Morgunblaðið - 17.05.2006, Page 6

Morgunblaðið - 17.05.2006, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð- herra afhenti í gær fyrstu skyrdós- irnar sem framleiddar eru hjá Thise Mejeri í Danmörku. Skyrið var afhent til sölu í verslun IRMA í Illumshúsinu á Strikinu í Kaup- mannahöfn. Síðan fór fram kynning í veitingahúsinu NOMA (Nordisk Mad) á Nord- atlantens Brygge þar sem íslenski landbúnaðarráð- herrann og Hans Christian Scmidt, matvælaráðherra Danmerkur, voru meðal gesta. Skúli Böðvarsson, framkvæmda- stjóri Agrice sem hefur samið um framleiðslurétt á skyri í Danmörku, sagði að Thise Mejeri framleiddi skyrið samkvæmt uppskrift skyr.is og markaðssetti það í eins 170 gramma dósum. Boðið er upp á þrjár bragðtegundir: Hreint skyr, með jarðarberjabragði og með peru/ban- anabragði. „Þetta er framleitt sam- kvæmt sömu hugmynd og skyr.is, en úr danskri mjólk,“ sagði Skúli. Hann sagði viðstadda hafa lýst mikilli ánægju með danska skyrið. „Hér voru gestir frá Hollandi, Svíþjóð og Bretlandi sem voru að fylgjast með því á hvaða máta þetta væri gert hér og fá upplýsingar frá danska mjólk- urbúinu.“ Ár er liðið frá því skrifað var undir samninga við Thise Mejeri um fram- leiðslurétt á skyrinu. Agrice, sem er að 2/3 í eigu Mjólkursamsölunnar og að þriðjungi í eigu skosks ráðgjafar- fyrirtækis og Remedia, selur fram- leiðslurétt á skyri og fær framleiðslu- gjöld. Skúli sagði að framleiðsla á skyri hæfist í Bretlandi í ágúst næst- komandi, í Svíþjóð síðar á árinu og síðan fylgdu Sviss og fleiri lönd. Að sögn Skúla er ekki hægt að gefa upp hvert framleiðslugjaldið af skyrinu er sem fellur í hlut Íslendinga. Skyrið frá Thise Mejeri verður til sölu í verslunum IRMA á Sjálandi, sem eru 71 talsins. Síðar er stefnt að því að Brugsen-verslanirnar um alla Danmörku hafi skyrið til sölu. Danskt skyr komið í verslanir Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is DÓMARI hefur að ósk lögreglunnar í Kópavogi úrskurðað tvo menn í gæslu- varðhald, en tók sér frest til kl. 11 í dag til að úrskurða í máli þess þriðja. Menn- irnir þrír rændu 18 ára pilti frá heimili sínu í Garðabæ á laugardagskvöld og óku með hann upp í Heiðmörk þar sem hann var barinn. Pilturinn fannst á gangi við Elliðavatn en þangað höfðu árásarmennirnir ekið honum og hent honum út. Var hann hruflaður og mar- inn eftir ofbeldið sem hann sætti þá um kvöldið. Hestamaður í reiðtúr hafði séð pilt- inn meiddan á gangi við Guðmundar- lund en þá þegar var lögreglan að leita að bíl árásarmannanna eftir lýsingu annars vegfaranda sem hafði séð að verið væri að lúskra á einhverjum í bíl. Piltinum hent í skottið Tildrög málsins voru þau að árásar- mennirnir komu heim til piltsins og fengu hann til að koma inn í bíl sem þeir voru á. Ekið var upp í Heiðmörk og kom til átaka á leiðinni. Átökin héldu áfram utan við bílinn og var piltinum að lokum hent í skottið og ekið með hann að Elliðavatni þar sem honum var sleppt. Fórnarlambið vildi í fyrstu ekki tjá sig við lögreglu um málið en síðar kom skýrari mynd á það sem leiddi til þess að einn árásarmannanna gaf sig fram við lögregluna á mánudagskvöld og var handtekinn. Hinir tveir gáfu sig fram í gær. Að sögn lögreglunnar er rótin að mál- inu rakin til einhvers konar ágreinings vegna bíls að því er talið er. Ekki var þó talið að verið væri að innheimta neinar fíkniefnaskuldir. Handteknir vegna mannráns í Garðabæ „ÞARNA erum við að selja hugvit sem við Íslendingar höfum varð- veitt í eitt þúsund ár og var þekkt meðal víkinganna til forna á öllum Norðurlöndum,“ sagði Guðni Ágústsson landbúnaðaráðherra. „Mér fannst að við værum að sýna Dönum virðingu með því að færa þeim þennan dýrmæta mat sem skyrið er í okkar augum. Það er fæða hreystinnar, fegurðarinnar og aflsins. Þetta er kalkrík fæða, próteinrík og fitusnauð og hentar mjög vel nútímamanninum.“ En hvernig fannst Guðna danska skyrið? „Þetta var afbragðsgott skyr en auðvitað fannst mér vanta íslensku mjólkina á bakvið. Við eigum sér- lega bragðgóða mjólk. Mér fannst ég finna aðeins bragðmun, en þetta var prýðileg vara og vel gerð.“ 1.000 ára hugvit Guðni Ágústsson FULLTRÚAR General Motors kynntu fram- tíðaráætlanir sínar varðandi þróun vetnisbíla við Þjóðmenningarhúsið í gær og kom þar meðal annars fram að árið 2010 ætlar fyrir- tækið að hafa þróað vélbúnað sem gerir því kleift að hanna samkeppnishæfa vetnisbíla. GM lítur til ýmissa orkugjafa í þessu sam- bandi, orku úr jarðvarma, vind- og sólarorku, kjarnorku og orku úr lífrænum leifum. Fyr- irtækið bauð fulltrúum frá fjölmiðlum víða í heiminum að fylgja fyrirtækinu eftir um heiminn og fræðast um þá möguleika sem eru fyrir hendi varðandi vetnisvinnslu. Tilgangur heimsóknarinnar hingað til lands er að mynda tengslanet við fyrirtæki og stjórnvöld. Til sýnis við Þjóðmenningarhúsið í gær var nýjasta útgáfa af vetnisbíl GM og gafst Val- gerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, færi á að prófa bílinn og sagði hún ferðina hafa verið afar þægilega. Hún sagði áhuga GM á Íslandi vera ánægjulegan enda hefði ríkisstjórnin stefnt að þessu markmiði lengi og hér væri næga orku að fá. Þess má geta að orka frá Kárahnjúkavirkj- un myndi duga til að framleiða nóg af vetni til að knýja allan bíla- og skipaflota Íslendinga. Fjöldaframleiðsla á næsta áratug Britta Gross, hjá GM, sagði að fyrirtækið legði afar hart að sér við að ná markmiði sínu um framleiðslu vélbúnaðar árið 2010 og á ára- tugnum 2010–2020 yrði svo reynt að hefja fjöldaframleiðslu á vetnisbílum en hún lagði áherslu á að slíkir bílar yrðu að vera sam- keppnishæfir við bensínbíla í dag hvað varð- aði drægni, kraft og fleira. Hún tekur fram að vetnisbílar verði ekki litlir „golfbílar“ held- ur venjulegir bílar, knúnir vetni í stað bens- íns. Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Ís- lenskrar nýorku, segir að stefnt sé að aukinni samvinnu fyrirtækisins og GM í framtíðinni með það í huga að Ísland geti orðið eitt af fyrstu kynningarsvæðum fyrir vetnisfarar- tæki GM. Varðandi vetnisframleiðslu hér á landi segist Jón Björn sjá fyrir sér að olíu- og orkufyrirtæki hér á landi þrói framleiðslu sína í þá átt, eins og dæmi séu um erlendis frá. Til að mynda hafi breska fyrirtækið British Petrol breytt nafni sínu í Beyond Petrol. Nú þegar sé vetni nýtt til að knýja hluta af strætisvagnaflota höfuðborgarsvæðisins og sú tilraun hafi vakið nokkra athygli erlendis. GM sýnir vetnisframleiðslu áhuga Morgunblaðið/Brynjar Gauti Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra lét vel af ökuferðinni í vetnisbílnum. GUÐLAUGUR Þór Þórðarson borgarfulltrúi mun í dag leggja fram tillögu fyrir hönd sjálfstæðismanna á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavík- ur (OR), þess efnis að fyrirhugaðar framkvæmdir vegna sumarbústaða- lóða við Úlfljótsvatn verði dregnar til baka og að málið verði allt endur- skoðað frá grunni. Segist hann þeirr- ar skoðunar að fyllsta ástæða sé til að láta fleiri sjónarmið en hagnaðar- sjónarmið ráða för þegar ákvarðanir eru teknar um almenningsútivistar- svæðið Úlfljótsvatn. Guðlaugur Þór segir m.a. verið að skipuleggja inni á landi sem Starfs- mannafélag Reykjavíkur hefur af- notarétt af, en Geir Hallgrímsson gaf félaginu þann afnotarétt þegar hann var borgarstjóri. „Svæðið er búið að vera miðstöð skáta á Íslandi í sextíu ár og mikil náttúruperla, svo það ætti að horfa til fleiri sjónarmiða en gróðasjónarmiða. Okkur hefur fundist menn hafa gleymt þeim ábyrgðum sem þeir hafa, sem stýra Orkuveitu Reykjavíkur,“ segir Guð- laugur. „Það ætti ekki að vera mark- mið að setja þéttar sumarbústaða- byggðir umhverfis hvert einasta vatn í nágrenni Reykjavíkur.“ Hópur fólks, sem lætur sig fram- tíð og náttúru Úlfljótsvatns varða, hefur skorað á borgaryfirvöld, OR og Klasa að hætta við fyrirhugaða sumarbústaðabyggð og fleira við Úlfljótsvatn. Með jörðinni Úlfljóts- vatni gefist Orkuveitu Reykjavíkur einstakt tækifæri til að halda á lofti þeirri ímynd að fyrirtækið sé í far- arbroddi í umhverfismálum. Auðvelt sé að byggja svæðið upp sem fram- tíðar útivistarsvæði skáta og al- mennings og þá séu íbúar Reykja- víkur ekki undanskildir. Vill draga til baka fram- kvæmdir við Úlfljótsvatn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.