Réttur


Réttur - 01.01.1972, Síða 32

Réttur - 01.01.1972, Síða 32
Benedikt Jónsson á Auðnum Hvað eftir anrað ræðir Benedikt um sósialista og vitnar í ,,Brautina". Andi hennar gagnsýrir grein hans og visuorðin úr henni eru hinn rauði þráður hennar. „Við erum loksins að vakna" er viðkvæð- ið. Það var ekki að undra þó Þorsteini þætti vænt um að sjá slik áhrif síns ágæta kvæðis, sem aðrir hneyksluðust svo á. Hann skrifar Benedikt þessi orð um greinina í þréfi 3. marz 1897: „Mjer og minni Ijóðasmið hefur aldrei verið jafnmikill sómi sýndur, jeg las hana i rúmi minu og grét yfir henni eins og barn“*). Vafalaust hefur Benedikt á Auðnum ekki verið einn um þessa afstöðu meðal brautryðjenda sam- vinnuhreyfingarinnar. Sigurður Jónsson á Yztafelli ritar grein í tímaritið dags. í janúar 1896 sem tek- in mun upp úr „Ófeigi", þar sem hann er að undirstrika að þeir fátæku verði að vera með í hreyfingunni og endar með þessum orðum: „Kaupfélögin eiga langa og heillaríka framtíð fyrir höndum, ef meðlimir þeirra hafa þessi þrjú meginatriði jafnan fyrir augum: að leita sannleikans, að haltra eigi til beggja hliða, og að styðja hina fátæku“. Hin róttæka félagshreyfing Þingeyinga, sem samvinnuhreyfingin er einn meiður af, beindist raunverulega gegn ríkisvaldi og auðvaldi þess tíma (embættisvaldi og kaupmannavaldi), eins og m. a. kom í Ijós í því hvernig lesið var úr skamm- stöfuninni á leynifélaginu O. S & F. þ. e. „ofan með sýslumann og faktor". Og áður höfðu þeir sömu Þirrgeyingar sýnt róttæka afstöðu sína í þjóð- frelsismálum með myndun Þjóðliðsins. Það er og eftirtektarvert að nokkur leynifélags- starfsemi virðist hafa átt sér stað, sem einnig kann að hafa snert verklýðssamtökin. Snorri Jóns- son, bróðir Benedikts, en faðir Áskels, segir frá félagi, er nefnist „Undiraldan" í dagbók sinni 1888, 14. des. og hafi það þá verið stofnað á Einars- stöðum. 1890 er setudómari að reyna að grenslast eftir sliku félagi. Og „Undiralda" nefnist sveita- blað í Mývatnssveit 1888—90**). Slíkt „leynilegt" málfundafélag með sama nafni „Undiraldan" var og til á Akureyri á áratugnum 1890—1900, líklega árunum 1894—97, og segir frá því í fréttapistli í Bjarka 13. april 1897***). Virð- ist það vera einskonar fyrirrennari Verkamanna- félagsins. Mikið á vafalaust eftir að koma fram enn um félagshreyfingu þessara ára, um viðræðurnar manna á milli um sósíalisma og þarmeð um áhrif *) Við eigum birtingu þessa bréfhluta Nönnu Ólafs- dóttur sagnfræðingi að þakka, sbr. grein hennar í Árbók Landsbókasafnsins 1969: „Úr fórum Bene- dikts á Auðnum". **) Um þetta má lesa nánar í Grein Sveins Skorra prófessors í Skírni 1970: „Ófeigur í Skörðum" og i bók Arnórs Sigurjónssonar „Islenzk samvinnufélög 100 ára" Reykjavik 1945. ***) Sjá nánar um þetta í bók Ólafs R. Einarsson- ar: Upphaf íslenzkrar verklýðshreyfingar, bls. 70— 76, einkum á bls. 74. 32 j

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.