en var hvergi nærri eins lagleg. — Hvað það væri yndislegt að mega loks- ins fara burt frá þessu dökka, tjásulega veggfóðri, þessu hrufótta gólfi og kuldanum, sem var heilsu hennar ofraun. — Ó, hvað henni hafði oft liðið illa innan þessara fjögurra veggja. Átti hún að fara upp á loftið til Guörúnar gömlu og sitja hjá henni þangað til mamma hennar kæmi? Ænei, ekki var betra að bíða þar og hlusta á masið í aumingja kerlingunni. Eða yfir í íbúðina hinumeg- in? Nei, það var verst af öllu. Stelpurnar þar töluðu aldrei um annað en tízkukjóla, böll og stráka og spurðu hana spjörunum úr um allt, sem þær héldu 34

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.