Morgunblaðið - 17.03.2006, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505.
Opið virka daga 10-18,
laugardaga kl. 10-16.
NÝTT KORTATÍMABIL
Samkvæmisklæðnaður
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Góður próteingjafi fyrir unga sem aldna.
Wheat grass
ÓRAUNSÆ óskhyggjutillaga, seg-
ir Eiríkur Jónsson verkfræðingur
um skipulagstillögu vegna endur-
skoðunar á aðalskipulagi Akureyr-
arbæjar, en hann fjallaði um
miðbæinn á fundi sem efnt var til
um tillöguna og það sem að mið-
bænum snýr. „Og eftir því sem ég
skoða hana betur þá sannfærist ég
um að í henni felast líka hættu-
legar gildrur sem ég tel talsvert
miklar líkur á að lent verði í, fái til-
lagan að standa eins og hún er sett
fram.“
Akureyrarbær hefur auglýst eft-
ir fjárfestum og byggingarverktök-
um til að taka að sér uppbyggingu
samkvæmt nýju miðbæjarskipu-
lagi, um er að ræða fimm bygging-
arreiti á svæðinu frá samkomuhúsi
og norður eftir að Sjallareit svo-
nefndum. Fram kemur að það sé
ásetningur bæjaryfirvalda að mið-
bærinn verði þungamiðja mannlífs
og menningar í bænum, en áhuga-
sömum er boðið að leggja fram
hugmyndir um uppbyggingu reit-
anna og samið verður við þá sem
skila inn áhugaverðustu tillögunum
að því er fram kemur í áðurnefndri
auglýsingu.
Eiríkur bendir á að svo virðist
sem byggja eigi á stærstum hluta
núverandi bílastæða á miðbæjar-
svæðinu og leysa bílastæðaþörf
með bílakjöllurum. Lauslega megi
áætla segir hann að ef gerður yrði
samfelldur bílakjallari undir öllum
Sjallareitnum og að Glerárgötureit
nyrðri og syðri sem svo nefnast
gætu rúmast þar allt að 300 bíla-
stæði. Kostnaður við gerð þeirra
yrði a.m.k. einn til einn og hálfur
milljarður króna. Með slíkum kjall-
ara yrði þó alls ekki fullnægt lág-
marksþörf stæða fyrir þær 300–
400 nýju íbúðir sem áformað er að
reisa á miðbæjarsvæðinu. Þá geri
menn sér vonir um að atvinnuhús-
næði muni aukast á svæðinu, um
allt að 16 þúsund fermetrum, og
eftir er að uppfylla bílastæðaþörf
atvinnustarfseminnar. Nú sé bíla-
stæðakrafa sett niður í eitt stæði
fyrir hverja 75 fermetra atvinnu-
húsnæðis og eitt stæði fyrir hverja
íbúð óháð stærð.
Nefnir Eiríkur að finna megi vís-
bendingu um í deiliskipulagi að
ekki sé unnt að uppfylla þessa lág-
markskröfu, því verði mætt með
greiðslum húsbyggjenda til bæjar-
ins fyrir gerð almennra bílastæða
annars staðar. Lítið sé hins vegar
um slík svæði segir Eiríkur.
Engin ástæða til að fjölga
íbúðum á miðsvæði miðbæjar
Hann telur ekki nokkra ástæðu
til að fjölga íbúðum á miðsvæði
miðbæjarins, þar eigi að leggja
áherslu á þjónustustarfsemi. Þjón-
ustukjarnar eins og miðbærinn
þurfi að uppfylla tvö skilyrði til að
þrífast; fjölbreytt framboð á þjón-
ustu á litlu svæði og samgöngu-
kerfi fyrir notendur og veitendur
þjónustunnar. Einkabíllinn sé og
verði áfram samgöngutæki fjöld-
ans. „Ef bílnum verður ekki komið
við til ferða að miðbænum vegna
skorts á bílastæðum byggjast upp
kjarnar annars staðar, sem hafa
hvort tveggja, bílastæði og fjöl-
breytta þjónustu,“ segir Eiríkur.
Verkfræðingur um skipulagstillögu vegna miðbæjar Akureyrar
Óraunsæis-
leg tillaga
Morgunblaðið/Eiríkur Jónsson
Miðbær Akureyrar Auglýst hefur verið eftir tillögum fjárfesta og bygging-
arverktaka um uppbyggingu á fimm reitum sem fyrirhugað er að byggja á
í miðbænum og hafa nokkrir þegar sýnt áhuga. Aðrir óttast að skortur
verði á bílstæðum þegar búið verður að byggja á öllum þeim svæðum sem
nú eru nýtt undir bílastæði.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
FRESTUR til að skila inn at-
hugasemdum við endurskoðað
aðalskipulag Akureyrarbæjar
sem gilda á til ársins 2018
rennur út í dag kl. 16. Fjöl-
margar athugasemdir hafa
þegar borist að sögn Finns
Birgissonar hjá skipulagsdeild
Akureyrarbæjar, en tölur um
fjölda munu ekki liggja fyrir
fyrr en eftir helgi.
Langflestar beinast athuga-
semdirnar að tengibrautum,
en miklar umræður hafa verið
í bænum að undanförnu um
tvær slíkar, Dalsbraut og Mið-
húsabraut. Bæjarstjórn sam-
þykkti í fyrrasumar að falla
frá áformum um áframhald-
andi lagningu Dalsbrautar frá
Þingvallastræti og suður í
Naustahverfi. Umferð hefur
aukist mjög að undanförnu um
Mýrarveg og Þórunnarstræti
og hafa menn lýst áhyggjum
vegna þess. Í gangi er undir-
skriftalisti sem skilað verður
til bæjaryfirvalda í dag þar
sem harðlega er mótmælt
þeim áformum að fella Dals-
braut út úr skipulagi. Þá geng-
ur einnig listi þar sem því er
mótmælt að Miðhúsabraut
verði færð upp fyrir mjólkur-
samlag. Foreldrafélag Brekku-
skóla hyggst afhenda undir-
skriftalista einnig í dag og
gera athugasemdir við aðal-
skipulagið og loks má nefna
lista sem liggur frammi þar
sem yfirvöld eru hvött til að
breyta landnotkun á Akureyr-
arvelli frá því sem tilgreint er í
endurskoðuðu aðalskipulagi,
þ.e. að þar verði ekki aðeins
íbúðabyggð og fjölskyldugarð-
ur heldur verði opnað fyrir
blandaða starfsemi.
Fjölmarg-
ar athuga-
semdir
hafa borist
Tillaga að endurskoð-
uðu aðalskipulagi
MÓT fjögurra karlakóra verður
haldið í Glerárkirkju á morgun,
laugardaginn 18. mars, kl. 15.
Hugmyndin kviknaði hjá Snorra
Guðvarðarsyni, formanni Karla-
kórs Akureyrar-Geysis á liðnu
hausti þegar landsmót karlakóra
var haldið í Hafnarfirði. Nokkrir
kórar urðu veðurtepptir heima,
Siglfirðingar og Egilsstaðabúar
voru á meðal þeirra sem sitja
þurftu heima. Með mótinu á Ak-
ureyri er ætlunin að bæta það að
nokkru leyti upp.
Yfirskrift mótsins er; Hæ, tröll-
um á meðan við tórum, en dag-
skráin er með þeim hætti að hver
kór flytur stutta efnisskrá og síðan
sameinast karlarnir í kórunum fjór-
um í sameiginlegan söng, syngja
nokkrar helstu perlur íslenskra
karlakórsbókmennta. Alls verða
flutt 35 kórlög, þar af 7 af kórunum
sameiginlega. Þá munu tenórarnir
Ari Jóhann Sigurðsson og Þorkell
Pálsson flytja dúett og sá síðar-
nefndi einnig einsöng. Píanistinn
Aladar Rácz leikur einnig einleik.
Karlakórarnir sem fram koma
eru Drífandi frá Egilsstöðum og
Þrestir úr Hafnarfirði, Karlakór
Siglufjarðar og Karlakór Akureyr-
ar-Geysir.
Hæ, tröllum á meðan við tórum
Hraðskák | Rúnar Sigurpálsson
sigraði örugglega á hraðskákmóti
Akureyrar sem lauk nýlega, en hann
hlaut 16,5 v. af 17.
Í 2. sæti varð Kazimers Olzininsky
með 15 v. og í 3.–4. sæti urðu þeir
Ágúst Bragi Björnsson og Tómas
Veigar Sigurðarson með 13,5 v. en
Ágúst hafði betur í einvígi 2-0 um
verðlaun. Efstur af unglingum varð
Ólafur Ólafsson með 2,5 v.
HRÓKURINN og Landsvirkjun
hafa tekið höndum saman til að út-
breiða skáklistina um allt Ísland.
Skákhátíðir verða haldnar á Akur-
eyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Selfossi
og í Reykjavík.
Fyrsta hátíðin fer fram á Akureyri
nú á laugardag, 18. mars. Þá munu
Skákfélag Akureyrar og Skákfélagið
Hrókurinn standa fyrir skákmóti í
KEA salnum, í verslunarmiðstöðinni
í Sunnuhlíð. Mótið er fyrir alla
krakka á grunnskólaaldri. Teflt
verður í einum opnum flokki en verð-
launað í eftirtöldum þremur flokk-
um: 1. til 3. bekk, 4. til 6. bekk og 7.
til 10. bekk.
Glæsileg verðlaun eru í boði. Í lok
móts fá svo allir krakkar veitingar.
Mótið hefst kl. 13, en mæting er á
milli kl. 12 og 12.45. Skráning er á
staðnum.
Jafnframt munu liðsmenn Hróks-
ins færa öllum 3. bekkingum á Norð-
urlandi bókina Skák og mát í sam-
starfi við Eddu og Olís.
Breiða út
skák-
listina
SKÍÐASVÆÐIÐ í Hlíðarfjalli hefur
verið opið í 45 daga í vetur og um
12.000 gestir hafa mætt á svæðið. Að
sögn forráðamanns svæðisins er það
mjög gott, sérstaklega í ljósi þess að
nýliðnir janúar og febrúar voru hlýj-
ustu og vætusömustu í manna minn-
um.
Í vikunni skrifaði Akureyrarbær
undir samning við hóp fyrirtækja
sem skuldbindur þau til þess að
leggja fram um 20 milljónir til snjó-
framleiðslu á næstu fimm árum.
„Staðreyndin er sú að ef snjófram-
leiðslukerfið væri ekki til staðar þá
væri skíðasvæðið búið að vera lokað
síðan um jól. Með framleiðslu á snjó
er einnig búið að tryggja að Andrés-
ar Andarleikarnir verða haldnir á
sumardaginn fyrsta um ókomna
tíð,“ segir í frétt frá Akureyrarbæ.
Meðalhitastig við snjóframleiðsl-
una í vetur hefur verið -5,8 gráður
og rakastigið hefur verið 75,5%. Nú
er búið að framleiða snjó í rúmlega
380 klukkustundir og er afrakst-
urinn um 30.000 rúmmetrar af snjó;
skothríð eins og Morgunblaðið hefur
kallað afurðina.
Vinir Hlíðarfjalls
„Vinir Hlíðarfjalls er hópur fyr-
irtækja sem öll eru leiðandi í ís-
lensku atvinnulífi. Þau tóku höndum
saman í kjölfar umræðna um snjó-
framleiðslu og möguleika og hafa
skuldbundið sig til þess að leggja
fram um 20 milljónir króna til snjó-
framleiðslunnar í Hlíðarfjalli á
næstu fimm árum. Þau vilja með
samstarfssamningnum renna styrk-
um stoðum undir rekstur skíðasvæð-
isins í Hlíðarfjalli og efla þar með
ferða- og atvinnumál á Akureyri.
Samhliða gefst þessum fyrirtækjum
kostur á að nýta sér sóknarfæri
gagnvart aukinni ferðaþjónustu sem
á eftir að dafna í kjölfarið. Sem
dæmi má nefna að með snjófram-
leiðslunni er kominn grunnur á að
skíðasvæðið geti verið opið um jól og
áramót, sem eru nýir og góðir ferða-
mannamöguleikar,“ segir í frétt frá
bænum.
Vinir Hlíðarfjalls eru: Avion Gro-
up, Baugur Group, Flugfélag Ís-
lands, Glitnir, Greifinn, Höldur –
Bílaleiga Akureyrar, Icelandair
Group, ISS Ísland, KEA, Landsbank-
inn, SBA-Norðurleið og Sjóvá.
Vinir Hlíðarfjalls láta 20 milljónir króna af hendi
rakna til snjóframleiðslu á næstu fimm árum
Skothríðin gjörbreytir aðstöðunni
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri, í forgrunni, þakkar fulltrúum Vina Hlíðarfjalls eftir undirskrift samningsins.