Morgunblaðið - 17.03.2006, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Með fingurna
í efninu
á morgun
„ÞETTA er búið að vera æv-
intýri,“ sagði Sigurður R Gunn-
arsson, hafnarvörður á Rifi,
spurður um aflabrögð. „Dragnót-
bátarnir hafa verið að mokfiska
að undanförnu,“ sagði Sigurður,
„bátarnir hafa verið að koma með
allt að 27 tonn að landi yfir dag-
inn, einnig hafa netabátar verið
að gera það gott ásamt línubát-
um. Það eru allir að fiska.“
Sigurður sagði að þetta væri
mikil breyting frá síðasta ári. Í
mars í fyrra hefðu komið 792
tonn á land fyrsta hálfa mánuðinn
en í ár hafa bátarnir fært 1.332
tonn að landi. Tók Sigurður sem
dæmi að dragnótabáturinn Esjar
hefði fengið 38 tonn fyrstu tvær
vikurnar í fyrra en nú væri hann
kominn með 131 tonn.
Í sama streng tók Pétur Boga-
son hafnarvörður í Ólafsvík.
„Þetta er bara mokstur og í öll
veiðarfæri, ég man ekki eftir
svona miklum aflabrögðum í jan-
úar og febrúar síðan ég kom til
Ólafsvíkur fyrir 40 árum,“ sagði
Pétur og sagði hann að gamlir
menn hefðu sömu sögu að segja.
Síðastliðinn þriðjudag komu
219 tonn að landi í Ólafsvík, af 19
bátum og þar af voru 8 smábátar,
samkvæmt upplýsingum Péturs
sem sagði að menn væru þegar
farnir að hægja á því flestir bát-
arnir væru langt komnir með
kvótann og erfitt að fá leigu-
kvóta.
Tíðarfar hefur verið erfitt fyrir
smærri bátana en þegar gefið
hefur á sjó eru þeir að fá fínan
afla. Anton Ragnarsson, skipstjóri
á Esjari SH frá Rifi, var að von-
um ánægður með aflabrögðin að
undanförnu. „Við höfum verið að
fá þetta 10 til 22 tonn eftir dag-
inn. Það er mokafli alstaðar og er
þetta fínn fiskur, um 30% aflans
eru ýsa og hitt vænn þorskur. Við
erum að fá ágætis verð fyrir fisk-
inn á markaðinum. Það er fiskur
úti um allan sjó, það liggur við að
það sé sama hvar nótinni er dýft
niður, það er alstaðar fiskur,“ seg-
ir Anton.
Brynjar Kristmundsson, skip-
stjóri á Steinunni SH frá Ólafsvík,
brosti sínu breiðasta er þeir fé-
lagar voru að landa 33 tonnum
eftir daginn. „Blessaður vertu,“
sagði Brynjar spurður um gang
mála, „það er mokfiskur út um
allt, fiskurinn er í miklu æti hér,
hann liggur í síld og loðnu, svo
það er nógu af að taka. Bátarnir
gætu verið að koma að landi með
fullfermi ef þeir kærðu sig um, en
það er svo lítill kvóti að menn
verða að fara sparlega og hægja
á sér. Ég held að við séum komn-
ir með um190 tonn í þessum mán-
uði. Ég á samt ekki von á því að
við náum sama afla og í mars í
fyrra en þá vorum við með 452
tonn, en það er þó aldrei að vita,
mánuðurinn er þó ekki nema rétt
hálfnaður,“ sagði Brynjar.
„Mokstur í öll veiðarfæri“
Allt fullt Davíð Óli Axelsson, hendir þorski upp á bryggjuna enda voru öll
ker orðin full á Esjari. Sjómennirnir á Esjari eru ánægðir með aflabrögðin.
Morgunblaðið/Alfons
Bræður Sumarliði og Óðinn Kristmundssynir landa úr Steinunni SH í
Ólafsvíkurhöfn en báturinn er einn af aflahæstu dragnótabátum landsins.
Eftir Alfons Finnsson
Allir eru að fiska
við Snæfellsnes
ÚR VERINU
SIGURJÓN Þórðarson, þingmaður
Frjálslynda flokksins, spurði dóms-
málaráðherra í gær hvort hann ætlaði
að axla pólitíska ábyrgð í Baugsmál-
inu í ljósi sýknudómsins í héraðsdómi
og ummæla sem ráðherra hefði við-
haft um málið á heimasíðu sinni.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra sagði að ræða Sigurjóns hefði
verið fyrir neðan virðingu Alþingis.
Sagðist Björn ekki hafa fjallað um
Baugsmálið á vefsíðu sinni og myndi
ekki gera það í sölum þingsins.
Sigurjón sagði nauðsynlegt að
rannsaka upphaf Baugsmálsins og
hvað hratt því af stað. Hann gerði
kostnað við málið einnig að umfjöll-
unarefni. Sagði Sigurjón að viðbrögð
dómsmálaráðherra hefðu væntanlega
orðið með öðrum hætti ef dómur hefði
fallið á annan veg, jafnvel hefðu kveð-
ið við siguróp á heimasíðu dómsmála-
ráðherra.
Lúðvík Bergvinsson, þingmaður
Samfylkingar, sagði að málið væri
mjög athyglisvert og hefði haft mikil
áhrif í þjóðfélaginu. Sagði Lúðvík að
sýknudómurinn hefði verið áfall fyrir
ákæruvaldið og burðarvitni þess máls
virðist ekki hafa staðið undir vænt-
ingum sem ákæruvaldið gerði til þess.
Lúðvík sagði mikilvægt, að þær
miklu ásakanir, sem liggi í loftinu og
sakborningar hafi velt upp um tilurð
málsins, fái einhverja skoðun. Þá virt-
ist það embætti, sem rak málið, ekki í
stakk búið til að fjalla um stór mál.
Sagði Lúðvík að trúverðugleiki
byggðist að miklu leyti á því að eft-
irlitsstofnanir gætu tekist á við stór
mál. Hvatti Lúðvík síðan til þess að
fram færi opinber skoðun á málinu
öllu.
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, sagði að Íslendingum bæri
að taka alvarlega þau varnaðarorð og
ábendingar sem borist hefðu erlendis
frá, um að efla beri þá starfsemi innan
lögreglunnar sem snýr að efnahags-
brotum.
Ráðherra spurður um
Baugsmálið á þingi
ÍSLAND Panorama nefnast grasrót-
arsamtök sem stofnuð verða á morg-
un, laugardag, í Norræna húsinu, kl.
14, en hlutverk þeirra verður að
standa vörð um fjölbreytni og vinna
gegn mismunun. Hafa þau það að
markmiði að beita sér í baráttunni
gegn fordómum, útlendingafælni og
-hatri og hvers konar mismunun á
grundvelli trúar, útlits eða uppruna.
Samtökin munu einbeita sér að því
að auka skilning og efla gagnkvæma
virðingu milli fólks af ólíkum upp-
runa hér á landi og eru þau opin öll-
um þeim sem hafa áhuga á málefninu
og hafa löngun og vilja til að vinna að
þessum markmiðum. Samtökin eru
óháð öllum stjórnmálaflokkum og
-stefnum.
Gagnkvæm virðing mikilvæg
Akeem Oppong, einn af stofn-
endum Ísland Panorama, er fæddur í
Ghana. Hann hefur búið hér á landi í
ellefu ár og unnið árum saman með
unglingum og í félagsmálum sem
tengjast m.a. fjölmenningu. Segir
hann Ísland Panorama vera afurð
sex mánaða undirbúningsvinnu.
„Með stofnun þessara samtaka vilj-
um við reyna að koma í veg fyrir alls
konar misskilning og leiðindi sem
geta komið upp í samfélaginu vegna
þeirra breytinga sem fylgja fjöl-
menningarsamfélaginu,“ segir
Akeem. „Við viljum læra á því sem
hefur gerst hér á Norðurlöndunum
og víðar í Evrópu, forðast það sem á
að forðast og bæta það sem þarf að
bæta.“
Akeem segir mismunun vera veru-
leika hér á landi, en hún sé gjarnan
falin og dulin. „Það er hættuleg mis-
munun, því það er dulin mismunun
sem kemur í veg fyrir að fólk kynnist
hvað öðru og geti lifað í samlyndi í
samfélaginu,“ segir Akeem. „Ég hef
oft sagt að fyrst og fremst þurfi sá
sem er að fara til nýs lands að gera
sér grein fyrir að hann er að fara í
nýtt land með nýrri menningu og þar
þarf að ríkja gagnkvæm virðing. Ís-
land Panorama er m.a. ætlað að að-
stoða þá sem koma hingað til lands að
átta sig á mörkum samfélagsins og
veita þeim upplýsingar og fræðslu og
ekki síður að upplýsa Íslendinga
sjálfa um mismunandi menningar-
heima.“
Stofna samtök gegn mismunun
Morgunblaðið/Kristinn
Akeem Oppong fræðir nemendur 9. bekkjar Húsaskóla um ólíka menning-
arheima á lifandi bókasafni sem boðið var upp á fyrir nokkru.
Heimur hönnunar