Réttur


Réttur - 01.01.1972, Qupperneq 3

Réttur - 01.01.1972, Qupperneq 3
EINAR OLGEIRSSON ÞJÓÐAREINING 1 LANDHELGISMÁLINU OG ANDSTÆÐINGAR ISLANDS Það var mikil gifta að Alþingi allt skyldi að lokum standa saman sem einn maður að samþykkt landhelgismálsins: Utfærslu í 50 mílur 1. september 1972. Þessi eining er fyrst og fremst spegilmynd af jDeirri einingu, sem er með þjóðinni allri um þetta mál. Sú þjóðareining gerir það erf- itt fyrir nokkra stjórnmálamenn að standa opinberlega á móti 50 mílna fiskveiðilög- sögu. Hitt er vert að muna hvernig reynt var í lengstu lög, einmitt af núverandi stjórnar- andstöðuflokkum, að hindra framgang 12 mílna-yfirlýsingarinnar 1958, þó það tækist þá að knýja málið fram, ekki síst fyrir harð- fylgi Lúðvíks Jósepssonar, þá sem nú sjávar- útvegsmálaráðherra, sem líklega hefur ekki síður þurft á festu og lægni að halda nú en þá, — og skapa að lokum um það þá hina miklu og sigursælu þjóðareiningu, sem hófst 1. september 1958, er gamla brezka arðráns- ljónið sýndi klærnar. Slíka þjóðareiningu þarf að skapa aftur nú, þannig að upprættar verði þær veilur í bar- áttunni, sem vart varð við fram að einingar- deginum á Alþingi 15. febrúar 1972. En um leið er gott að þjóðin geri sér ljóst við hverja hún er að berjast í máli þessu. Baráttan fyrir 50 rnílna fiskveiðilögsögu er áframhald af sjálfstceðisbaráttunni, baráttu þjóðarmnar fyrir því að hún sjálf og hún ein 3

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.