Réttur


Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 18

Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 18
sætt og athuga einnig hvaða hættur vofa yfir nú auk hugsanlegrar viðskiptakreppu Vestur- Evrópu. Bandaríkin eru nú mesti útflutnings- markaður vor, taka við þriðjungi alls útflutn- ingsins og jafnvel meiru. Það er ljóst hve þýðingarmikið er að varðveita þennan mark- að. „Þriðji heimurinn" er sá aðili sem vegna eggjahvítuhungurs síns þarf mest á okkar eggjahvíturíku framleiðslu að halda, — og á erfiðast með að borga. En ljóst er að eftir megni verðum við að reyna að auka viðskifti okkar við þjóðir þriðja heimsins, einnig með tilliti til þess hverja samleið við eigum með þeim í landhelgismálinu. En það- an er ekki að vænta stórra hluta í viðskiptum í svipinn, er bjargað gætu Islandi, ef til al- varlegra tíðinda dragi í viðskiptum okkar við lönd Vestur-Evrópu. Hvað Vestur-Evrópu snertir, þá er ekki aðeins hættan fyrir okkur á viðskiptakreppu þar. Það er líka hugsanlegt að við lendum í einskonar verzlunarstríði við Vestur-Þýzka- land og Englandi. Við Islendingar þekkjum af fyrri reynslu hrokann í auðvaldi slíkra landa, ef því finnst kotkarl eins og Island bjóða svo voldugum herrum byrginn. Islend- ingar muna það enn þegar landhelgin var færð út í 4 mílur 1952, og enska auðvaldið setti bann á íslenzka fiskinn. Stóra-Bretland hélt sig geta beygt Islendinga með slíku en þeir áttu eftir að reyna annað. Þótt íhaldssöm stjórn væri í landinu („helmingaskiptastjórn" Ihalds og Framsóknar) þá hafði hún þó bæði vit og manndáð til þess að snúa sér beint til Sovétríkjanna og semja við þau um mikla fisksölu, sem gerði bann Breta að engu. Við megum búast við ýmiskonar hörðum ráðstöf- unum Vestur-Þjóðverja og Breta á viðskifta- sviðinu út af landhelgismálinu og þá er að mæta þeim. Að vísu kaupum við miklu meira af þjóðum þessum en við seljum þeim, en viðskiptastríð við þær er engu að síður al- varlegur hlutur, sem bregðast þarf við af karlmennsku og forsjá. Og sama gildir sann- arlega, ef viðskiptakreppa skyldi harðna í þessum löndum og það valda oss einnig erfið- leikum. Sá aðili, sem Island gæti fljótast og örugg- ast aukið viðskifti sín við, ef harðna tæki á dalnum, eru Sovétríkin og önnur sósíalistísk lönd. Athugum því helztu viðskiptamöguleik- ana við þau. VIÐSKIPTIN VIÐ SÓSÍALISTlSKU LÖNDIN Þegar róttækar stjórnir hafa setið að völd- um á Islandi, fullar áhuga á að tryggja öllum landsmönnum fulla atvinnu, hafa viðskiftin við Sovétríkin og önnur sósíalistísk lönd ætíð aukizt stórum, sökum þess öryggis, sem kreppulaust efnahagskerfi þeirra bauð upp á. Þegar nýsköpunarstjórnin sat að völdum voru hafin hin stórfeldusm viðskifti við Sovét- ríkin, — en þau viðskiftatengsl voru rofin 1948 af þeirri ríkisstjórn, er þáði Marshall-fé og beygði sig fyrir skilmálum „kalda-stríðs"- frumkvöðlanna í Washington. En þegar bandamaður vor í Nato, Bretinn, gaf oss sparkið 1952, sem fyrr segir, voru þau þó hafin á ný. Vinstri stjórnin, sem setti sér að útrýma því landlæga og mikla atvinnuleysi, er hér var 1956, og gerði það, stórjók viðskiftin við Sovétríkin og önnur sósíalistísk lönd, enda var það ein höfuðaðferðin við útrýmingu at- vinnuleysisins. Komst þá útflutningur á freð- fiski til Sovétríkjanna upp yfir 30.000 smá- lestir eitt árið og mun heildarframleiðsla freð- fisks hafa náð því að verða 85 þúsund smá- 18

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.