Réttur


Réttur - 01.03.1941, Síða 72

Réttur - 01.03.1941, Síða 72
úrlega og heilsusamlega líkamninga ímyndunarafls okkar sjálfra. Á sama hátt tel ég heilsusamlegt, ef hófs er gætt, að' ástvinir sefi harma sína með því að framkalla raddir og svipi til samlífs við sig fáein augnablik, þótt ég trúi lítt á möguleika þess, að svip- urinn komi „að handan”. Og þjóösögum, sem oft veita innsæi og djúpa, dýra þekkingu, vil ég unna þess sann- mælis, að varðveizla þeirra er að líkindum engu þýð- ingarminni en andatrúin fyrir sáluhjálp og fram- haldslíf á jörö og himnum. Presti óska ég til ham- ingju, hvort þessara ágætu eilífðarmála sem hann velur sér. Áður en Sigfús Sigfússon lézt, voru komin út fjög- ur bindi þjóðsagna hans: I. Sögur um æðstu völdin, II. Vitranasögur, III. Draugasögur, IV. Jarðbúasögur. Nú er komið út X. bd., Afreksmannasögur, allþykk bók, en V.—IX. bíða. Þarna birtast 20—30 sagnabálk- ar, aö mestu sannar frásagnir um menn, sem urðu minnisstæðir lífs og dauðir. Mestur er sögubálkur Hafnarbræðra, Hjörleifs og Jóns, en sérstakur þáttur er um niðja Hjörleifs. Fjölbreyttastir eru þættir þeir í miðri bók, sem Sigfús kennir við afl og auösæld, leti og slysni. Talsvert ber á erjum bænda og embættis- manna eöa Dana, stéttarstolti og réttarvitund alþýðu. Af kvenþjóðinni er bezt lýst þeim, sem höfðu karl- mannsburöi og geðríki eftir því, eins og t. d. ísfold Runólfsdóttir í Fagurdælaþætti. Um auðinn og aflið er það eftirtektarverðast í sögunum, að atgervi 1 ýmsum myndum helzt að jafnaði í ættum lið fram af lið, en auður hefur aldrei tollaö hér lengi í sömu ætt, sízt á seinni öldum. — Frásögn Sigfúss Sigfús- sonar er heldur einhæf, en gerðarleg í máli, ósvikin og karlmannleg. Rauöskinna er búin aö ná almennum vinsældum, og þetta hefti er að ýmsu leyti sízt lakara hinum fyrri. Séra Jón segir sjálfur ágætlega frá og nýtur 72

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.