Morgunblaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RÆDDI VIÐ SCHEFFER
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra ræddi í gærmorgun við Jaap de
Hoop Scheffer, framkvæmdastjóra
NATO, og óskaði eftir því að hann
ræddi við George W. Bush um varn-
armál Íslands. Geir H. Haarde utan-
ríkisráðherra segir að viðræður við
Bandaríkjamenn séu framundan á
næstu vikum.
Ráðstefna um vatn
Heimsráðstefna um vatnsbúskap í
heiminum hófst í Mexíkó í gær og
taka þúsundir sérfræðinga þátt í
henni. Fram kom að skortur á öruggu
drykkjarvatni veldur dauða um 3.900
barna á hverjum degi í heiminum.
Var hvatt til þess að gripið yrði til
ráðstafana til að farið yrði betur með
auðlindina.
Vilja flýta undirbúningi
Forsvarsmenn Norðuráls vilja
flýta undirbúningi að nýju álveri í
Helguvík á Reykjanesi í kjölfar þess
að bandaríska varnarliðið er á förum.
Gangsetning álversins er áætluð 2010
og er það undir orkufyrirtækjum
komið hvort það getur orðið fyrr.
Býðst til að víkja
Forsætisráðherra Íraks, Ibrahim
al-Jaafari, sagðist í gær vera reiðubú-
inn að víkja ef það gæti greitt fyrir
myndun þjóðstjórnar helstu flokka
og fylkinga.
Óánægja með vaktakerfi
Flugumferðarstjórar eru ósáttir
við upptöku nýs vaktakerfis á
Reykjavíkurflugvelli og hyggst félag
þeirra stefna Flugmálastjórn fyrir
Félagsdóm vegna breytinganna.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 34
Fréttaskýring 8 Bréf 37
Úr verinu 14 Minningar 38/49
Viðskipti 16/17 Dans 53
Erlent 18/19 Myndasögur 54
Minn staður 20 Dagbók 54/57
Akureyri 22 Staður&stund 56/57
Höfuðborgin 23 Leikhús 58
Suðurnes 24 Af listum 60
Landið 25 Bíó 62/65
Daglegt líf 26/28 Ljósvakamiðlar 66
Menning 29, 58/65 Veður 67
Umræðan 30/37 Staksteinar 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
MATSFYRIRTÆKIÐ Standard & Poor’s hefur
staðfest óbreytt lánshæfismat á ríkissjóði og met-
ur horfurnar áfram stöðugar.
Staðfestar eru lánshæfiseinkunnir á langtíma-
skuldbindingum í erlendri mynt sem AA- og AA+
fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum.
Einnig var staðfest einkunnin A-1+ fyrir skamm-
tímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum
krónum.
Í tilkynningu frá S&P segir að lánshæfisein-
kunnin byggist á stöðugu stjórnkerfi, auðugu og
sveigjanlegu hagkerfi, ásamt góðri stöðu opin-
berra fjármála. Það sem haldi aftur af frekari
hækkun lánshæfismatsins sé bæði mjög mikil er-
lend fjármögnunarþörf og miklar erlendar skuldir
hagkerfisins, segir Kai Stuckenbrock, sérfræðing-
ur S&P um Ísland.
„Opinber fjármál standa áfram traustum fótum.
Vegna mikils hagvaxtar, tekna af einkavæðingu
og tekjuafgangs ríkissjóðs til og með 2006 munu
heildarskuldir hins opinbera halda áfram að lækka
ört og verða um 21% af VLF árið 2009, samanbor-
ið við 50% árið 2001,“ segir í tilkynningu fyrirtæk-
isins, sem send var inn í Kauphöllina í gær.
S&P segir að hreinar erlendar skuldir haldi
áfram að vaxa þrátt fyrir verulega lækkun á
skuldum ríkissjóðs. Þrátt fyrir það ættu lok stór-
framkvæmda, minnkandi innlend eftirspurn og
vaxandi útflutningur að draga töluvert úr við-
skiptahallanum frá og með 2007. Nýleg veiking
krónunnar sé enn vel innan þeirra marka sem
Standard & Poor’s hafi reiknað með. Vaxandi
ójafnvægis gæti í þjóðarbúskapnum vegna hrað-
vaxandi innlendrar eftirspurnar sem knúin sé
áfram af væntingum neytenda og fyrirtækja,
vegna mikilla fjárfestinga í orkufrekum iðnaði og
útlánaþenslu. Þrátt fyrir meiri tekjuafgang hjá
hinu opinbera árin 2005 og 2006, hafi peninga-
málastefnan borið meginþungann í mótvægisað-
gerðum gegn áhrifum þenslunnar. Þetta auki lík-
urnar á ójafnri aðlögun þegar eftirspurnarþensl-
unni ljúki.
Ennfremur er haft eftir Stuckenbrock að til að
viðhalda lánshæfiseinkunninni skipti sköpum að
staðið verði við langtímastefnu stjórnvalda í rík-
isfjármálum og helst að auka aðhaldið enn frekar.
Ef hreinar erlendar skuldir þjóðarbúsins aukist
verulega frá því sem orðið er, eða ójafnvægi grafi
frekar um sig í þjóðarbúskapnum í kjölfar stór-
framkvæmdanna, geti lánshæfið versnað.
Krónan styrktist
Gengi krónunnar styrktist eftir að niðurstaða
Standard & Poor’s var tilkynnt í gær. Í lok dags
hafði krónan styrkst um 1,19% frá deginum áður,
eftir að hafa sveiflast til fram eftir degi.
Á þetta er bent í Hálffimm fréttum greining-
ardeildar KB banka í gær. Þar segir að gengi
krónunnar hafi verið mjög næmt fyrir nýju frétta-
flæði. Ljóst sé að ákvörðun S&P um lánshæfisein-
kunn sé stór frétt og ekki hafi komið á óvart að
markaðsaðilar hafi talið fréttina krónunni til tekna
og hún styrkst í kjölfarið.
Mat S&P á ríkissjóði óbreytt
SÝNINGIN Verk og vit, sem er um byggingariðnað,
skipulagsmál og mannvirkjagerð og sú stærsta sinnar
tegundar hér á landi, var opnuð í íþrótta- og sýning-
arhöllinni í Laugardal í gær.
Þar eru til sýnis ýmsar nýjungar í íslenskri fram-
leiðslu auk tækja, hönnunar, ráðgjafar og þjónustu sem
ýmis fyrirtæki bjóða.
Þá eru skipulagsmál sveitarfélaganna einnig hluti af
sýningunni og hægt að kynna sér þróun, einstök verk-
efni og framtíðarsýn á þessu sviði.
Alls kynna um 120 fyrirtæki starfsemi sína á sýning-
unni og var hún opin fagaðilum í gær og verður hið sama
upp á teningnum í dag. Á laugardag og sunnudag gefst
almenningi hins vegar kostur á að sækja sýninguna.
120 fyrirtæki sýna á Verki og viti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LÖGREGLAN í Keflavík kom að
ökumönnum á tveimur óskráðum
og ljóslausum fjórhjólum á götu í
Sandgerði í gærkvöldi. Lögreglan
veitti þeim þegar eftirför, því bann-
að er að aka slíkum farartækjum
innanbæjar og um umferðargötur.
Annað fjórhjólið hvarf út í
myrkrið en hinu var fylgt eftir þar
sem það fór í loftköstum yfir hraða-
hindrun. Ökumaður þess reyndi að
sveigja inn á göngustíg, en náði
ekki beygjunni og tókst lögreglunni
að króa hann af upp við girðingu.
Hann var kærður fyrir athæfið,
enda mörg ákvæði umferðarlaga
brotin og stöðvunarmerkjum lög-
reglu ekki sinnt.
Eltingarleikur
við fjórhjólaknapa
í Sandgerði
LÖGREGLAN og tollgæslan í Borg-
arnesi, með aðstoð Tollgæslunnar í
Reykjavík, lögðu hald á smyglvarn-
ing sem komið var frá borði m/s
Dettifoss í fyrrinótt. Alls var lagt
hald á um 24 lítra af áfengi, 120
munntóbaksdósir og um 30 kg af
nautakjöti.
Fjórir skipverjar viðurkenndu að
eiga varninginn en fimm menn
verða trúlega kærðir í málinu.
Þetta er í annað skiptið á fjórum
mánuðum sem smyglvarningur er
tekinn af skipverjum á m/s Detti-
fossi í Grundartangahöfn.
Smygl á
Grundartanga
FRUMVARP iðnaðarráð-
herra að nýjum vatnalögum
var samþykkt sem lög frá Al-
þingi síðdegis í gær. Alls
greiddu 26 þingmenn atkvæði
með frumvarpinu, 19 á móti
og 18 voru fjarstaddir.
Með atkvæðagreiðslunni
lýkur umræðum um málið, en
þær hafa alls staðið í um 50
klukkustundir á fundum Al-
þingis undanfarna daga.
Lögin taka gildi 1. nóvem-
ber 2007 samkvæmt tillögu
sem meirihluti iðnaðarnefnd-
ar gerði fyrir aðra umræðu
frumvarpsins en í upphaf-
legri útgáfu var gert ráð fyr-
ir því að lögin tækju strax
gildi.
Vatnalög
samþykkt
á Alþingi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær 19 ára pilt í eins árs
fangelsi fyrir að ræna pitsusendil við
Hvassaleiti í fyrrasumar. Ræninginn
var með hettu fyrir andliti og ógnaði
sendlinum með dúkahníf og hafði 5
þúsund krónur upp úr krafsinu.
Ákærði játaði sök og sagðist hafa
verið nýbyrjaður aftur í fíkniefna-
neyslu að lokinni meðferð þegar
hann framdi ránið. Þegar hann vant-
aði peninga fékk hann þá hugmynd
að ræna pitsusendil og hringdi því í
Dominos og sat fyrir sendlinum.
Auk peninganna, sem hann eyddi í
áfengi, stal hann farsíma af sendl-
inum og peningatösku.
Dómurinn tók tillit til þess að
ákærði hafði ekki brotið hegning-
arlög áður. Þar sem hann væri ung-
ur að árum og hefði markvisst reynt
að bæta ráð sitt fékk hann refs-
inguna á skilorði.
Ingveldur Einarsdóttir héraðs-
dómari dæmdi. Verjandi var Hilmar
Ingimundarson hrl. og sækjandi Sig-
ríður Elsa Kjartansdóttir, fulltrúi
lögreglustjórans í Reykjavík.
Eins árs fangelsi
fyrir að ræna
pitsusendil