Réttur - 01.01.1972, Síða 39
þar sem hún hjálpi til að skýra stöðu manns-
ins í heiminum. I umfjöllun Jóhanns um
„krítísku kenninguna'' felst, að nauðsynlegt
sé að skoða þjóðfélag síðkapítalismans frá
mannfræðilegum sjónarhóli í anda Marx, en
láta ekki við það sitja að beita þjóðfélags-
rýni Marx umhugsunarlítið á vélrænan hátt.
Bók Jóhanns gerir ráð fyrir ítarlegri þekk-
ingu lesenda á marxismanum og á ritum
Frankfúrtarskólans, auk þess sem almenn
þekking á rás heimsviðburða er sjálfsögð
forsenda til skilnings. Einnig er nauðsynlegt
að hafa í huga þróun sósíalískra hreyfinga
og gera sér grein fyrir áhrifum tækniþróunar
á mannlegt félag. Jóhann hefur ekki tekið
að sér neins konar kynningarstarf í bók sinni,
heldur rekur hann sundur þræði flókinnar
heimspekilegrar hugsunar og tengir þá saman
á ný til eflingar marxismanum sem vísinda-
legri og hagnýtri kenningu.
Það skal fúslega eftirlátið Jóhanni sjálfum
að gera á íslenzku grein fyrir rannsóknum
sínum á „krítísku kenningunni'' og öðrum
gteinum marxískra fræða. Og jafnframt skal
látin í ljós von um, að hann fái tækifæri til
þess í náinni framtíð.
o
Lesendur RÉTTAR þekkja Jóhann Pál
Arnason af þremur greinum, sem birzt hafa
eftir hann í tímaritinu. Sú fyrsta birtist í 3.
hefti 19o7, „Myndbreytingar kapítalismans",
og var hún skrifuð í tilefni af 100 ára afmæli
„Auðmagnsins", höfuðrits Marx. Þar drepur
Jóhann meðal annars á tengslin milli þeirrar
heimspeki, er Marx setti fram í æskuverkum
s<num, og rannsókna hans í „Auðmagninu",
þar sem hann kryfur þjóðfélagið og setur
fram gagnrýni á pólitíska hagfræði síns tíma.
Einnig víkur Jóhann að þeim grundvallar-
breytingum sem orðið hafa á kapítalismanum
Jóhann Páll Árnason
frá því á dögum Marx, og sýnir fram á
hvernig sú þróun hefur sannað gildi þeirra
rannsóknaraðferða er Marx beitti. — Aðra
greinina skrifar Jóhann í 2. hefti 1968,
„Framtíðarviðhorf sósíalisma í Vestur-Ev-
rópu", en þá var maí-byltingin í Frakklándi
nýgengin yfir. Sýnir Jóhann fram á hvernig
byltingarhugmyndin er sí-ný og tímabær, en
jafnframt margbreytileg. Hann bendir á, að
hún þarfnast endurnýjunar nú, vegna þess
að hin sósíalíska þjóðfélágstúlkun hefur dreg-
izt aftur úr þjóðfélagsþróuninni sjálfri og
þeim möguleikum sem hún hefur opnað. —
Þriðju greinina er að finna í 3- hefti RÉTTAR
1968, „Nýsköpun sósíalismans í Tékkósló-
vakíu", rituð hálfum mánuði eftir innrás
39