Morgunblaðið - 17.05.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 23
MENNING
Tár Díónýsusar sameinar kraftmikla og framsækna tónlist Lars Graugaard og sérstæða
sköpun hins þekkta danshöfundar Thomas Hejlesen sem byggir kvikmynd sína m.a. á
þöglum svart/hvítum erótískum myndum þriðja áratugarins. Textinn er eftir Nietzsche
úr „Hin díónýsíska heimssýn”. Tónlistin er flutt af Caput hópnum. Sögumaður er hin
þekkta sænska leikkona Stina Ekblad.
Opin virka daga kl. 12 til 18, um helgar kl. 12 til 16.
Sími 552 8588
Miðasala á netinu á www.listahatid.is
Miðasala við innganginn hefst klukkustund fyrir viðburð
Miðasalan Bankastræti 2:
Stjórnandi: Guðni Franzson
Háskólabíói 17. maí kl. 19.30
Miðaverð: 2.500 kr.
Caput hópurinn og Stina Ekblad
Stórvirkið Tár Díónýsusar
frumflutt á Listahátíð í kvöld
Bræðingur ólíkra listgreina á stefnumóti
fremstu listamanna Norðurlandanna í dag
Svo virðist sem skoðanir fólká Silvíu Nótt og lagi hennarCongratulations í Evró-
visjónkeppninni séu tvískiptar, og
lítill millivegur þar. Annaðhvort
líkar fólki framlag Íslands til
keppninnar mjög vel eða alls ekki.
Í óformlegri könnun á vettvangi
í Aþenu segjast þeir sem hafa dá-
læti á henni hafa það vegna frum-
leika persónunnar, stílsins, leiks-
ins, framkomunnar og þess sem
Silvía stendur fyrir – hún er
stjarnan sem ætlar á toppinn.
Það er áberandi að þessi atriði
eru nefnd á undan laginu sjálfu, –
þótt vissulega nefni aðdáendur
Silvíu það líka, ekki síst textann,
sem þykir góður.
Svo merkilegt sem það kann að
virðast, þá nefna þeir sem hafa
ekkert álit á Silvíu Nótt sömu at-
riði, og í nokkurn veginn sömu
röð; þeim líkar ekki við Silvíu
vegna þess að hún er leikin per-
sóna; karakter sem tekur sjálfan
sig og sína stjörnudýrð hátíðlegar
en þá staðreynd að Evróvisjón-
keppnin er „söngvakeppni“, ekki
„stjörnukeppni“.
Christer Björkman er öllumhnútum kunnugur í Evró-
visjónkeppninni, en hann var
keppandi Svía árið 1992. Hann
hefur stundað fjölmiðlun síðan, og
verið framkvæmdastjóri sænsku
landskeppninnar frá 2002.
Hann er jafnframt stjórnandi
norrænu þáttanna um Evróvisjón
sem sýndir eru á Norðurlönd-
unum við miklar vinsældir. Hann
segir það einkenna keppnina að
hún stækki stöðugt og verði
íburðarmeiri. „Mér finnst keppnin
vera að færast frá tónlistinni
sjálfri, og verða stöðugt meiri fjöl-
miðlasirkus þar sem keppendur
reyna að ná athygli með leik.
Þessi þróun er mér ekki að skapi.
Trúðslætin verða æ meira áber-
andi og það er synd,“ segir Björk-
man.
Hann telur að þessi þróun sé
komin að endastöð nú, hún deyi
eins og hver önnur tískubóla, og
að eftir þessa keppni verði meiri
áhersla lögð á góðan flutning
góðra dægurlaga.
Dana International, ísraelskur
sigurvegari keppninnar árið 1998,
var sennilega sá keppandi sem
ruddi brautina fyrir þá „show-
mennsku“ sem síðan hefur verið
svo áberandi í Evróvisjón.
Christer Björkman telur að nú
sé tímabil ballaðanna aftur að
renna upp – það sé komin þörf
fyrir góða söngva og að Evrópu-
búar, sem séu um það bil búnir að
fá nóg af sjörnustælum og leikara-
skap, vilji nú sjá söngvara sem
geta staðið hógværir og lítillátir á
sviðinu og sungið vel samin lög.
Jónatan Garðarsson, hópstjóriíslensku þátttakendanna í
Evróvisjón, segir að oft sé það
þannig að þegar þjóðum gengur
illa í keppninni reyni þær að koma
með eitthvert sprell næsta ár, –
gera eitthvað allt annað og alveg
nýtt. „Þetta eru ekki óeðlileg við-
brögð.“
Paul Gomez er breskur fjöl-
miðlamaður sem gjörþekkir
Evróvisjónkeppnina. Hann hefur
fylgst vel með gengi Íslending-
anna á síðustu árum og vinátta
skapast milli hans og félaga hans
Peters og Jonathans og íslensku
sendinefndanna. Þeir þrír hafa
þann starfa að senda sjálfstæðum
fréttamiðlum á Bretlandi og víðar
fréttir af keppninni og keppend-
unum; – bæði slúður og alvöru.
Þeir eru vel að sér í tungumálum;
Paul er málvísindamaður, og þeir
leggja mikið upp úr því að tala við
keppendur á móðurmáli þeirra, til
að ná bestu innanbúðarupplýsing-
unum. Paul Gomez er þeirrar
skoðunar að leikurinn og gleðin
sem fylgt hefur þeim keppendum
sem hafa lagt meira í „show-
mennskuna“ hafi hleypt nýju blóði
í keppnina og frískað upp á hana.
Paul Gomez var á Íslandi í fimm
daga kringum undankeppnina og
segir að það hafi tekið sig alla þá
fimm daga að átta sig á leikritinu
Silvíu Nótt. „Vandamálið er auð-
vitað að með þessari rannsókn
minni á því hver Silvía er – þá veit
ég það að hún er leikur. Það er
miklu erfiðara að koma heilli
Evrópu í skilning um hvers eðlis
hún er. En það er segin saga, að
um leið og augu fólks opnast, og
það skilur hana, fer það að kunna
mjög vel við hana og sönginn
hennar. Suður-Evrópubúarnir
eiga erfiðast með að skilja þessi
leiknu atriði hér og kómíkina bak
við persónuna Silvíu Nótt.“ Gomez
telur möguleika Silvíu þó mikla,
vegna þess að fólk vili sjá hana og
heyra. Forvitni almennings sé
vakin, og um leið og almenningur
vilji heyra eitthvað aftur sé
grundvöllurinn fyrir velgengni
kominn. „Það er rétt að þróunin
er í átt frá lögum og textum í þá
átt að keppendur komi til leiks
með heilu atriðin í kringum sig og
jafnvel heilu leikritin. En það er
ekki endilega slæmt. Í dag þarf
hver listamaður að ná til fólks –
ná í gegn – og það er sviðslist
hvort tveggja, hvernig sem á það
er litið, að syngja lag annars veg-
ar og að leika. Carola kann þessa
list vel, hún hefur skapað ímynd í
kringum sig sem er í sjálfu sér
leikrit, og hún kann á fjölmiðlana
og allt sem í kringum þetta er. En
það eru ekki allir sem kunna. Ég
sótti blaðamannafund hjá ungu
portúgölsku keppendunum, og
það var eins og að horfa á kvik-
mynd af árekstri – sýnda hægt –
því þau kunnu ekki að fóta sig í
þessum bransa og höfðu engin tök
á fjölmiðlafólkinu. Þetta skemmir
vafalaust fyrir þeim og var hræði-
legt fyrir þá sem á horfðu.“ Paul
Gomez lítur svo á að allt sé þetta
einn pakki – lag, texti, flytjandi,
framkoma, og það sem til þarf til
að koma sér áfram. Það er því
ekki að undra að hann skuli hafa
mikið álit og dálæti á Silvíu Nótt.
„Ef það er rétt sem Jónatan segir,
þá er það allavega öruggt að eins
og margir þráðu að sjá Selmu
ganga vel í fyrra, þá er Silvía
Nótt hin fullkomna hefnd fyrir
það að Selmu skyldi ekki ganga
betur. Silvía gerir grín að keppn-
inni, en á mjög góðlátlegan og
kómískan máta, og það er í góðu
lagi.“
Lög eða leikaraskapur
’Paul Gomez lítur svo áað allt sé þetta einn
pakki – lag, texti, flytj-
andi, framkoma, og það
sem til þarf til að koma
sér áfram. Það er því
ekki að undra að hann
skuli hafa mikið álit og
dálæti á Silvíu Nótt.‘
Morgunblaðið/Eggert
Thomas Lundin ásamt Crister Björkman, sem segir
keppnina færast frá tónlistinni og verða fjölmiðlasirkus.
BLOGG: begga.blog.is
Paul Gomez segir að leikurinn og gleðin, sem fylgt hef-
ur þeim keppendum sem hafa lagt meira í „show-
mennskuna“, hafi hleypt nýju blóði í keppnina.
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
begga@mbl.is
17.00 Norðurlandahraðlestin.
Leiklestur í Borgarleikhúsinu.
Síðari hluti.
19.30 Caput – Tár Díónýsusar.
Frumflutningur í Háskólabíói.
20.00 Danshátíð á Listahátíð –
Trans Danse Europe.
Við erum öll Marlene Dietrich.
FOR í Borgarleikhúsinu.
Þriðja sýning.
Miðvikudagur
17. maí
Hjá Máli og menn-
ingu er komin út í
kilju Afturelding
eftir Viktor Arnar
Ingólfsson.
„Á fáeinum dög-
um eru þrír gæsa-
veiðimenn myrtir
og lögreglan
stendur frammi
fyrir því að raðmorðingi gengur laus.
Sú skoðun staðfestist þegar lögregl-
unni berst orðsending frá morðingj-
anum sem segir: „Ég veiði menn og
sleppi aldrei ...“ Frá þeim degi hefst
æsileg glíma milli lögreglu og óvenju-
legs morðingja upp á líf og dauða þar
sem ekki má á milli sjá hvor er í hlut-
verki kattar og músar.““
Viktor Arnar Ingólfsson er í hópi
þekktustu spennusagnahöfunda
landsins.
Nýjar kiljur