Réttur - 01.03.1941, Síða 62
4
útgáfu á verkum vinar síns. Kom annað bindi af
„Das Kapital“ út 1885. En nú var ævin líka komin
að kvöldi hjá Engels. Sjóndepra sótti á hann og gerði
honum érfitt fyrir um öll ritstörf, og auk þess var
mörgu að sinna, svo sem útgáfu og þýðingu á eldri
ritum hans sjálfs og einkum þó ritum Marx. Þriðja
bindinu af „Das Kapital“ var ekki lokið fyrr en 1894,
eða rétt áður en Engels dó, og áframhaldið var gefið
út löngu seinna. Þó liggur eitt veigamikið rit eftir
hann frá þessum árum. Er það „Ursprung der Familie
des Privateigentums und des Staates“, rannsókn um
uppruna fjölskyldunnar, einkaeignaréttarins og rík-
isins. Er rit þetta harla merkilegt fyrir það hve
skarpar og rökvissar niðurstöður það hefur að geyma
á þeim tíma, sem rannsókn þjóðfræðinnar var jafn-
skammt á veg komin. Auk þess liggja eftir Engels
nokkur minni rit frá þessum árum, en flest ófullgerð.
Eins og áður var getið var flokkur þeirra Bebels
og Liebknechts, Sósíaldemókrataflokkur Þýzkalands,
kominn í forusturöð verkalýðshreyfingarinnar, og
litu aðrir sósíaldemókratar á hann sem fyrirmynd
sína. Engels lét sér mjög ant um flokkinn, en barð-
ist þó ótrauöur fyrir því, að flokkurinn starfaði skil-
yrðisiaust á grundvelli hins byltingasinnaða marx-
isma. Átti hann í stöð'ugum bréfaskiptum við forustu-
menn flokksins og ritaði að staðaldri i blöð hans. Að
lokum verður að minnast eins atriðis enn, sem Eng-
els átti verulegan þátt í síðustu árin og það var stofn-
un og starfsemi nýs alþjóðasambands í stað hins
fyrra er leið undir lok 1876. Engels voru mjög ljósir ^
annmarkar Fyrsta alþjóðasambandsins, sérstaklega
hve einhliða það varð að beita sér að fræðslustarf-
semi og hve lítil tök það hafði á- aö reka athafna-
mikla byltingapólitík í löndum þeim er áttu þar full-
trúa. Þegar stofnun nýs alþjóðasambands bar fyrst
á góma um 1880, var Engels mótfallinn stofnuninni
62