Réttur


Réttur - 01.03.1941, Page 65

Réttur - 01.03.1941, Page 65
að' dragast árum saman af þeim orsökum. En hann var jafn sannfærður um, að hér yrði aðeins um frest að ræða en ekki uppgjöf. Margir hafa reynt að ráða þá gátu, hvert hlutverk Engels hefði orðið ef fundum þeirra Marx hefði aldr- ei borið saman. Slíkt er að vísu fjarstæða í sjálfu sér, óræð spurning, sem aldrei fæst svarað. Fram á síöustu áratugi hefur því almennt verið haldið fram, að Marx eigi mestan heiðurinn af sameiginlegu starfi þeirra. Hann hafi veríð hugsuðurinn. Engels aftur á móti hinn praktiski athafnamaður, sem ritaði ljósar og greinagóðar ritgerðir og bækur um kenningar vin- ar síns og framar öllu öðru vann fyrir honum og gaf honum færi á að iðka rannsóknir sínar. Þetta er að vísu hárrétt, það sem það nær, en heldur ekki meira en hálfur sannleikurinn. Má vera að Engels eigi sjálfur mesta sök á þessu enda byggist þessi skoð- un að verulegu leyti á ummælum hans sjálfs, þar sem hann gefur Marx fyrst og fremst heiðurinn af rannsóknum þeirra. ,,Eg var aðeins önnur fiðla“, segir hann einhversstaðar. Sé hinsvegar litið á æsku- verk þeirra beggja, hefur Engels einn og hjálparlaust frá Marx hendi, komizt, 1 höfuðatriðum, aö sömu nið- urstöðum um byggingu þjóðfélagsins, eins og Marx komst löngu síðar, eftir víðtækar rannsóknir og hafði hann þó drög vinar síns til stuðnings og leiðbein- ingar, þó að byggð væru á ónógri rannsókn. Nán- ari kynni af æskuverkum þeirra beggja benda ein- dregið til, að hlutur Engels sé sízt minni eða ómerkari, meðan þeir voru að móta viðhorf sitt og heimsskoð- un. Frægasta bók þeirra beggja, Kommúnistatávarp- ið, er engu síöur verk Engels en Marx, enda margt þaö snjailasta í bókinni tekiö orðrétt upp úr drögum t frá Engels, þó aö Marx hafi annars gengið einn frá því, í sinni núverandi mynd. Eftir 1850 skipta þeir félag- ar með sér verkum. Það lendir í hlutskipti Marx að 65

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.