Réttur


Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 4

Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 4
ráði íslandi og íslenzku fiskimiðunum, bar- áttu Islendinga gegn þvi að þjóðin sjálf og auðlindir hennar væru arðrændar sem ný- lenda af yfirstéttum framandi þjóða. Allt frá því á fimmtándu öld, — þegar heita átti að danskt vald drottnaði yfir landi, — hefur enskt og þýzkt útgerðar- og verzlun- arauðvald rænt íslenzk fiskimið. Jafnvel áttu þessar tvær erlendu yfirstéttir þá til að berj- ast sín á milli á landi um hver betri hefði aðstöðuna við áð ausa upp úr gullkistu Faxa- flóa, — og ber heitið „þýzku búðir," þar sem svissneska stassjónin nú stendur, enn vitni um þau ítök, er þar voru. Það eru því fyrst og fremst arðránshags- munir enska auðvaldsins, sem kröfur vor Is- lendinga til yfirráða yfir þeim auðlindum vorum, sem eru skilyrði lífs vors, rekast á. Og það eru jafnframt kröfur vorar að fá að gera þær ráðstafanir, sem eru nauðsynlegar til að tryggja viðhald og aukningu fiski- stofnsins, — því oss er það alltof vel kunn- ugt hve gersamlega hirðulausar arðránsklær erlendra yfirstétta eru um áuðlindir þjóða þeirra, sem þær eru að ræna. Þurrausin fiski- mið annars staðar við Evrópustrendur og uppurnar auðlindir um víða veröld bera vott- inn um skammsýni og græðgi þessara afla. Eins og Irland þá eru og íslenzk fiskimið einhver elstu arðránssviðin, sem brezkt auð- vald hefur hagnýtt. En þetta brezka auðvald verður nú að horfast í augu við að heims- veldi J>ess er að hrynja — og að brezka þjóðin verður að fara að lifa fyrst og fremst af sínum eigin auðlindum — og hefur brezk alþýða vissulega af nógu að taka þegar hún snýr sér að því að hagnýta í eigin þágu þann auð, sem brezk yfirstétt hefur safnað til Englands gegnum aldirnar. Fram yfir síðasta stríð var það svo að sá auðhringur, sem átti sterkust ítök í brezka 4 togaraflotanum, Unilever, átti um leið stærsta togarafélag Þýzkalands, Norddeutsche Hoch- seefischerei, og má mikið vera ef ítökin eru ekki eitthvað svipuð enn. Hér er um næst- sterkasta auðhring heims utan Bandaríkjanna að ræða. Vissulega mun auðdrottnum slíkum þykja hart, ef kotkarlar nokkrir norður á Islandi gerast svo djarfir að seilast til yfirráða yfir eigin auðlindum, sem slíkir drottnar voru vanir að ausa af. Þess vegna siguðu þeir á okkur bryndrek- um sínum 1958 og héldu sig hafa tryggt sér arðránsvaldið um alla framtíð með land- ráðasamningnum 1961. En Alþýðubandalag- ið og Framsókn lýstu því þá hátíðlega yfir á Alþingi, að samningur sá væri markleysa, nauðungarsamningur, til kominn undir ógn- un erlendra fallbyssukjafta, gæti því á engan hátt Island bundið og myndu þessir flokkar hafa hann að engu, er til valda kæmu. Og síðán hefur ástand það, er orðið er um eyð- ingu fiskistofna, gert það að óhjákvæmilegu þjóðlegu og alþjóðlegu hagsmunamáli að tryggja þá 50 mílna fiskveiðilögsögu, sem nú er ákveðin einróma af Alþingi Islendinga. Það er rétt fyrir þjóð vora að vera við- búin hörðum átökum við þessa aðila, þótt vart muni nú herskipum beitt. Viðskiptabann við England og Vestur-Þýzkaland gemr vissu- lega valdið okkur smáóþægindum, en að- staða okkar er sterk: Við keyptum af Vestur- Þýzkalandi fyrir 2396 miljónir króna á síð- asta ári (jan.—nóv.), en seldum þangað að- eins fyrir 701 miljón kr. Og sama hlutfall í viðskiptum við Bretland er 2403 milj. kr. móti 1639 milj. kr. — Svo miklu höfum við ekki þurft að fórna í frelsisbaráttunni á þess- ari öld, að við gætum ekki þolað þær skrá- veifur, sem þetta auðvald og þeir, sem það hefði áhrif á, kynni að gera okkur. Höfuðatriðið er að nú stendur einhuga

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.