Morgunblaðið - 17.03.2006, Side 63
eeee
„…listaverk,
sannkölluð perla“
DÖJ – kvikmyndir.com
Sími - 551 9000
Big Momma´s House 2 kl. 6.50, 9 og 11.10
Rent kl. 5.20 B.i. 14 ára
Capote kl. 5.30 og 8 B.i. 16 ára
Brokeback Mountain kl. 9 B.i. 12 ára
Constant Gardener kl. 10.20 B.i. 16 ára
HINSEGIN BÍÓDAGAR
Ferðalagið kl. 6
Siðari dagar kl. 8
Peter Berlin kl. 10
Vinsælasta myndin á Íslandi 2 vikur í röð
BEYONCÉ KNOWLES
STEVE
MARTINKEVIN
KLINE
JEAN
RENO
BESTA LEIKKONA
Í AUKAHLUTVERKI
RACHEL WEISZ
G.E. NFS
e e e
M.M.J. Kvikmyndir.com
e e e
S.K. DV
e e e
Ó.H.T Rás 2
e e e e
L.I.B. - topp5.is
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Bleiki demanturinn er
horfinn og heimsins
frægasta rannsóknarlögregla
gerir allt til þess að
klúðra málinu…
eeee
Topp5.is
eee
kvikmyndir.com
eee
A.B. Blaðið
eeee
S.K. / DV
kl. 10 Sýnd kl. 8
EIN ATHYGLISVERÐASTA
MYND ÁRSINS
SUM ERU
HÆTTULEGRI
EN ÖNNUR
ALLIR EIGA SÉR LEYNDARMÁL
Rolling Stone Magazine
Kvikmyndir.com
eeee
Roger Ebert
Empire Magazine
ee e
Topp5.is
eeee
GOYA VERÐLAUNIN
Besta Evrópska myndin
Scarlett Johansson
Jonathan Rhys Meyers
MATCH
POINT
Sími 553 2075 • www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 8 og 10:15
Ein besta mynd Woody allen
Sýnd kl. 4 og 6
TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
MARTIN LAWRENCE
Mamma allra grínmynda er mætt aftur í bíó!
FÓR BEINT Á TOPPIN Í BANDARÍKJNUM
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
18 krakkar. Foreldrarnir.
Það getur allt farið úrskeiðis.
Sýnd kl. 4 og 6
eee
S.V. Mbl.
200 kr. afsláttur
fyrir XY félaga
www.xy.is
ALLRA SÍÐASTA
SÝNINGARHELGI
eee
Kvikmyndir.com
eee
Topp5.is
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA SÝNUM VIÐ ÞESSA STÓRKOSTLEGU
VERÐLAUNAMYND AFTUR. EINGÖNGU UM HELGINA
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 63
TERRENCE Malick er sérstæður
og hugaður kvikmyndaleikstjóri og
handritshöfundur, sem leyfir sér að
nota allan þann tíma sem hann telur
sig þurfa til að vinna verkin sín. The
New World er aðeins fjórða myndin
frá því að frumraunin Badlands,
vakti óskipta athygli árið 1973.
The New World á ýmislegt sam-
eiginlegt með The Thin Red Line,
báðar átakamyndir með alvarlegan
boðskap örgrunnt undir fögru yf-
irborði. Ádeilur á lesti mannsins,
ekki síst hroka, græðgi og skamm-
sýni, undirstrikaðir með Paradís-
arlegu, óspilltu umhverfi. Í The New
World, stillir Malick að auki upp á
eftirminnilegan hátt, frumbyggj-
anum, náttúrubörnum Nýja heims-
ins, gegn siðmenntuðum útsend-
urum Gamla heimsins. Nostrið skilar
sér.
Þegar myndin hefst eru um 200 ár
liðin frá því að Columbus fann Am-
eríku og Englendingar eru farnir að
þreifa fyrir sér norðar í álfunni.
Nokkur skip undir stjórn Newports
skipstjóra (Plummer), leggjast fyrir
festar í árósum, þar sem nú er Virg-
iníufylki. Landið er ósnert af hvíta
manninum og verða báðir ámóta for-
viða, skipverjarnir og indíánarnir
þegar fundum þeirra ber fyrst sam-
an.
Til að byrja með eru indíánarnir
vinsamlegir í garð Englendinga, eða
allt þangað til að þeir gera sér ljóst
að hvítu mennirnir eru komnir til að
vera. Einn aðkomumanna, Smith
skipstjóri (Farrell), er valinn til að
hafa uppi á Powhatan, (Schellen-
berg), höfðingja ættbálksins sem rík-
ir á svæðinu. Eftir langt og strangt
ferðalag upp með ánni, nær hann
fundi höfðingjans og eftir margvísleg
átök fella þau hugi saman, sendiboð-
inn og Pocahontas (Kilcher), dóttir
Powhatans og augasteinn föður síns.
Svo fer að þau giftast að sið frum-
byggjanna, með vorinu snýr hann til
baka til nýlendunnar. Hún heldur á
eftir honum til stöðva hvítu mann-
anna, sem taka höfðingjadótturinni
vel. Smith hverfur á braut og hún
kynnist John Rolfe (Bale), sem vinn-
ur hjarta hennar um síðir og heldur
með Pocahontas til Gamla heimsins.
Upphafsatriðið er þrungið fegurð
og hreinleika óspilltrar náttúru og
huga frumbyggjana. Kvikmynda-
tökumaðurinn fangar ólýsanlega feg-
urð þessarar Paradísar sem byrjar
að líða undir lok um leið og fyrsti
skipverjinn stígur fæti á jörð. Smith
er undarlegur náungi sem virðist hrí-
fast af landi og þjóð en snýr auðveld-
lega við því baki þegar tækifæri
gefst til að kanna nýjar lendur. The
New World er byggð að nokkru leyti
á minningum þessa manns, sem
sagnfræðingar gruna um græsku
þegar kemur að sambandi hans við
Pocahontas (og Disney verksmiðjan
pakkaði fagurlega inn í teiknimynd).
Hvað satt er í þeim efnum er auka-
atriði, svik Smiths þjóna þeim til-
gangi einum í mynd Malicks að vera
hluti þeirrar ómennsku og græðgi
sem einkenna öll samskipti og virð-
ingarleysi hvíta mannsins gagnvart
Paradís og íbúum hennar. Þau end-
urspegla hegðun þjóða sem kalla sig
„siðmenntaðar“, gagnvart Þriðja
heiminum og umhverfinu, allt frá því
að við fórum að ná völdum á jarð-
arkringlunni.
Malick ber jafnóskoraða virðingu
fyrir trúarbrögðum og hugsunar-
hætti frumbyggjanna sem umhverf-
inu, myndin er áþekk kennslustund
The Thin Red Line, hvernig við höf-
um fjarlægst okkar innsta eðli og
virðingu fyrir sameign okkar, Móður
Jörð. Því verður fráfall Pocahontas
léttbærara, hún er horfin á vit feðra
sinna, sameinuð fegurðinni sem um-
lykur hana.
Hin unga og óreynda Q’orianka
Kilcher, er hrífandi í stóru og erfiðu
hlutverki Pocahontas (Malick er það
smekklegur að nota aldrei það nafn,
heldur Rebekka – það sem hvítu
mennirnir skírðu hana.) Kilcher var
„uppgötvuð“ í tengslum við gerð The
New World og verður hornsteinn
hennar. Farrell er mátulega skálks-
legur til að henta hlutverki Smiths
og Bale sýnir að hann getur einnig
túlkað „mjúka manninn“. Tónlist
Horners, krydduð tónum gömlu
meistaranna, og kvikmyndataka
Emmanuels Lubezki, lyfta The New
World upp yfir klisjurnar. Hún er
fjarri því að vera gallalaus, Malick er
einstrengingslegur í söguskoðun og
heimspekilegar vangaveltur persón-
anna, sem þær muldra ofan í barm-
inn, eru gróflega ofnotaðar. Myndin
er engu að síður sérstæð perla, sem
minnir okkur á að við erum geggj-
uðustu og blóðþyrstustu skepnurnar
í frumskóginum.
Vargur í óspilltri veröld
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Sambíóin
Leikstjóri: Terrence Malick. Aðalleikarar:
Colin Farrell, Christopher Plummer,
August Schellenberg, Q’orianka Kilcher,
Christian Bale. 130 mín. Bandaríkin
2005.
Nýi heimurinn (The New World)
Sæbjörn Valdimarsson
Reuters
„Hin unga og óreynda Q’orianka Kilcher er hrífandi í stóru og erfiðu hlut-
verki Pocahontas,“ segir m.a. í dómi.
Fyrirsætan Kate Moss er sögðhafa stungið upp á því við
barnsföður sinn, Jefferson Hack, að
þau eignist annað barn saman, en
fyrir eiga þau þriggja ára dóttur.
Vinir fyrirsætunnar segja að hún
vilji að dóttirin, Lila Grace, eignist
systkini og að Jefferson sé eini mað-
urinn sem hún treysti nógu vel til að
eiga barn með enda sé hann frábær
faðir.
Fólk folk@mbl.is
Reuters
Kate Moss á tískusýningu Burberry
Prorsum í Mílanó í síðasta mánuði.