Morgunblaðið - 20.03.2006, Side 8

Morgunblaðið - 20.03.2006, Side 8
8 MÁNUDAGUR 20. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tilfinnanlega skortirheildstæða sýn afhálfu stjórnvalda á vegagerð á hálendinu. Í öllum áætlunum á vegum ríkisins er aðeins rætt um hálendisvegi annars vegar í Svæðisskipulagi miðhá- lendis Íslands sem nær til 2015, en þar segir m.a. að stefnt skuli að því að halda vegaframkvæmdum á há- lendinu í lágmarki, og hins vegar í samgönguáætlun 2003-2014, en þar eru skil- greindir fjórir svokallaðir landsvegir, sem séu nú malarvegir, sem stefna skuli að að koma í gott horf, þetta eru Sprengisandsleið, Kjalvegur, Fjallabaksleið nyrðri og Kalda- dalsvegur. Ekkert er hins vegar minnst á hálendisvegi í t.d. byggðaáætlun, ferðamálaáætlun eða landgræðsluáætlun, svo eitt- hvað sé nefnt. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Ólafar Guðnýjar Valdi- marsdóttur, arkitekts og fyrrum formanns Landverndar, í mál- stofu sem Landvernd efndi til í síðustu viku þar sem kynntar voru niðurstöður hálendisvegahóps samtakanna sem haft hefur það að markmiði að fjalla um áhrif há- lendisvega og hvert stefni í þeim málum. Ólöf benti á að hinar ýmsu áætl- anir um landnýtingu á miðhálendi Íslands eru á forræði mismunandi ráðuneyta og stjórnvalda og ekki virðist nein samræming eða skýr tengsl þar á milli. Nefndi hún máli sínu til stuðnings mismunandi flokkun vega annars vegar í sam- gönguáætlun og hins vegar í svæðisskipulagi miðhálendis Ís- lands. „Þannig virðist hægri höndin ekkert vita hvað sú vinstri er að gera og öfugt. Svæðisskipu- lagið tekur á þessu samræming- arhlutverki að einhverju leyti, en að mati vinnuhópsins er mikil- vægt að gert verði heildarskipu- lag eða landsskipulag, þar sem all- ar þessar áætlanir eru kortlagðar jafnóðum, til þess að hægt sé að sjá og meta innbyrðis áhrif þeirra hverrar á aðra og móta heildar- stefnu. Það þýðir t.d. lítið að gera ráð fyrir þjóðgarði eða annarri verndun í náttúruverndaráætlun ef samgönguáætlun gerir á sama tíma ráð fyrir uppbyggðri hrað- braut á svæðinu,“ sagði Ólöf. Vegbótum fylgir aukin umferð Anna Dóra Sæþórsdóttir, land- fræðingur, benti á að nýir vegir opnuðu áður einangruð hálendis- svæði fyrir almenningi. Reynslan sýndi að bættum vegum fylgdi aukin umferð, þar með aukinn fjöldi ferðamanna sem leiddi til aukins ágangs, í sumum tilfellum meiri en náttúran réði við. Nefndi hún Landmannalaugar sem dæmi, en þar varð sprenging í um- ferð ferðamanna í kjölfar vegbóta árið 1970 með þeim afleiðingum að náttúran væri víða tekin að láta á sjá. Benti hún á að þeir ferða- menn sem legðu leið sína upp á hálendið væru í yfirgnæfandi meirihluta tilfella að sækjast eftir lítt snortinni náttúru, fjallasýn og kyrrð í fámenni. Þetta sýndu við- horfskannanir sem gerðar hefðu verið meðal ferðamanna. Í þessu samhengi má nefna að þegar viðhorf Íslendinga til vega- framkvæmda á hálendinu er kannað kemur í ljós að þriðjungur svarenda vill halda vegunum eins og þeir eru nú, annar þriðjungur vill lágmarkslagfæringar og að helstu vatnsföll verði brúuð en að- eins fjórðungur svarenda vill byggja upp fullbúna vegi á há- lendinu, þ.e. fullbrúaða vegi með bundnu slitlagi. Að mati Önnu þarf að skilgreina þau landsvæði sem eru mikilvæg með tilliti til ferðamennsku. „Þeg- ar það hefur verið gert þarf að marka stefnu um það hvers konar ferðumennsku byggja á upp á hverjum stað fyrir sig,“ sagði Anna og benti á að ekki væri einu sinni sjálfgefið að þróa ætti ákveð- inn stað sem ferðamannastað, t.d. ef náttúran og gróður á svæðinu reynist of viðkvæm til að taka á móti fjölda gesta. „Lykilatriðið er að byrja ekki á því að leggja veg- inn og sjá síðan til hvað gerist, heldur að hugleiða hvar við viljum byggja upp ferðamannastaði og síðan leggja vegina og ákveða hversu góðir þeir eiga að vera.“ Undirbúa lagningu hálendisvegar Á undanförnum árum hafa ver- ið lagðar fram nokkrar tillögur og hugmyndir um vegi um hálendið. Markmið flestra þeirra hefur ver- ið að stytta vegalendir milli lands- hluta og þá einkum Norðurlands og Suðurlands. Á síðasta ári var stofnað félag sem ætlar að vinna að undirbúningi lagningar vegar úr Skagafirði um Stórasand, Arn- arvatnsheiði og Kaldadal sem stytti umrædda leið um 81 kíló- metra. Félagið heitir Norðurveg- ar ehf. og er hlutafé þess 11 millj- ónir króna. Meðal stofnenda félagsins eru KEA, Akureyrar- bær og Hagar. Birgir Guðmunds- son, umdæmisstjóri Vegagerðar- innar, sagði á stofnfundinum að ef miðað væri við að 700 bílum yrði ekið eftir veginum daglega gæti stytting leiðarinnar sparað vel á annan milljarð króna á ári. Fréttaskýring | Niðurstöður hálendisvega- hóps Landverndar kynntar á málþingi Heildstæða stefnu skortir Könnun sýnir að aðeins fjórðungur vill byggja upp fullbúna vegi á hálendinu Gróður á hálendinu er víða viðkvæmur. Búið er að stofna félag um lagningu Norðurvegar  Þeir sem vilja leggja Norð- urveg hafa stofnað formlegt fé- lag til að undirbúa fram- kvæmdir. Þeir vilja hefja framkvæmdir sem fyrst, en þær myndu taka nokkur ár. Vegurinn myndi hæst standa í 700 metra hæð yfir sjávarmáli. Hálend- ishópur Landverndar telur hins vegar að marka þurfi stefnu um hálendisvegi áður en ráðist er í framkvæmdir. Meta þurfi alla þætti málsins. Eftir Silju Björk Huldudóttur og Egil Ólafsson HEYRÐU, má ég fá svona hjól? spurði þessi ungur piltur blaða- mann þegar hann átti leið í Hag- kaup á Akureyri um helgina. Morgunblaðsmaðurinn vísaði á föður drengsins sem stóð álengdar á spjalli við kunningja sinn. Gutt- inn sagðist heita Viktor og vera „svona gamall – fimm ára,“ sagði hann og rétt upp þrjá fingur. Fað- ir hans staðfesti síðar að hann væri þriggja ára. Vel hefur viðrað til vorverka í höfuðstað Norður- lands undanfarna daga, m.a. til þess að kaupa hjól. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Má ég fá svona hjól?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.