Réttur


Réttur - 01.01.1972, Qupperneq 23

Réttur - 01.01.1972, Qupperneq 23
félagslega byltingu og gefa þannig hvoru um sig rikara inntak og nýtt gildi. Sósialísk stjórnmála- hreyfing leggur hvorki að jöfnu allar umbætur innan ríkjandi þjóðfélags, né heldur gerir hún ráð fyrir, að sósíalisminn geti vaxið upp smátt og smátt innan þess án nokkurra stökkbreytinga. Hún hlýtur einkum að berjast fyrir þeim umbótum, sem skap- að geta forsendur fyrir breytingu þjóðfélagsins í sósíaliska átt, þ. e. umbótum, er á einhvern hátt auka þjóðfélagslegt vald og frumkvæði alþýðu- stéttanna og fela í sér sjónarmið andstæð lög- málum auðvaldsskipulagsins. En þótt slíkar um- bætur séu nauðsynlegur áfangi geta þær þó aldrei komið I stað lokastigsins, hinnar eiginlegu þjóð- félagsbyltingar, en með því hugtaki er eingöngu átt við breytinguna á sjálfri undirstöðu þjóðfélags- ins (þ. e. eigna- og valdakerfinu), en ekki neinar tilteknar aðferðir, sem beitt er til að koma henni á. Hvort sem hún fer friðsamlega fram eða ekki, verð- ur hún ekki bútuð niður I smærri landvinninga. Helztu valdamiðstöðvarnar i nútíma auðvaldsþjóð- félagi mynda eina samfellda heild, og því verður aldrei til langframa stjórnað samtimis eftir tveim andstæðum meginreglum. Á fyrsta stigi getur því hin sósíalíska hreyfing smátt og smátt komið sér upp stofnunum og aflað sér valdaaðstöðu, sem gerir henni kleift að takmarka og skilyrðisbinda á ýmsan hátt verkanir þeirra lögmála, er ríkja í auðvalds- skipulaginu. En þegar hún kemst svo langt að geta í verulegum mæli sett eigin sjónarmið og viðmið- unargildi í stað hinna borgaralegu, verður hún líka að vera þess albúin að stíga skrefið til fulls og ná úr höndum borgarastéttarinnar helztu valda- stöðvum þjóðfélagsins. Með hverjum hætti þessu markmiði verður náð, er auðvitað ekki undir hreyf- ingunni einni komið, en hún getur unnið að því, að það gerist friðsamlega. Til þess eru að sjálfsögðu því meiri likur sem lýðræðislegir stjórnarhættir eru rótgrónari og aðstaða yfirstéttarinnar til beinnar valdbeitingar erfiðari. ÚTBREIÐSLA SÓSÍALÍSKRA HUGMYNDA Baráttan um hið pólitíska vald er jafnan megin- þáttur í starfsemi hinnar sósíalísku hreyfingar, en starfið er ofið fleiri þáttum. Hreyfingin verður einn- ig að kappkosta að bæta vígstöðu sina á hinum félagslega og menningarlega vettvangi utan vé- Karl Marx banda ríkisvaldsins. Þetta er nauðsynlegt, bæði vegna þess að hið borgaralega hugmynda- og valdakerfi hefur skotið þar djúpum rótum, svo og til þess, að lögð sé fyrirfram undirstaða að lýð- ræðislegum tengslum milli sósíalísks þjóðfélags framtiðarinnar og ríkisvalds þess, svo að ríkis- valdinu verði beitt i þjónustu samfélagsins, en vaxi því ekki yfir höfuð og verði valdatæki tiltölu- lega fámenns hóps. 23

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.