Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 16
KREPPUTEIKN
OG
MARKAÐSÖRYGGI
ER KREPPA í AÐSIGI?
Það hafa oft verið nokkrir kreppuboðar á
ferð í auðvaldsheiminum eftir síðustu heims-
styrjöld, en aldrei orðið úr þeim djúptæk
kreppa á við heimskreppuna 1930 eða krepp-
urnar þar á undan, sem komu nokkuð reglu-
lega með tíu ára millibili. Stafar þetta af
því að auðmannastéttin hefur lært nokkuð
af marxistískri gagnrýni á auðvaldsskipulag-
inu og gripið til þeirra ráðstafana, er kreppu-
boðar sáust, að efla stórum öll ríkisafskipti
til aukningar á atvinnu og kaupgetu, til þess
að stöðva þannig framrás kreppunnar og
snúa straumnum við. Stundum hefur og styrj-
aldarreksmr verið notaður af auðvaldinu í
sama skyni.
Þeir kreppuboðar, sem nú eru á ferð, eru
að því leyti alvarlegri en aðrir eftir stríð,
að nú er ekki um neina samræmda stjórn
á viðskipta- og fjármálum auðvaldsheimsins
áð ræða eftir að auðmannastétt Bandaríkj-
anna sagði umheiminum verzlunarstríð á
hendur með ræðu Nixons 15. ágúst, lagði
10% innflutningstoll á fjölda vara og hljóp
frá gullgengi dollarans. Franska blaðið Le
Monde sagði um þetta að forseta Banda-
ríkjanna hefði tekist „að velta erfiðleikunum
yfir á ríkisstjórnir Vestur-Evrópu, sem vilja
ekki, geta ekki eða þora ekki að beita Banda-
ríkin þvingunum og heimta að þau stöðvi
þetta glæpsamlega og meiningarlausa stríð",
sem þau heyja. En hið dýra árásarstríð Banda-
ríkjanna á Víetnam, er ein helzta orsök sí-
fellds óhagstæðs greiðslujafnaðar þeirra, og
hefur leitt til þess að þau auka í sífellu út-
gáfu sína á pappírsdollurum, sem prangað
var upp á Vestur-Evrópu sem gullsígildi og
eykur stórum verðbólgu þar.
Oll stóriðjulönd kapitalismans voru tengd
svo náið saman vegna svipaðrar efnahags-
starfsemi að útbreiðsla kreppu á þar greiða
göm. „Industrie Kurier", borgarablað í Vest-
ur-Þýzkalandi kemst svo að orði um þau:
„Við erum nú eins og fjallgöngumenn bundn-
ir saman. Ef einum af okkur skrikar fótur,
hröpum við allir niður í gjána".
Kreppuboðarnir í auðvaldsheiminum em
óneitanlega margir: á fyrsm fjórum mánuð-
um ársins 1971 var iðnaðarframleiðslan að-
16