Morgunblaðið - 17.05.2006, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Goða grillkjötið er
heitast á grillið í sumar!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
17
15
Vladíkavkaz. AFP. | Núrpashí Kúlajev var í gær fundinn
sekur af dómara fyrir rússneskum rétti um manndráp
og aðild að hryðjuverkinu í bænum Beslan árið 2004,
en hann er eini eftirlifandi gíslatökumaðurinn úr röðum
skæruliða frá Tétsníu sem tóku þátt í árásinni ör-
lagaríku.
„Rétturinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að Kúl-
ajev hafi tekið þátt í vopnaðri árás og gíslatöku … og
framið morð á varnarlausu fólki,“ sagði Tamerlan
Agúzarov, yfirdómari í hæstarétti í héraðinu Norður-
Ossetíu, þar sem Beslan er, í gær.
Kúlajev hefur viðurkennt aðild sína að árásinni en
neitað því að hafa orðið manni að bana. Telja sérfræð-
ingar að fallið verði frá dauðarefsingu yfir honum og
hann verði dæmdur í ævilangt fangelsi. Þá saka að-
standendur fórnarlamba árásarinnar rússnesk stjórn-
völd um að gera Kúlajev að blóraböggli í málinu í stað
þess að viðurkenna að þau hafi stuðlað að auknu mann-
falli með því að beita röngum vopnum við lausn gísl-
anna.
Hryðjuverkið í Beslan í Suður-Rússlandi fyrsta sept-
ember 2004 vakti mikinn óhug um heim allan. Var
krafa gíslatökumannanna, sem voru 32 skæruliðar frá
Tétsníu, að rússneskir hermenn yrðu kallaðir á brott
frá svæðum þeirra, gegn því að um 1.100 gíslar yrðu
látnir lausir. Ekki var orðið við þeirri kröfu og féll 331,
þar af 186 börn, í skotbardaga milli sérsveitarmanna og
gíslatökumanna við frelsun gíslanna.
AP
Mæður fórnarlamba hryðjuverksins í Beslan ganga til réttarhaldanna.
Dómur í Beslan-málinu
FIDEL Castro, forseti Kúbu, vísar því á bug sem
„firru“ og „ósvífnum áróðri“, að hann eigi 900 millj-
ónir dollara, um 64 milljarða ísl. kr., á bankareikn-
ingum. Var því nýlega haldið fram í bandaríska
tímaritinu Forbes.
Castro sagði, að þetta væri allt liður í ófræging-
arherferð Bandaríkjastjórnar og bætti við, að gæti
einhver fundið „einn einasta dollara“ á reikningi,
sem hann ætti erlendis, myndi hann segja af sér.
Kom þetta fram á fréttavef BBC, breska ríkis-
útvarpsins, í gær.
Í greininni í Forbes, sem hét „Auðæfi konunga,
drottninga og einræðisherra“, var gengið út frá því,
að Castro réði öllu í kúbönskum ríkisfyrirtækjum og
fengi prósentur af hagnaði þeirra. Út frá því var síð-
an reiknað, að hann væri sjöundi ríkasti þjóðhöfðing-
inn og til dæmis ríkari en Elísabet II Bretadrottning.
Castro kvaðst tilneyddur til að vísa „þvættingnum“
í Forbes á bug vegna þess hve víða hann hefði farið
og mikið í hann vitnað. Leiddi hann meðal annars
fram bankastjóra kúbanska seðlabankans til vitnis
um, að hann ætti enga reikninga erlendis en Forbes
segir, að við matið á auðæfum Castros hafi ekki ver-
ið átt við inneign í erlendum bönkum.
„Hvers vegna ætti ég að sanka að mér peningum.
Hvað ætti ég að gera við þá? Ég er að verða átt-
ræður og á enga erfingja,“ sagði Castro, en erlend-
um sendimönnum og kaupsýslumönnum í Havana,
sem þekkja til Castros, ber saman um, að þótt af
ýmsu sé að taka, þá sé fégræðgi ekki einn af löstum
hans.
Vísar „firru“ Forbes á bug
AP
Fidel Castro, forseti Kúbu, er hann sagði það þvætting
að hann væri sjöundi ríkasti þjóðhöfðinginn.
Washington. AFP. | Luis Ernesto
Derbez, utanríkisráðherra Mexíkó,
fordæmdi í gær þá fyrirætlan George
W. Bush Bandaríkjaforseta að senda
allt að sex þúsund þjóðvarðliða til að
aðstoða landamæraverði við að gæta
landamæranna að Mexíkó. Derbez
sagði þetta þýða í raun „hervæðingu“
landamæranna, sem hafa myndi í för
með sér að bandarískir hermenn
færu að taka fólk höndum og setja
það í varðhald.
Um tólf milljónir ólöglegra inn-
flytjenda eru í Bandaríkjunum, flest-
ir frá Mexíkó og öðrum ríkjum Róm-
önsku Ameríku. Bush sagði í
sjónvarpsávarpi í fyrrakvöld að áríð-
andi væri að gæta landamæra
Bandaríkjanna betur. „Við höfum
ekki enn fulla stjórn á landamærun-
um og ég er staðráðinn í að breyta
því,“ sagði Bush. Hann sagði hins
vegar jafnframt að stjórnvöld í
Bandaríkjunum yrðu að beita sér
fyrir því að fólk sem kæmi til Banda-
ríkjanna ætti auðveldara með að að-
lagast bandarísku samfélagi.
En öldungadeild Bandaríkjaþings
ræðir nú lagafrumvarp sem er Bush
þóknanlegt, felur það m.a. í sér að
ólöglegir innflytjendur sem búið hafa
í Bandaríkjunum lengur en fimm ár
fái tækifæri á að öðlast ríkisborgara-
rétt að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum.
Skiptar skoðanir voru um ræðu
Bush í Bandaríkjunum. Meðal
repúblikana er að finna marga sem
telja forsetann – þrátt fyrir ákvörðun
hans í fyrrakvöld – ekki taka nægi-
lega fast á ólöglegum innflytjendum.
Og Arnold Schwarzenegger, ríkis-
stjóri í Kaliforníu, sagðist óttast að
aðgerðir Bush fælu aðeins í sér tíma-
bundna lausn á vandanum. Þá gagn-
rýndi hann að ekki hefði verið haft
samráð við ríkisstjóra í þeim ríkjum
sem landamæri eiga að Mexíkó.
<A 0 $ %* .0 0
4 *2 *
& ' ( ! )
* +
M
6,
:I
?
$ %&
'
-% ! "
N.
= ?%
:
% = 8
,
! M
'*
,
%
. %" " 0 %"
0 -% ! "
*" 0 $ O "".
0. ; %*.P %
.
5.
: 2%
!"##$%&'(#)*%+,
##
( ) * &+
) " &
,--.* #*+$ - / -+ 0$%1
+/&-2%3-#- %
- 4 $-+# / -+ Q2O00 0% " 0 1 )0 0 ;02 0 # %*.P 0. 0
) " % %" 1 7 %". " #;"" %" "
0 O "" %%;2%* 0
%%" B " /K D .0
. " 1 0 1 A #"> ) E
5-
0
"
'P %
-%% 0 ) %%
Q2O00 0 1 %" A 2$%A
Q . 0 P0 .1. .%
)A . %*.P 0.
2 " % ) . 1 0 2 " A $
%% 21 0% %" 0 ; * 1
0%. A )A ;% 0
%*.P %
5%% ** 0 O% A
%* O "". %%;2%*.
. #;""2 1 A%%P% " .
P" 0
%% 21. " P" 0
0 ""2 % 0 . #;"" 1
)A 0 O "". %%;2%*. >
" 0 .P ; *O. "
A0% R %* .P )
2*%
& A > %* 0 0 0 O ""
%%;2%* . "0 1 A
. 2O% 1 21
A #"> 1 %*%. 0 >
"2
6 %
7 +
,-
-% 0 #;"" %"
" 0 %" $ 1 "
21% . %1 .;%*
1 (; %* %%
0 ,SAOO
Yfirvöld í Mexíkó
ósátt við Bush
París. AFP, AP. | Öll spjót stóðu á
Dominique de Villepin, forsætisráð-
herra Frakklands, í gær þegar van-
trauststillaga af hálfu stjórnarand-
stöðunnar var lögð fram á franska
þinginu. Tillagan var lögð fram af
Sósíalistaflokknum, sem er í stjórn-
arandstöðu, en henni er „ætlað að
snúa við blaðinu“ í stjórn landsins.
Þannig hefur Francois Hollande,
leiðtogi sósíalista, hvatt þingmenn í
stjórn og stjórnarandstöðu til að
gera uppreisn gegn stjórn sem „hafi
glatað öllum trúverðugleika“. Til að
gera illt verra sakaði Jean-Louis
Debre, forseti þingsins, Francois
Bayrou, leiðtoga Lýðræðisbanda-
lagsins (UDF), um að hafa „stungið
pólitíska vini sína í bakið“ með því að
styðja tillöguna.
Þrátt fyrir að tillagan hafi verið
felld kom hún sér engu að síður illa
fyrir de Villepin, sem þurfti að svara
erfiðum spurningum í þingsal. Þann-
ig hefur forsætisráðherrann verið
undir miklum þrýstingi um að segja
af sér embætti vegna Clearstream-
málsins svokallaða, sem kom upp
2004, en um fátt hefur verið jafn
mikið rætt í Frakklandi að undan-
förnu.
Clearstream-málið til ama
Í stuttu máli er de Villepin sak-
aður um að hafa fyrirskipað rann-
sókn á áskökunum um að Nicolas
Sarkosy innanríkisráðherra hafi ver-
ið meðal þeirra sem þáðu mútur inn
á leynireikninga
hjá alþjóðlega
uppgjörsfyrir-
tækinu Clear-
stream Banking í
Lúxemborg,
vegna sölu á her-
skipum til Taív-
ans árið 1991.
Enginn fótur
reyndist fyrir
þessum ásökun-
um og er de Villepin grunaður um að
hafa fyrirskipað rannsóknina til að
koma höggi á Sarkozy, sem er talinn
líklegur keppinautur hans í forseta-
kosningunum að ári. Fyrir utan að
koma de Villepin afar illa hefur málið
dregið úr trausti almennings á
stjórn Jacques Chirac Frakklands-
forseta, en forsetinn er talinn hafa
átt þátt í því að leyniþjónustunni var
falið að rannsaka málið.
Enn eykst þrýsting-
ur á de Villepin
Dominique
de Villepin
Þingið hafnar
vantrauststillögu
gegn forsætisráð-
herra Frakklands