Morgunblaðið - 17.03.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 21
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
Seyðisfjörður | Vinnustofa á vegum
Listaháskóla Íslands og Dieter Roth
Akademíunnar stendur nú yfir í
Menningarmiðstöðinni Skaftfelli á
Seyðisfirði.
Þátttakendur vinnustofunnar eru
útskriftarnemendur frá myndlistar-
deild LHÍ og fjórir erlendir listnem-
ar frá Austurríki, Eistlandi, Dan-
mörku og Skotlandi. Öll eru þau nýir
meðlimir Dieter Roth Akademíunn-
ar og er leiðbeinandi námskeiðsins
prófessorinn og myndlistarmaður-
inn Björn Roth. Hópurinn mun setja
upp sýninguna Sleikjótindar (Lolli-
tops) í Skaftfelli og verður sýningin
formlega opnuð 18. mars kl. 16 og
stendur til 29. apríl nk.
Þetta er í sjötta skipti sem vinnu-
stofa af þessari gerð er á Seyðisfirði
og hafa listamennirnir notið stuðn-
ings íbúa og fyrirtækja bæjarins við
gerð verka sinna. Listamennirnir
sem nú vinna í Skaftfelli eru þau Eva
Thebert-Khaliba, Guðmundur Arnar
Guðmundsson, Gunnar Helgi Guð-
jónsson, Jeannette Castioni, Júlía
Embla Katrínardóttir, Kjartan Sig-
tryggsson, Leen Vörno, Martine
Sepstrup Jensen, Mhari Baxter og
Soffía Guðrún Jóhannsdóttir.
Garfað í listinni Útskriftarnemar í
Listaháskóla Íslands undirbúa sýn-
ingu í Skaftfelli á Seyðisfirði.
Sleikjó-
tindar í
Skaftfelli
Egilsstaðir | Nú er undirbúningur
elstu djasshátíðar landsins í fullum
gangi. Að sögn
Jóns Hilmars
Kárasonar,
framkvæmda-
stjóra hátíð-
arinnar, fer hún
fram dagana 21.
til 24. júní nk. og
er það í 19. skipti
sem hátíðin er
haldin.
„Fram að
þessu hefur
djassgúrúinn Árni Ísleifs verið við
stjórnvölinn, en eftir síðustu hátíð
ákvað Árni að hætta afskiptum af
hátíðinni, enda unnið glæsilegt og
merkilegt starf og hefur hann skap-
að hátíðinni nafn og virðingu innan
tónlistarheimsins,“ segir Jón Hilm-
ar.
Noregsdjass sterkur inn
„Vinna hófst þegar við að finna
hátíðinni farveg án Árna og var
stofnaður Djassklúbbur Austur-
lands sem sjá mun um Djasshátíð
Egilsstaða á Austurlandi. Ákveðið
var að halda áfram því sem Árni
byrjaði á í fyrra, en það var að fara
með djasshátíðina víðar um Austur-
land. Nú er það svo að hátíðin verð-
ur haldin á tveimur stöðum auk Eg-
ilsstaða; á Seyðisfirði og á Norðfirði
í Fjarðabyggð. Markmið hátíð-
arinnar í ár er eins og áður að hafa
metnaðarfulla dagskrá; djasstónlist
við sem flestra
hæfi.“
Jón Hilmar var
ráðinn fram-
kvæmdastjóri á
dögunum, en í sam-
starfshópi hátíð-
arinnar eru auk
Jóns þau Kristín
Scheving, Karen
Erla Erlingsdóttir
og Einar Bragi Bragason. Einnig
var verið að leggja lokahönd á nýtt
lógó og innan
skamms lítur
heimasíða hátíð-
arinnar, www.jea-
.is, dagsins ljós.
Jón Hilmar seg-
ir dagskrána enn í
mótun og mörg
járn í eldinum en
meðal þeirra lista-
manna sem fram
komi á hátíðinni verði tvær hljóm-
sveitir frá Noregi sem þeir Jón
Hilmar og Einar Bragi sáu í heim-
sókn sinni til Sortland Jazzfestival
sl. haust. „Með þeirri heimsókn
hófst samstarf milli hátíðanna og
koma sveitirnar sem liður í þessu
samstarfi,“ segir Jón Hilmar. „Önn-
ur sveitin kemur frá Sortland Jazz-
og viseklubb en það er hljómsveit
þeirra er halda Sortland Jazzfest-
ival. Þess má einnig geta að hátíðin
þeirra er jafngömul hátíðinni okk-
ar. Hin hljómsveitin er Bodö
Rythm Group en það eru drengir
frá Bodö sem hafa innanborðs
reynda og stórsnjalla spilara.
Viðræður eru einnig hafnar við
aðalnúmer hátíðarinnar sem
verður vonandi kynnt fljótlega.
Þá munu íslenskir tónlist-
armenn skipa veglegan sess á
hátíðinni sem og áður. Dag-
skráin verður því kynnt fljót-
lega og spennandi að sjá hvern-
ig hún mun líta út.“ Jón Hilmar
lofar að allir muni finna eitthvað
við sitt hæfi.
Djassklúbbur Austurlands heldur merki Árna Ísleifs á lofti og skipuleggur elstu djasshátíð landsins
Djasshátíð Egilsstaða í skipulagssveiflu
Jón Hilmar
Kárason
Iðnþing 2006
föstudaginn 17. mars
á Hótel Loftleiðum
Nýsköpun
í hnatt-
væddum
heimi
Framtíðarsýn
fyrir atvinnulífið
Vilmundur Jósefsson
formaður
Samtaka iðnaðarins
Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra
Hans Skov Christensen
framkvæmdastjóri
Dansk Industri
Pallborðsumræður
um framtíðarsýn,
atvinnustefnu, hnatt-
væðingu, gjaldmiðla
og Evrópumál
Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðar- og
viðskiptaráðherra
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
Sími 591 0100 - Fax 591 0101
mottaka@si.is - www.si.is
Nánari upplýsingar og skráning á www.si.is
Dagskráin, sem hefst stundvíslega kl. 13:00
í sal-1 á Hótel Loftleiðum, er öllum opin og
aðgangur ókeypis, en tekið er við skráningum
á www.si.is. Ráðstefnulok eru áætluð um
kl. 16:00.