Morgunblaðið - 20.03.2006, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.03.2006, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 20. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT BORGARASTRÍÐ geisar nú í Írak að mati Iyads Allawis, fyrrverandi forsætisráðherra bráðabirgðastjórn- ar í landinu, en breskir og bandarísk- ir ráðamenn hafa á síðustu dögum ítrekað neitað staðhæfingum í þá veru, að borgarastyrjöld væri þegar brostin á í landinu. Allawi sagði hins vegar í viðtali við breska útvarpið, BBC, að það væri ekki hægt að lýsa ástandinu í Írak öðruvísi. „Það er mjög miður að við skulum nú standa frammi fyrir borgara- stríði. Við missum að jafnaði 50 til 60 manns á degi hverjum í landinu öllu, ef ekki fleiri,“ sagði Allawi en mikið ofbeldi hefur varpað skugga á líf Íraka síðustu vikur. „Ef þetta kallast ekki borgarastríð þá veit guð einn hvað borgarastríð er í raun og veru.“ Allawi tók fram að hann teldi enn að hægt væri að snúa þróuninni við. Írak stefndi þó hraðbyri að hengi- fluginu, færu menn fram af því yrði ekki aftur snúið. Eftir að hvelfing helgidóms sjía- múslíma í Samarra var eyðilögð í sprengingu 22. febrúar sl. jókst of- beldi milli sjía-múslíma og súnní- múslíma í Írak til muna og menn tóku að óttast, að allt færi í bál og brand milli trúarhópanna tveggja. Breskir og bandarískir ráðamenn hafa þó dregið úr slíkum yfirlýsing- um og Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, lýsti sig einmitt ósammála mati Allawis í gær. Nasistum falin völdin á ný Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, galt í grein í The Washington Post í gær varhug við því að kalla Bandaríkjaher heim frá Írak í einu vetfangi. Slíkt yrði eins og ef nasistum hefði verið falin stjórn aftur í Þýskalandi að síðari heimsstyrjöldinni lokinni. Hryðju- verkamenn myndu nefnilega þegar í stað fylla það valdatóm sem skapast myndi, ef Bandaríkjaher færi skyndilega frá Írak. Allawi segir borgarastríð geisa í Írak Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is Iyad Allawi Dick Cheney yfir Viktor Janúkovytsj, þáverandi forsetaframbjóðanda, og tóku síð- ar nafn hans af sakaskrá. Á þessum tíma var það orðið svo algengt að menn byðu sig fram til þings í því skyni að fá friðhelgi frá saksókn að það þótt ekkert tiltökumál. Þetta breyttist eftir appels- ínugulu byltinguna og Viktor Jústsjenko forseti lofaði að skera upp herör gegn spillingu og hindra að lögbrjótar gætu boðið sig fram til að komast hjá sak- sókn. Flestir sakaðir um efnahagsglæpi Eftir að innanríkisráðuneyti Úkraínu komst að fyrrnefndri nið- Kíev. AP. | Tíu hafa verið dæmdir sekir um lögbrot, 37 sæta rann- sókn saksóknara og 41 bíður rétt- arhalda. Allir eru þeir eða hafa verið frambjóðendur í þingkosn- ingunum í Úkraínu 26. mars. Margir hafa hneykslast á þessu samsafni meintra lögbrjóta á framboðslistunum og þeir segja það sýna hversu lítið hafi breyst í Úkraínu þrátt fyrir fögur fyrirheit í appelsínugulu byltingunni 2004, þegar hundruð þúsunda manna fylktu liði á götunum og kröfðust þess að glæpamenn yrðu hnepptir í fangelsi. „Steli menn hænu eða kornpoka frá nágranna sínum fara þeir í fangelsi, en steli þeir milljón setj- ast þeir á þing,“ sagði Volodymyr Stretovytsj, formaður þingnefndar sem fjallar um baráttuna gegn skipulögðum glæpasamtökum. Aðrir benda á að úkraínskum kjósendum er nú sagt frá vafa- samri fortíð frambjóðenda og þeir segja það framför í ljósi þess að á árinu 2004 lögðu stjórnvöld mikið á sig til að leyna fangelsisdómum urstöðu um fjölda meintra af- brotamanna á framboðslistunum sagði Júríy Lútsenko innanrík- isráðherra að aðeins ellefu af 45 flokkum, sem taka þátt í kosning- unum, byðu ekki fram menn sem bendlaðir væru við glæpi. Á meðal þeirra sem bjóða fram menn með vafasama fortíð eru flokkur Jústsjenkos forseta og annar undir forystu Júlíu Tymos- henko, fyrrverandi forsætisráð- herra og hetju í appelsínugulu byltingunni. Landslög kveða á um að þeir sem hafa verið dæmdir fyrir lög- brot geti ekki boðið sig fram til þings. Tíu frambjóðendur hafa verið teknir af framboðslistunum vegna þessa ákvæðis. Þeir sem sæta rannsókn eða bíða réttar- halda geta á hinn bóginn sóst eftir sæti á þinginu. Flestir þeirra 37 frambjóðenda, sem sæta rannsókn, eru sakaðir um spillingu og efnahagsglæpi. Margir Úkraínumenn telja að umfjöllunin um dómana yfir Janú- kovytsj hafi stuðlað að sigri Júst- sjenkos í forsetakosningunum. Janúkovytsj var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir rán og árás árið 1967, þegar hann var sautján ára. Hann var leystur úr haldi vegna ungs aldurs og dóm- stóll ógilti dóminn eftir að meint fórnarlamb dró vitnisburð sinn til baka. Þremur árum síðar var Janúkovytsj dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir árás og líkamsmeið- ingar, en meint fórnarlamb dró vitnisburðinn til baka og dómurinn var numinn úr gildi. Í framboði til að komast hjá saksókn AP Þingmenn slást á fundi á þingi Úkraínu í síðasta mánuði. ’Steli menn hænu eðakornpoka frá nágranna sínum fara þeir í fang- elsi, en steli þeir milljón setjast þeir á þing.‘ ættingja hans var viðstaddur útför- ina. Ekkja hans, Mirjana Markovic, og sonur, Marko, eru búsett í Moskvu og hættu ekki á að fara til Serbíu, en þar er Markovic eftirlýst fyrir glæpi í stjórnartíð Milosevic. Dóttir Milosevic, Marija, er hins veg- ar búsett í Svartfjallalandi og hún er SORGMÆDDIR stuðningsmenn Slo- bodans Milosevics, fyrrverandi for- seta Júgóslavíu, heimsóttu gröf hans í serbneska bænum Pozarevac, 50 km austur af Belgrad, í gær en Mil- osevic var jarðsettur á laugardag. Milosevic var jarðaður undir linditré í heimabæ sínum en enginn nánustu allt annað en sátt við greftrunarstað föður síns. „Hvergi annars staðar í heiminum eru menn jarðaðir í garð- inum heima hjá sér,“ sagði hún. Hyggst hún sjá til þess að kista Mil- osevics verði grafin upp og hann jarðaður að nýju í Svartfjallalandi, en þar fæddust foreldrar hans. Heimsækja gröf Milosevics AP Gaza-borg. AFP. | Mikill matarskortur er á Gaza-svæðinu í Palestínu og neyðarástand er yfirvofandi ef helsta flutningsæðin til Ísrael verður áfram lokuð. Þetta segir John Ging, yfir- maður sérstofnunar Sameinuðu þjóðanna um málefni palestínskra flóttamanna (UNRWA). Sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael reynir nú að miðla málum í deilu Ísr- aela og Palestínumanna er varðar ferðir og flutninga milli svæða, en Ísraelar hafa haft helsta landamæra- hliðið milli Gaza og Ísrael lokað lengst af þessu ári á grundvelli ör- yggishagsmuna. Sagði Johns Ging mikilvægt að viðræðurnar skiluðu árangri, UNRWA væri að verða uppiskroppa með matvæli handa allra fátækustu fjölskyldum á Gaza. „Við færumst nær neyðarástandi á hverjum degi,“ sagði hann. „Okkur skortir ekki aðeins hveiti og korn- meti. Það er líka skortur á sykri, olíu og ýmsum öðrum nauðsynjum.“ Mikill mat- arskortur á Gaza

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.