Morgunblaðið - 17.03.2006, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 17.03.2006, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 29 MENNING Á MORGUN verður opnuð sam- sýning þriggja listamanna í Gerð- arsafni í Kópavogi. Listamennirnir þrír eru Rúrí, Þór Vigfússon og finnska listakonan Elina Broth- erus. Sýningin ber heitið Tær- leikar en tærleiki og skerpa í framsetningu einkenna verk þess- ara þriggja listamanna. Þór Vigfússon hefur starfað að myndlist í þrjá áratugi og haldið fjölda sýninga. Verk hans á sýn- ingunni eru unnin í gler. „Þetta eru verk eins og ég hef verið að vinna undanfarin ár, í gler með innbrenndum lit. Tærleikar hljóm- ar vel við það sem ég er að gera enda er gler glært efni,“ segir Þór. Verkin á sýningunni spegla margvíslega þætti samtímans og kallast á við umhverfið og segir Þór sín verk gera það með því að vera til. „Þau eru náttúrulega hluti af samtímanum með því að vera til, það er alltaf speglun í glerinu og því er ég hrifinn af, en þetta er ekki samfélagsspegill.“ Framhald af Feneyjaverkinu Þór segist ekki geta sagt af hverju þau þrjú voru fengin til að sýna saman en segir þau þó eiga vissa samleið í listinni og samsýn- ing hafi staðið til nokkuð lengi. „Ég þekki Elinu Brotherus ágæt- lega og hef séð verk hennar í gegnum tíðina, þetta er flott lista- kona en ég hef ekki sýnt með henni áður,“ segir Þór sem hefur áður haldið nokkrar sýningar með Rúrí. Þrátt fyrir að Tærleikar sé sam- sýning sýnir hver listamaður í sín- um sal. Verk Þórs, Rúríar og El- inu þykja hafa marga snertifleti þótt þau séu unnin í mismunandi efni og með ólíkum aðferðum. Verk Rúríar á sýningunni eru í beinu framhaldi af Feneyjaverk- inu, Archive – endangered water, frá 2003 sem vakti mikla athygli. Þessi verk eru nú sýnd í fyrsta sinn á Íslandi eftir að hafa verið á mörgum sýningum erlendis. Elin Brotherus er meðal virt- ustu listamanna Finna af yngri kynslóðinni, hún er þekkt fyrir ljósmyndaverk sem oft hafa sjálfs- ævisögulega skírskotun. Sýningin Tærleikar verður opn- uð á morgun, 18. mars, kl. 15.00 og stendur til sunnudagsins 23. apríl. Samsýning | Þrír listamenn fjalla um tærleikann í Gerðarsafni Tærleiki og skerpa ein- kenna verkin Rúrí sýnir verk sem eru í beinu framhaldi af verkinu, Archive – end- angered water, sem var sýnt á Feneyjatvíæringnum. Morgunblaðið/Ómar Elin Brotherus er þekkt fyrir ljósmyndaverk sem oft hafa sjálfsævi- sögulega skírskotun. Hún hefur áður sýnt á Íslandi í galleríinu i8. Þór Vigfússon sýnir verk unnin í gler. FÉLAG skólasafns- kennara tilnefnir Ás- laugu Jónsdóttur í ár til Norrænu barna- bókaverðlaunanna 2006 af Íslands hálfu. Áslaug er tilnefnd sem höfundur og myndlist- armaður fyrir bókina Gott kvöld sem út kom fyrir síðustu jól. Í bók- inni er sögð saga af ungum dreng sem bíð- ur einn og óttalaus heima stutta stund en bangsi hræðist allar þær furðuverur sem berja að dyrum. Unnið er að þýð- ingu bókarinnar á tvö erlend tungumál. „Áslaug sýnir enn á ný hve góður höfundur og myndlist- armaður hún er, en myndir og texti haldast í hendur og skapa í senn fallega og skemmtilega heild,“ segir í fréttatilkynningu frá Félagi skólasafnskennara. Af hálfu Dana er Josefine Otte- sen tilnefnd á ný fyrir bókaflokk um Krigeren, Finnar tilnefna Annika Luther fyrir bókina Ivoria, Norðmenn tefla fram Eirik Newth fyrir bókina Hvorfor dør vi?, og Svíar tilnefna Stefan Casta fyrir bók hans Näkterga- lens sång. Enginn er tilnefndur frá Færeyjum í ár. Norrænu barnabókaverðlaunin eru heiðursverðlaun sem samtök norrænna skólasafnakennara standa að. Þau hafa verið veitt um árabil og þrisvar fallið Íslandi í skaut;1992 hlaut Guðrún Helga- dóttir þau fyrir bókina Undan ill- gresinu, 2003 komu þau í hlut Kristínar Steinsdóttur fyrir bók- ina Engill í Vesturbænum, og 2005 hlaut Ragnheiður Gests- dóttir þau fyrir höfundarferil sinn með sérstakri áherslu á Sverðberann. Verðlaunin verða afhent á bókamessunni í Gautaborg nk. haust. Fulltrúi Íslands í dóm- nefndinni er Þóra Sjöfn Guð- mundsdóttir, skólasafnskennari í Langholtsskóla. Áslaug Jónsdóttir tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna Áslaug Jónsdóttir fylgir hverri OROBLU vöru Kaupauki Kynningar á n‡ju vorvörunum frá OROBLU Föstudag, 17. mars kl. 14-18 á Smáratorgi og í Lágmúla. Laugardag, 18. mars kl. 13-17 í Smáralind. Kynningar í Lyfju FJÖLSÓTTIR tónleikar til heiðurs Jóni Nordal fóru fram í Hafnarborg á sunnudagskvöld á vegum Tríós Reykjavíkur og Hafnarborgar í sam- vinnu við Tónskáldafélag Íslands. Sáust og kvikmyndatökumenn við tól sín á þrífæti, og mun Ari Alexander Ergis Magnússon þar hafa verið að taka upp heimildamynd. Líkt og á sinfónískum afmælistón- leikum Jóns þremur dögum áður voru hér fimm verk á boðstólum, en í þetta sinn flutt í réttri tilurðarröð. Spönn- uðu kammerverkin nokkru lengra tímabil en hljómsveitarverkin, því hið yngsta var frá 1998 og hið elzta allt frá 1944. Á því mikla örlagaári, þegar sýnt varð um úrslit seinni heimsstyrj- aldar um sama leyti og íslenzka lýð- veldið var stofnað, samdi Jón á 18. aldursári hið sjarmerandi þríþætta verk Systur í Garðshorni innblásið af samnefndri þjóðsögu; þjóðernisróm- antíska sónötu að öllu leyti nema að nafni til. Stokkið var síðan fram um hálfa stí- löld úr nærri griegslegri heiðríkju í hindemithleitt ferundalagferli hinnar átta árum yngri Sónötu fyrir fiðlu og píanó, þar sem bólaði ögn á Bartók í krefjandi lokaþættinum. Hvort tveggja var líflega leikið af þeim Guð- nýju Guðmundsdóttur og Peter Máté þrátt fyrir fáeina pínda hátíðnistaði í fiðlunni. Og þó að eðlilega væri þreif- að fyrir sér innan um fyrirmyndir miðevrópskra samtímastórskálda örl- aði þegar í frumsköpun unglings- áranna á ýmsum persónulegum fangamörkum. Þau eiginhandartjábrigði komu vit- anlega enn skýrar fram í síðustu þremur verkum kvöldsins, enda þá umliðin þrjátíu ár meðan tónskáldið beindi athyglinni að smíði hljómsveit- arverka. T.a.m. litauðugt hljómferlið, er birtist í furðuþykkri mynd úr að- eins tveimur strokhljóðfærum í Dú- óinu fyrir fiðlu og selló. Eða íhugul náttúrulýríkin í hinu fjórþætta Mynd- ir á þili fyrir selló og píanó, þó að spannaði annars með ólíkindum víð- feðmt andrúm – allt frá drungadimm- um hljómklasahöggum og gadd- köldum hjartapúlsi í þokkafulla kaffihúsadillu. Náttúrulýríkin færðist í æðsta skáldveldi í hinu kyrrlátt áhrifamikla en jafnframt formrænt kristalstæra lokaverki kvöldsins, Andað á sofinn streng fyrir píanótríó frá 1998. Þrátt fyrir á köflum ógnvænan undirtón leiddi verkið sterkast hugann að fimm strengja Eólusarhörpu í loftfingr- uðum meðförum vindaguðsins er fjar- aði út eins og lífið sjálft á diminuendo al niente. Hér var sem andagift tón- málsins tæki beinlínis völdin af flytj- endum, enda hefði mátt heyra marga saumnál detta í einbeittri upplifun hlustenda á þessu kortérslanga meistaraverki fyrir sannkallaða inn- blásna túlkun Tríós Reykjavíkur. Hinn íslenzki Eólus TÓNLIST Hafnarborg Jón Nordal: Systur í Garðshorni (1944); Fiðlusónata (1952); Dúó f. fiðlu og selló (1983); Myndir á þili (1992); Andað á sofinn streng (1998). Tríó Reykjavíkur (Guðný Guðmundsdóttir fiðla, Gunnar Kvaran selló og Peter Máté píanó). Sunnudaginn 12. marz kl. 20. Kammertónleikar Ríkarður Ö. Pálsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.