Réttur


Réttur - 01.01.1972, Qupperneq 30

Réttur - 01.01.1972, Qupperneq 30
— og þá auðvitað á þann hátt, sem Matthíasi var eðlilegastur: Morris hafði gefið honum bæklinga um sósíalisma, er þeir skildu 1885 og talað um fyrir honum um ágæti þeirrar stefnu, — og svo segir Matthías: ,,Blöðum hans týndi jeg norður í Nýkastala, en orð hans eru nú min eigin skoðun, þótt ekki sje það mitt færi, og hafi aldrei verið, að rökstyðja hana. Spyrjum að leikslokum". Áratugurinn 1890—1900 og ekki sízt árin 1895— 97, — sömu árin og verklýðssamtökin eru að hefjast, — er einnig upphafsskeið sósíalismans sem hugsjónar á Islandi. Þorsleinn er ekki einn. Með honum standa „höf- uðin sem hugsa bezt og hagast Ijóða", Stephan G , Einar og Matthías. Og þótt ýmislegt skildi þessa menn síðar, þá stóðu þessi stórmenni andans saman við vöggu sósíalismans á Islandi og það var vissulega táknrænt og islenzkt að einmitt skáldin skyldu verða fyrst til þess að flytja þjóð- inni þann boðskap, sem heimspekingar, hagfræð- ingar og stjórnmálamenn annars hafa viðast hvar orðið fyrstir til að boða. Þó eiga þeir vissulega brautryðjendabræður erlendis lika eins og Heine, Gorki og Andersen Nexö. 2. „ÞETTA ÆTTI EKKI AÐ BIRTAST Á PRENTI“. Það er nú alkunna orðið hvílikt hneyksli kvæði eins og „Brautin" og raunar „Þyrnar" allir vöktu hjá kolsvörtu afturhaldi Islands þá. „Þyrnar" voru gjarnan hafðir í felum, svo unglingar næðu ekki að spillast af þeim, þótt sumum þeim eldri þætti bragðið sterkt og lokkandi. En það er þó rétt að rifja upp eitt dæmi um viðtökurnar hjá afturhaldinu, — einmitt nú, þegar „Þyrnar" þykja góð ferming- argjöf og afturhald dagsins í dag reynir að þegja um sósíalisma þessara brautryðjenda og helzt til- einka sér þá. I „Austra" á Seyðisfirði stóð m. a. eftirfarandi um kvæði Þorsteins í Eimreiðinni, þann 10. ágúst 1895 eftir einhvern, sem skrifar undir Sch. (máske Scheving?): „Aftur hefðu 2 stærstu kvæðin „Brautin" og „Á spitalanum" aldrei átt, að minu áliti, að birtast á prenti, sízt í þessu riti, sem ætlað er til lesturs og fræðslu ungum og gömlum á Islandi. Það er sem sé af kvæðinu „Brautin“ að segja, að í því bryddir á þeirri afneitun guðlegrar tilveru, sem al- gjörlega yfirgnæfir i kvæðinu „Á spitalanum". „Brautin" gæti ennfremur verið hinn bezti liðsöng- ur (Marsch) fyrir jafnaðarmenn (socialista) sbr. erindið" — og svo vitnar greinarhöfundur i visurn- ar: „Sá flokkur i neyð" — og „Að vísu er það harmur“. Síðan heldur hann áfram: „Ég skal fúslega játa, að bæði þessi kvæði eru snilldarleg að formi til og hinni efnislegu meðferð, enn það er hugsunin, lifsskoðun sú, sem liggur til grundvallar, sem hneykslar". „Sem sagt, bæði guöleysis- og socialista- kenningar hneyksla okkur og það er því ekki rétt, að þessar stefnur séu predikaðar í ritum, sem eiga að vera skemtandi, fræðandi og um allt þarflegt ræðandi, og þetta vil ég hér með benda ritstjóra „Eimreiðarinnar" á“. Það var ekki neitt nýtt að svona væri tekið nýjum róttækum boðskap af afturhaldinu á Islandi. Realistarnir úr skóla Georgs Brandesar höfðu feng- ið sömu viðtökurnar. I „Fjallkonunni" 7. júni 1884 hafði prestur úr sveitinni skrifað um það að „öfl- ugustu fylgjarar þessarar heiðinglegu skoðunar eru realistarnir" — einkum varað við þeim „SPILL- INGAR-GESTI", sem væri að ræna unglingana „hverjum góðum guðstitli, kristilegri trú og sið- ferðistilfinningu", — og var það Gestur Pálsson, sem hættan stafaði af*). Hann var álitinn vera að flytja hingað „rússneskan Nihilisma". — Kannast menn við orðbragðið, þó orðatiltækin séu önnur? I málpípu afturhaldsins í dag, Morgunblaðinu, var samkoma stúdenta 1. des. 1971 kölluð samkoma „þjóðníðinga og landráðamanna", af því þeir vildu erlendan her burt af Islandi! *) Og það voru ekki aðeins hinir heiðnu realistar, sem fengu svona kveðjur frá afturhaldinu, ef þeir sýndu eitthvert frjálslyndi eða róttækni. Sjálft þjóð- skáldið séra Matthías fékk þá kveðju frá „Samein- ingunni", vesturheimska blaðinu, fyrir ræðu, er hann flutti 1893 í Vesturheimi — og vafalaust hef- ur verið frjálslynd, — að hann, Matthías, væri „kirkjunni til tjóns og vanvirðu", og það, sem hann segði allt „bull og þvaður". 30

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.