Réttur


Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 21

Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 21
DROG AÐ STEFNUSKRÁ FYRIR ALÞÝÐUBANDALAGIÐ [„Réttur" mun smámsaman birta uppkast það að stefnuskrá, er lá fyrir síðasta landsfundi Al- þýðubandalagsins. Var það I fjórum aðalköflum og birtist hinn fyrsti hér: „lnngangur“. Er ætlunin að með þessu móti gefist flokksmönnum og fylgj- endum gott tækifæri til þess að kynna sér stefnu- skrána rækilega og búa sig undir frekari umræður um hana. Jafnframt er minnt á ræðu Ásgeirs Bl. Magnússonar i siðasta hefti Réttar og grein Hjalta Kristgeirssonar í 2. hefti siðasta árs: „Hugleiðing- ar um stefnuskrá."] HVERS VEGNA SÓSÍALISMI? Sósíalismi nútímans er til orðinn sem svar við andstæðum auðvaldsþjóðfélagsins, jafnframt því sem hann er tilraun til að sigrast á mótsögnum þess og leysa það af hólmi. Hann felur i sér frá öndverðu vísindalega greiningu á gerð þessa þjóð- félags, þeim lögmálum, sem það lýtur, og þeim innri mótsögnum sem marka alla þróun þess, þótt i breytilegum myndum sé. En samtímis er hann fræðileg leiðsögn um það, hversu mótsagnir þessar skuli leystar og nýttir til fulls i þágu vinnandi stétta og mannkynsins alls þeir möguleikar, sem þróun iðnaðarþjóðfélagsins hefur skapað, en samrýmast ekki þeirri umgjörð, sem auðvaldið hefur markað því. Hér er ekki ein- göngu um að ræða háþróaða tækni- og efnahags- undirstöðu, heldur og margskonar framfarir menn- ingar- og félagslegar, sem fylgt hafa þróun auð- valdsskipulagsins, en það hefur um leið takmarkað og afskræmt. Þungamiðja efnahagskerfis auðvaldsins er auð- söfnun ákveðinnar stéttar, (auðmanna), á grundvelli stöðugrar útþenslu og fullkomnunar framleiðslu- aflanna. Jafnframt krefst svo þetta efnahagskerfi „frjáls vinnuafls" (þ. e. fólks án eigin vinnutækja og aðstöðu), er auðstéttin hagnýtir eftir þörfum við framleiðslutækin, sem hún ræður yfir. Efnahagsleg lögmál þessa skipulags hafa það í för með sér, að auðmagnið vex sí og æ og hleðst upp, samtímis því sem það safnast á færri hendur, fáar en vold- ugar samsteypur og valdamiðstöðvar fá æ meiri tök á efnahagslifinu, en smærri fyrirtæki falla fyrir ofurborð eða missa sjálfstæði sitt.

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.