Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 31
En það voru til allrar hamingju fyrir Island til
betri menn en Morgunblaðslýður 19. aldarinnar,
sem kunnu að meta „Brautina" og önnur sósíal-
istísk kvæði Þorsteins.
3. „ALDREI HEFUR MÉR OG MINNI LJÓÐASMÍÐ
VERIÐ SLlKUR SÓMI SÝNDUR“.
Hugsuður samvinnustefnunnar á Islandi, sósial-
istinn Benedikt Jónsson á Auðnum, heillaðist af
þeim boðskap, er Þorsteinn flutti I „Brautinni",
enda þekkti hann kenningu þá áður og Ijóð-
formið fagra hreif hann.
20. ágúst 1895 hafði sambandsfundur kaupfélag-
anna komið saman til að stofna með sér samband
'slenzkra kaupfélaga. Það voru þingmennirnir Skúli
Thoroddsen, Pétur Jónsson, Jón I Múla o. fl. sem
þarna mættu fyrir kaupfélögin. Þeir ákváðu út-
Qáfu „Tímarits kaupfélaganna", ritstjóri Pétur á
Gautlöndum. Fyrsta timaritið kom út 1896 og þar
skrifaði Benedikt á Auðnum greinina „Skipulag"
°9 hefur að mottó-i „trúarjátningu" „Brautarinn-
ar:" Ég trúi þvi sannleiki . . .
Þessi grein Benedikts er sannarlega einskonar
stefnuyfirlýsing samvinnuhreyfingarinnar þegar hún
er að hefja göngu sína. Benedikt boðar þarna gildi
samtaka almennt og sérstaklega samtaka alþýðu-
fólks og gildi skipulags I þjóðfélögunum í mót-
setningu við samkeppni og glundroða. Það sé
nauðsynlegt að læra af reynslu stórþjóðanna, ekki
nóg að fá tækni þeirra og verklegar framfarir,
heldur og félagslegu nýjungarnar.
„Hin gamla mannfélagsbygging, sem „rifin, fúin
og rammskökk* er öll“ er þegar tekin að hrynja.
Umbótamenn hinna siðustu tima, móralistar og
sósialistar undirbúa nýtt ástand, þeir eru hróp-
endur í eyðimörkinni“, — segir Benedikt. Hann
ræðir um verkamannafélögin sem mynduð hafi ver-
ið erlendis og sýnir fram á hvernig atvinnurekend-
ur nútímans hafi nú tekið við af gömlu kúgurunum:
„Kaupmennirnir — þessir atvinnurekendur með
auð i höndum, en engu skipulagi háðir, — urðu
brátt ofjarlar vorir og kúguðu alþýðu nær þvi eins
hart og hið gamla skipulag".
* Svo hjá Benedikt, i kvæði Þ.E. er „ramskekt".
31