Morgunblaðið - 17.03.2006, Side 59

Morgunblaðið - 17.03.2006, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 59 MENNING SJÁLFSTÆÐU LEIKHÚSIN Sýningar á vegum aðildarfélaga Sjálfstæðu leikhúsanna vikuna 17.-24. mars: Hafnafjarðarleikhúsið S: 555 2222 Himnaríki Lau. 18 Draumasmiðjan - Viðtalið Fös. 17. / Sun. 19. / Fös. 24 Iðnó S: 562 9700 Skámáni - Ég er mín eigin kona Fös. 17. / lau. 18. / Fös. 24. Kláus - Ríta Sun. 19. / Fim. 23 Austurbær S: 551 4700 Ísmedía - Hafið bláa Sun. 19. Borgarleikhúsið S: 568 8000 List og fræðsla - Alveg brilljant skilnaður Fös. 24 Steypibaðsfélagið Stútur - Glæpur gegn Diskóinu Fös. 17. Fimbulvetur - Hungur Fös. 17. / Fim. 23./ Fös. 24 540 gólf - Naglinn Lau. 18. / Sun. 19. Vesturport - Woyzeck Fim. 23. Broadway S: 511 3300 Arnol.net - Nína og Geiri Fös. 17. / Lau. 18 Arnol.net - Le´sing Lau. 18. Kómedíuleikhúsið s: 891 7025 Dimmalimm Fös.17. Vinaminni./ Fim. 23. Brekkuborg og Furuborg Gísli Súrsson Fös. 17. Ingunnarskóli / Mán. 20. Breiðholtsskóli / Þri. 21. Korpuskóli / Mið. 22. Seljaskóli Möguleikhúsið S: 562 5060 Hattur og Fattur Fös.17. Suðurvöllum Sögusvuntan S: 865 5255 Egla í nýjum spegli Mán. 20. Norðlingaskóla. Stoppleikhópurinn S: 898 7205 Emma og Ófeigur Fim.23. Háskólinn í Reykjavík. Sigga og Skessan í fjallinu Fös. 24. Hlíðarenda. Fyrir árið 2006 sóttu atvinnuleikhópar um verkefnastyrki til Leiklistarráðs að upphæð kr. 364 millijónir til upp- setningar 84 verkefna. Meginreglan er að veita styrki sem nema helmingi uppsetningarkostnaðar, þannig að fjárþörfin er í raun tvöföld þessi upphæð, 728 milljónir. Þá var sótt um 761 mánuð í starfslaun en til ráðstöfunar eru 100 mánaðarlaun til leikhúslistamanna. Samanlagt er því sótt um rúmlega 523 milljónir króna í verkefnas- tyrki og starfslaun. Leiklistarráð hefur til ráðstöfunar fyrir árið 2006 47 milljónir. Þar af eru 17.5 milljónir bundnar í samstarfssamningi við Hafnarfjarðarleikhúsið. Því eru um 29.5 milljónir til ráðstöfunar til annarra atvinnuleikhópa en sú upphæð lækkaði um 2.5 milljónir milli ára. Fjárlaganefnd Alþingis sá ekki ástæðu til að hækka eða jafna framlagið til Starfsemi atvinnuleikhópa fyrir starfsárið 2006 þrátt fyrir að aðildarfélög SL þjóni rúmlega 200 þúsund áhorfendum á ári. www.leikhopar.is Þjóðleikhúsið og norskasendiráðið á Íslandistanda fyrir málþingi umPétur Gaut eftir Henrik Ibsen á morgun í tilefni þess að leik- húsið hefur tekið leikritið til sýninga við góðar undirtektir. Í ár er hundr- að ára ártíð Ibsens og er leikskálds- ins minnst á margvíslegan hátt víða um heim. Ennfremur eru um þessar mundir 130 ár liðin frá því að Pétur Gautur var frumsýndur. Málþingið nefnist Krossgötur og fer fram á morgun kl. 15 í Kass- anum, þar sem verkið er sýnt um þessar mundir. Mun Terje Mærli halda þar erindi, en hann er talinn einn af fremstu leikstjórum Norð- manna og hefur sett upp yfir 30 sýn- ingar á verkum Ibsens í ýmsum löndum. Að erindi hans loknu verður efnt til pallborðsumræðna með þátt- töku nokkurra aðstandenda sýning- arinnar í Þjóðleikhúsinu; Baltasars Kormáks leikstjóra, Karls Ágústs Úlfssonar þýðanda, Björns Hlyns Haraldssonar leikara, sem fer með hlutverk Péturs Gauts, og Gretars Reynissonar, höfundar leikmyndar. Melkorka Tekla Ólafsdóttir stýrir umræðum. Í samtali við Morgunblaðið segir Mærli Pétur Gaut vera uppáhalds- verk sitt eftir Ibsen. „Ég mun ræða þankagang Ibsens í Pétri Gaut í samhengi við önnur leikverk hans,“ segir hann. Uppáhaldsverkið Uppsetning Þjóðleikhússins á Pétri Gaut hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og sagði Þorgeir Tryggvason meðal annars í umfjöll- un sinni um sýninguna í Morg- unblaðinu að hann hefði „aldrei skil- ið hvernig hann nennti að skrifa stofudrömun sín eftir þetta marg- slungna og risavaxna leikljóð um flóttann frá og leitina að sjálfum sér.“ Aðspurður um þessa athugasemd hlær Mærli og segist skilja rök- semdafærsluna, því Pétur Gautur sé einnig að hans mati meistaraverk, sem taki á mörgum hlutum. „Það er uppáhaldsverkið mitt af öllum verk- um Ibsens, það get ég fullyrt,“ segir hann. „Pétur Gautur er eitt mann- legasta leikritið sem Ibsen samdi og við elskum Pétur einmitt vegna þess hve mannlegur hann er í öllum sín- um gjörðum – hann forðast að taka ákvarðanir og flýtur með straumi lífsins og það er einmitt það sem gerir hann svo mannlegan. Næstum allar aðrar persónur Ibsens velja að synda á móti straumnum og setja sér hærri markmið en bara að hrær- ast í lífinu.“ Hann bendir ennfremur á að ann- að sem einkenni Pétur sé að hann geri ekki alltaf það sem maður „ætti“ að gera og það gæti átt þátt í vinsældum hans. „Mig grunar að einmitt það höfði til margra – því það langar flesta til að gera upp að vissu marki.“ Enginn rómantískur safngripur Mærli segist hafa heyrt vel látið af íslensku uppsetningunni og hlakka mikið til að sjá hana. „Ég hef sjálfur í tvígang sett Pétur Gaut upp og séð leikritið ótal sinnum og lesið, þannig að ég þekki efnið mjög vel. Það er alltaf ánægjulegt að sjá nýjar upp- setningar á þessu verki og ég hlakka mjög til að sjá það. Það út af fyrir sig væri næg ástæða til að ferðast til Ís- lands,“ segir hann. Sjálfur segist Mærli hafa reynt að nálgast Pétur Gaut á nútímalegan hátt í uppsetningum sínum, eða vona í það minnsta að svo hafi verið. „Annars væri varla grundvöllur fyr- ir því að setja hann upp, ef ekki væri litið á hann sem nútímamann! Leik- ritið sjálft er 8–10 tímar að lengd og í nútímaleikhúsi er nauðsynlegt að draga úr þeirri lengd. Eitt sinn byrj- aði ég sýninguna í 5. þætti og eitt sinn setti ég sýninguna upp með fimm leikurum í hlutverki Péturs,“ útskýrir hann. „En útgangspunktur minn hefur ætíð verið að Pétur væri nútímamaður. Það er nálgun sem ég held að flestir vilji reyna og ekki gera úr honum einhvers konar róm- antískan safngrip. Ég hef heyrt að sýningin hérna taki eins á mál- unum.“ Mærli hefur nokkrum sinnum heimsótt Ísland áður og þykir mikið til leikhússins hér koma. „Það er mjög spennandi leikhús í gangi á Ís- landi og í hvert sinn sem ég hef kom- ið þangað hef ég séð gott og um- hugsunarvert leikhús, sem ég hef notað síðar í hugmyndasmíð minni um leikhúsið,“ segir hann að síðustu. Leikhús | Málþing um Pétur Gaut í Kassanum á morgun með þátttöku Terje Mærli og aðstandenda sýningarinnar Hinn mannlegi Pétur Gautur Morgunblaðið/Sverrir „En útgangspunktur minn hefur ætíð verið að Pétur væri nútímamaður. Það er nálgun sem ég held að flestir vilji reyna, og ekki gera úr honum ein- hvers konar rómantískan safngrip,“ segir Terje Mærli. Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is Hún ristir náttúrulega ekki djúpt, þessi klisjulega saga um skemmti- kraftinn Delores sem snýr aftur til sinna fornu bjargvætta í nunnu- klaustrinu til að hjálpa þeim að skikka til hóp af óstýrlátum ung- mennum, og gerir þau á mettíma að fantagóðum kór, sem aftur bjargar skólanum úr höndum útsmoginna fjárplógsmanna sem vildu láta leggja hann niður. En auðvitað er þarna fallegur boðskapur fyrir þá sem nenna að leggja sig eftir honum, um gildi þess að leggja eitthvað á sig í samhljómi við samferðamenn sína. Nokkuð sem vinna við uppfærslu viðamikilla leiksýninga kennir áreið- anlega framhaldsskólanemum betur en margt annað sem þeim er sett fyrir. Þar með eru innihald verksins og raunveruleiki aðstandendanna í fallegri harmóníu. Reyndar er ómaksins vert að geta þess hve vel virðist að þessu söng- leikjastarfi staðið í Garðabænum. Gríðarmikill fjöldi leggur hönd á plóg, uppsetningin er áfangi sem gefur einingar og samhljómur leik- listar og skólastarfs virðist vera til fyrirmyndar. Það skemmir svo ekki hvað vel er vandað til verka á listræna sviðinu. Það er mín reynsla af fyrri heim- sóknum í hátíðarsal skólans og svo er einnig nú. Flottir dansar sem eru vel fléttaðir inn í verkið. Lýtalaus söngur og allskýr framburður á sniðugum söngtextum Guðna Kol- beinssonar. Og snörp, hröð og kraft- mikil sviðsetning hjá Erni Árnasyni. Atriðin renna hvert inn í annað, hóp- atriði bæði lífræn og öguð. Þá hefur Örn náð að leggja til grundvallar leikstíl þar sem allir njóta sín. Ein- faldur týpuleikur þar sem það á við, einlægni ef hennar er þörf. Sýningin vinnur með styrkleikum hópsins og sneiðir snyrtilega hjá óhjákvæmileg- um veikleikum sem nýgræðingum fylgir. Harla vel gert. Leikhópurinn vinnur saman sem smurð vél og á stærsta hrósið skilið sem heild. Auðvitað hvílir mikið á Emilíu Björgu Kofoed Hansen sem leikur Delores og hún gerir það vel, hefur bæði sviðssjarma og rödd til að skila verkefninu. Nunnurnar eru stórskemmtilegar, krakkahópurinn litríkur og önnur hlutverk vel leyst. EINS kjánalegt og það virðist í fyrstu að gera sviðsgerð af fram- haldsmynd sem vísar nokkuð stöð- ugt í fyrri myndina þá eru aðdrátt- arafl og kostir Sister Act 2 nokkuð augljósir fyrir þá sérstöku iðju sem framhaldsskólaleikhóparnir stunda hvað mest í dag. Myndin er fyndin, og ekki bara af því að Whoopi Gold- berg er sniðug, sagan er einföld og fjallar um unglinga og tónlist (já og nunnur) og gefur hópnum drjúg tækifæri til að blómstra í því sem einatt er helsti styrkur framhalds- skólahópa; söng og dansi. Enda er niðurstaðan hér aldeilis prýðileg sýning þrátt fyrir að einstaka atriði vísi í fyrri myndina og hefði mátt leggja meiri vinnu í að þurrka út. Rokk í klausturbænum LEIKLIST Leikfélag og nemendafélag Fjölbrautaskólans í Garðabæ Byggt á kvikmyndinni Sister Act 2. Leik- stjóri: Örn Árnason. Danshöfundur: Lovísa Ósk Gunnarsdóttir. Kórstjóri: Gróa Hreinsdóttir. Búningar: Guðlaug Erla Magnúsdóttir. Leikmynd: Helgi Hreinn Hjálmarsson. Fjölbrautaskólanum í Garðabæ 12. mars. SISTER ACT Þorgeir Tryggvason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.