Réttur


Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 24

Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 24
Sósíaliskur flokkur hefur því harla mikilvægu hlutverki að gegna, þótt ekki sé hægt að tala um „forystuhlutverk" hans í þeim þrönga forréttinda- skilningi, sem lengi hefur verið lagður í orðið. Reynslan hefur sýnt, hve alvarlegar hættur fylgja einokunaraðstöðu flokksins við uppbyggingu nýs þjóðfélags; og eigi að forðast þær hættur, verður hreyfingin að miða starfsemi sína við það þegar í upphafi og afneita þesskonar einokunaraðstöðu í orði og verki. Baráttan fyrir sósíalisma krefst nú í ýmsu annarra vinnubragða en áður. Eigi hin sósí- alíska hreyfing að sigrast á háþróuðu auðvalds- skipulagi, er eitt frumskilyrði þess miklu meiri út- breiðsla sósialískrar vitundar en þekkzt hefur hing- að til i byltingum 20. aldar. Þvi verður í fyrsta lagi lika að koma til sjálfstætt hlutverk ýmissa fjölda- samtaka, einkum hinnar faglegu verkalýðshreyfing- ar, bæði í baráttunni fyrir sósíalisma og síðar í upp- byggingu hans; og i annan stað hlýtur þróun og útbreiðslu sósíalískra hugmynda að ná langt út fyrir flokkinn og getur ekki lotið stjórn hans. Hinn fræðilegi sósíalismi hefur frá upphafi litið svo á, að verkalýðsstéttin væri hið félagslega afl, sem framkvæmd hans yrði fyrst og fremst að styðj- ast við. Þetta sjónarmið heldur enn gildi sinu í öllum höfuðatriðum, en þó getur nútíma sósíal- ískur flokkur ekki verið verkalýðsflokkur í þeim þrönga skilningi, sem lengi vel gilti bæði um kommúnista og sósíaldemókrata. Innri greining verkalýðsstéttarinnar hefur farið vaxandi á síðustu áratugum. Hinsvegar hefur þróun auðvaldsskipu- lagsins haft það í för með sér, að hin forna sjálf- stæða millistétt hefur dregizt mjög saman, en þess í stað komið fram ný, fjölmenn starfs- og þjónustu- stétt, sem á meiri samstöðu með verkalýðnum, þar sem hún hefur tekjur sínar af launavinnu, en ekki eignarhaldi á framleiðslutækjum. Við þessar að- stæður verður sósíalískur flokkur að vinna að sköpun breiðrar samfylkingar, sem ekki sé reist á undirgefni allra annarra undir sjónarmið eins þátt- takandans, heldur sósíalískri samþættingu hinna ýmsu viðhorfa. FRJÁLS ÞRÓUN EINSTAKLINGS OG HEILDAR Sósíalískt þjóðfélag kemst ekki á þegar í stað, þótt sósíalísk hreyfing hafi náð yfirráðum yfir ríkisvaldinu. Sósíalismi hefur að vísu oft verið skilgreindur sem afnám einkaeignaréttar á fram- leiðslutækjum og tilkoma þjóðfélagslegrar eignar í hans stað, en þessi skilgreining er ófullnægjandi. I fyrsta lagi ber að gæta þess, að þótt sósíalismi krefjist þjóðfélagslegrar eignar, beinnar þjóðnýt- ingar á höfuðmiðstöðvum efnahagslífsins, má gera ráð fyrir, að utan þeirra haldist einkaeign um all- langt skeið, einkum í allskonar smárekstri — og erfitt að segja fyrir um, hvaða mynd félagsleg eign mundi taka á sig á þeim sviðum þegar þar að kem- ur. I öðru lagi nægir þjóðnýtingarformið eitt ekki til þess, að hægt sé með fullum rétti að tala um sósíalískt skipulag. Þar verður líka að koma til bein þátttaka framleiðendanna sjálfra í stjórn efna- hagslífsins. Síðast en ekki sízt eru allar breytingar á eignarréttinum aðeins tæki, en ekki takmark i sjólfu sér. Markmið sósíalismans er að breyta um- hverfi og tilveruskilyrðum mannsins í það horf, að þau leyfi alhliða þroska mannlegra hæfileika, eða eins og það er orðað í sígildri skilgreiningu þeirra Marx og Engels: „Sósialisminn er þjóðfélag þar sem frjáls þróun einstaklingsins er skilyrði fyrir frjálsri þróun heildarinnar." Nærtækt verkefni sósíalískrar hreyfingar í þró- aðri hluta heims er að skilgreina nánar tengslin miili sósialisma og lýðræðis og framfylgja þeirri skilgreiningu i verki. Hér er ekki um það að ræða fyrst og fremst að samræma sósíalismann ríkjandi lýðræðisformum, heldur varðar þetta hið sögulega hlutverk sósíalismans: Að skapa miklu fullkomnara og raunhæfara lýðræði en nokkurt stéttaþjóðfé- lag getur gert. Þetta tekur til allra höfuðþátta lýð- ræðisins, jafnréttis þegnanna, virkrar þátttöku þeirra í pólitískum ákvörðunum, réttarins til opin- berrar gagnrýni og pólitísks samtakafrelsis og tryggingar á réttindum einstaklingsins gagnvart fulltrúum almannavaldsins. Verkalýðsstéttin og flokkar hennar hafa átt hvað rikastan þátt í að efla og endurbæta borgaralegt lýðræði, enda hug- sjón sósíalismans til orðin öðrum þræði sem beint og rökrétt framhald af lýðræðishugmyndum síðari alda — og miðar að hvoru tveggja í senn: 1. að tryggja undirstöðu lýðræðis með félagslegu skipulagi á efnalegum tilveruskilyrðum mann- anna og 2. gefa því ákveðnara inntak með því að skapa skilyrði fyrir alhliða þroska einstaklinganna. Þar sem borgaralegt lýðræði hefur skotið rótum, verður sósialísk hreyfing að taka tillit til þess í starfi sínu og verja það áföllum úr afturhaldsátt. 24

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.