Morgunblaðið - 17.05.2006, Síða 16
Vestmannaeyjar | Eyjamenn
hafa notið veðurblíðunnar und-
anfarna daga, eins og aðrir
landsmenn. Fólk hefur tekið
fram leiktæki af ýmsu tagi og
notar þau óspart. Þessar stúlkur
sýndu hæfileika sína í leikfimi á
trampólíni í einum garðinum og
stukku hver annarri hærra.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Fimleikar í Eyjum
Veðrið
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Heimsóttu Dagverðará | Aðalfundur
Hollvinasamtaka Þórðar á Dagverðará var
haldinn á Lýsuhóli síðastliðinn laugardag.
Kemur þetta fram á vef Snæfellsbæjar.
Að loknum góðum fundi fór hluti fund-
armanna og heimsótti Þórð í kirkjugarð-
inum á Hellnum og síðan áfram að Dag-
verðará þar sem Aðalheiður og hennar fólk
hélt hópnum mikla hnallþóruveislu.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Ljóð á bók | Ljóð þriggja nemenda í
Grunnskóla Bolungarvíkur fá ljóð sín birt í
ljóðabókinni Ljóð unga fólksins. Kemur
þetta fram á fréttavefnum bb.is á Ísafirði.
Í vor efndu almenningsbókasöfn af öllu
landinu til ljóðasamkeppni og valdi dóm-
nefnd svo úr úrval ljóða til birtingar. Öll börn
á aldrinum 9–16 ára gátu tekið þátt í keppn-
inni og tóku 42 bolvískir nemendur þátt. Í
Bolungarvík voru ljóð Þorgerðar Þorleifs-
dóttur í 8. bekk, Bergþórs Sölvasonar í 6.
bekk og Daða Valgeirs Jakobssonar í Stjörn-
unni valin. Bókin kemur út á næstu vikum.
Bíldudalskaffi | Hafin er framleiðsla á
kaffi á Bíldudal. Nefnist það Sólar kaffi.
Góður rómur var gerður að kaffinu á sýn-
ingunni Perlan Vestfirðir sem haldin var í
Reykjavík á dögunum, að því er fram kem-
ur á fréttavefnum Tíðis. Sólar kaffi er fram-
leitt af hjónunum Guðbjörgu Jónsdóttur og
Jóni Hákoni Ágústssyni sem reka veitinga-
og gististaðinn Kaupfélagið á Bíldudal.
Fjórar tegundir af Sólar kaffi eru fram-
leiddar, Eðalkaffi Arnfirðingsins, Selárdals
Columbia, Skrímslasopi og Vestfjarðar
ljómi.
Á næstunni fer fram kynning á kaffinu,
að því er fram kemur á vefnum, og því
dreift í verslanir á Vestfjörðum og Vest-
urlandi, einnig verður kaffið til sölu í versl-
unum í Reykjavík. Jafnframt er hægt að
panta kaffið hjá framleiðanda.
Það voru stolt-ir krakkarsem voru að
kynna Norður-
löndin í bekknum
sínum 6-j í Öldu-
túnsskóla sl. þriðju-
dag. Var foreldrum
boðið í veislu þar
sem á boðstólum
voru vöfflur,
pönnukökur og
kökur sem voru
bakaðar í fánalitum
Norðurlandana.
Byrjað var með
stuttri kynningu og
síðan var hver hóp-
ur með bás með
kynningu á Norð-
urlöndunum sem
þau unnu með kennaranum sínum Mar-
gréti Sverrisdóttir.
Þá var hægt að taka þátt í spurn-
Kynntu Norðurlöndin
Stefán Friðbjarnar-son yrkir fyrirsveitarstjórnar-
kosningar:
Fast ég stend við hugsjón háa.
Henni þjóna lon og don.
Dreg minn kross við Dé-ið bláa
og dr. Gunnar Birgisson.
Karli F. Hjelm í Nes-
kaupstað datt í hug í póli-
tísku moldviðrinu:
Ýmsum þykir pólitíkin tíka
best,
en tík sú geltir alltaf hæst og
mest.
Og vafalaust þá eiga mun hún
metið
því mestan fjölda af hvolpum
hefur getið.
Rúnar Kristjánsson á
Skagaströnd segir að
R-listinn hefði betur
haldið saman:
Vandinn blasir við um sinn,
verklag slasað gefur.
Þriggja fasa flokkurinn
fylgi dasað hefur!
Af kosningum
pebl@mbl.is
Keflavík | Nýstofnað félag áhugaljós-
myndara á Suðurnesjum, Ljósop, hefur
opnað sína fyrstu ljósmyndasýningu. Hún
er í Svarta pakkhúsinu í Keflavík.
Fjórtán félagsmenn sýna úrval af mynd-
um sínum. Þeir eru: Ásgeir Már Ásgeirs-
son, Daði Þorkelsson, Finnbogi Ragnar
Ragnarsson, Gísli B. Gunnarsson, Jóhann
Hannesson, Jón Magnús Björnsson, Jón
Oddur Guðmundsson, Jónas Þorsteinsson,
Kristján Carlsson Gränz, Olgeir Andrés-
son, Ólafur Harðarson, Rósinkar Ólafsson,
Steinþór Grétar Hafsteinsson, Særós Páls-
dóttir.
Sýningin er opin frá 13 - 21 alla daga vik-
unnar fram til 31. maí nk.
Kristján Carlsson Gränz, formaður
Ljósops er mjög ánægður með hversu vel
tókst til og segir að metnaður áhugaljós-
myndara sé til fyrirmyndar.
Fjórtán
áhugaljós-
myndarar
sýna myndir
Ljósmynd/Kristján Carlsson Gränz
Ísafjörður | Byggingu nýrrar sundlaugar
á Ísafirði gæti lokið haustið 2007 ef allt
gengur eftir. Bæjarstjórn hefur gefið vil-
yrði sitt fyrir leigu og notkun sundlaug-
arinnar og mögulegri samnýtingu með
íþróttahúsinu.
Sævar Óli Hjörvarsson hefur látið
hanna sund- og líkamsræktarstöð á Ísa-
firði. Að því er fram kemur á vef Bæj-
arins besta á Ísafirði ganga hugmyndir
hans út á að miðstöðin verði byggð af
einkaaðila en fyrirfram verði gerður
leigusamningur við aðila sem vildi nýta
sér aðstöðuna.
Kynna hug-
myndir um
sundmiðstöð
♦♦♦
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Nýr vefur Garðs | Sveitarfélagið Garður
opnaði formlega nýja heimasíðu fyrir
sveitarfélagið í gærmorgun á slóðinni
sv-gardur.is. Heimasíðan er unnin af hug-
búnaðarfyrirtækinu DaCoda í Reykjanesbæ.
Með þessu vill bærinn auka þjónustu sína.
Meðal nýjunga má nefna ýmsar rafrænar
umsóknir og til útprentunar fyrir leikskóla,
byggingarlóðir og fleira. Aðgengi að upplýs-
ingum um sveitarfélagið hefur verið bætt og
leit gerð einfaldari. Þessa dagana er verið að
vinna í því að koma inn eldri fundargerðum.
Á vefsíðunni er auk þess að finna ýmsar
upplýsingar. Þannig er bætt myndasíða um
fugla, gróðurfar og spendýr á Garðskaga,
auk mannlífsmynda og myndbanda.
Ljósmynd/Ólafur Þórisson
ingakeppni varðandi viðkomandi land
eða fá upplýsingar um flug og gistingu
í hverri höfuðborg fyrir sig.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn