Réttur


Réttur - 01.01.1972, Page 36

Réttur - 01.01.1972, Page 36
lítilmagna, að ætla sér að halda höndum á þjóð- höfðingjum og stjórngörpum Norðurálfu, með 10 þús. miljóna fjármagni til herbúnaðar að baki sér. En þjóðveldismenn í Sviss brostu ekki. Þessum mönnum var fagnað þar sem alvarlegum erindrek- um mannúðar og menningar. Þessum jafnaðar- mönnum, sem andstæðir eru allri lögbundinni trú, og telja sig naumast kristna menn margir þeirra, var boðin dómkirkjan í Basel — fornheilagt musteri til að halda fund sinn í.“ Stolt og trúnaðartraust Þorsteins skein úr hverju orði í öllu upphafi þessa erindis, trúin á að verka- lýðurinn gæti stöðvað það blóðbað, er sprytti af „fjármuna- og valdagræðgi hinna ráðandi stétta." En hann átti þá ekki langt eftir, — dó 28. sept. 1914, — svo honum auðnaðist ekki að draga álykt- anir af þeim harmleik, er gerzt hafði. — Það tókst hinsvegar skáldbróður hans og skoðanabróður Stephani G., bæði i „Vopnahlé" og síðar — af því honum varð lengra lífs auðið. Stundum hefur máske hvarflað að Þorsteini að kveða likt og vinur hans, Stephan G. Stephans- son gerði: „Min bjargföst von um betri mannkyns hag mér benti' í átt, þar geislar munu rísa. — Eg veit, að eg hef vaknað fyrir dag og verða að kveðja áður en fer að lýsa." Ef til vill komu vonbrigði hans skýrast fram í þeirri þreytingu, er hann gerði á kvæðinu „Land- sýn" í desember 1904 og eru báðar gerðirnar birtar hér, svo menn geti borið þær saman og séð sjálfir inn í hug skáldsins og brautryðjandans. En vonina gaf hann ekki upp: „Við vonum þú senn eigir svipmeiri þjóð og senn verði heiðari bráin; til þess orti Jónas sín þjóðfrægu Ijóð, til þess er Jón Arason dáinn". Og til þess hefur Þorsteinn Erlingsson lifað, ort og barizt. Hann fékk ekki að lifa það að sjá hvilíkan þátt einmitt Ijóð hans og lif, — og þá fyrst og fremst Kaupmannahafnar-kvæðin, — áttu í því að veita íslenzkum verkalýð þá reisn, stórhug og þrótt, sem gefið hefur honum alla stærstu sigra sína. En með því, sem hann vann til þess að vekja íslenzkan verkalýð til dáða, kveða í hann kjark 36 og byltingarhug sósialismans, gerðist hann eigi aðeins brautryðjandi sósíalisma á Islandi, heldur verður og eilifur förunautur sósialistiskrar hreyf- ingar, sem ætið mun tala til alþýðu í Ijóðum sín- um, þegar hætta er á að hugsjónin kafni í dægur- þrasinu,*) gleymist í „velferðar'-vimunni eða jafn- vel dofni í myrkviði valdanna að úrslitasigrinum unnum. Þá mun ætíð hvöt Þorsteins hljóma skær með áræðisins eilifa krafti um að halda aftur af stað „uns brautin er brotin til enda." HEIMILDIR, SEM STUÐST ER VIÐ: Bjarni Benediktsson frá Hofteigi: Þorsteinn Erlings- son. Reykjavík 1958. Nanna Ólafsdóttir: „Or fórum Benedikts á Auðn- um." Árbók Landsbókasafns Islands 1969. Ólafur R. Einarsson: Upphaf íslenzkrar verkalýðs- hreyfingar 1887—1901. Rvík 1970. Sveinn Skorri Höskuldsson: „Ófeigur i Skörðum og félagar". Skírnir 1970. * Ég minnist þess vel hver örvun líf og Ijóð Þor- steins og Stephans G. var mér og fleirum í vinstra armi Alþýðuflokksins 1928 og skrifaði þá grein um þá tvo í Rétt: „Árgalarnir áminna. Raddir frá storm- tímum stefnunnar." J

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.