Morgunblaðið - 17.05.2006, Side 28

Morgunblaðið - 17.05.2006, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Vegna mikils aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda bæjar- og sveitarstjórnarkosninganna verður formi þeirra greina, sem lúta að kosningunum, breytt. Er þetta gert svo efnið verði aðgengilegra fyrir les- endur og auka möguleika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar. Bæjar- og sveitarstjórnarkosningar ÞVERPÓLITÍSKT framboð á Blönduósi hefur nú orð- ið að veruleika undir merki E-lista. Það má greina mik- inn áhuga íbúa á að allir leggist á árarnar þegar reynt verður að hverfa frá þeirri varnarbar- áttu sem einkennt hefur héraðið um skeið. Það var skaði fyrir Húnvetninga að stjórnvöld báru ekki gæfu til að lög- festa lágmarksfjölda íbúa í sveitarfélagi við 1.000 fyrir 15–20 árum. Síðan hafa Húnvetningar fundið fyrir atgervisflótta og brestum í innviðum samfélagsins á eigin skinni þrátt fyrir aukna hagsæld í ríkisfjármálum. Það ber að virða sjónarmið þeirra íbúa sem vilja einangrast enda eðlilegt að óttast framtíðina. Að auki liggur verðmætur menningarsögulegur arfur bundinn í tilurð, starfsháttum og stjórnskipulagi hinna fornu hreppssveitarfélaga en þau sem ekki ná 1.000 íbú- um eru ekki rekstrarhæf og því síður samkeppnishæf. Ósamstaða hefur leitt af sér að sá flutningur verkefna frá ríki til sveitarfélaga sem þegar er hafinn og hefur gefið góða raun hér eins og annars staðar á Vestur- löndum og gæti skapað gríðarlega möguleika, tefst vegna sundurþykkju fólks í héraði þar sem stjórnsýslan er rígbundin á óskilvirku stjórnsýslustigi. Þátttaka okk- ar í Evrópska efnahagssvæðinu leggur kvaðir á sveit- arfélög vegna aukinna réttinda íbúanna. Þessu verður að mæta hvort sem mönnum líkar betur eða verr og ekki nægir að uppfylla lágmarkskröfur heldur verður að gera betur en aðrir. Atvinnulíf í Húnaþingi hefur gengið í gegnum hremmingar þótt margt jákvætt hafi átt sér stað en ekki farið hátt. Nýta verður landfræðilega kosti héraðsins og sögu þess til eflingar smáiðnaðar, þjónustu og ferðamennsku. Stóriðja og framhaldsskóli á svæðið virðist langsótt mál en vel má hugsa sér lýðháskóla í tengslum við nýstofnað Textílsetur í hinu fornfræga menntasetri Kvennaskólanum á Blönduósi. Þátttaka í nýtingu auðlindarinnar sem beisluð var í Blöndu á sínum tíma hlýtur að koma til greina eins og nokkuð var rætt um í tengslum við framkvæmdina. Leggja þarf áherslu á innra starf skólanna og setja ungviðið í forgang með fjöl- breyttu íþrótta- og menningarstarfi enda eitt mikilvæg- asta atriðið þegar ungt fólk horfir til framtíðarbúsetu. Gera þarf sveitarfélagið enn þá fjölskylduvænna sem þannig getur stuðlað beint að eflingu atvinnulífs og auknum tekjum til samfélagsins. Þó byggðasamlög hafi með undantekningum skilað viðunandi árangri er það staðreynd að þessi tími er á enda runninn. Það hefur ekki farið leynt að Sveitarfélagið Skagafjörður horfir nú til Skagastrandar og sameiningar sveitarfélaganna. Ekki verður beðið með umræðu um raunverulega sam- einingarkosti því núverandi staða er óásættanleg. Ný kynslóð sveitarstjórnarmanna í Húnaþingi mun gera kröfu um fullkomna endurskipulagningu og uppstokkun á samráðs- og samstarfsvettvangi sveitarfélaganna á svæðinu og fullt jafnræði þegnanna á öllum sviðum. Með kunnáttufólk í sveitarstjórnarmálum innanborðs er E-listinn tilbúinn að nýta þau sóknarfæri sem eru fyrir hendi til að stuðla að fegurra mannlífi á þessu svæði sem okkur er svo kært. Hjáseta Húnaþings eystra Eftir Héðin Sigurðsson Höfundur er læknir, formaður Sjálfstæðisfélags Blöndu- óss og skipar 2. sæti E-listans á Blönduósi. HVERNIG getum við aukið atvinnu og umfang ferðaþjónustunnar hér á Akureyri og gert bæjarlífið líflegra og kraftmeira? Hvað er hægt að gera til að þjónusta og laða að innlenda og erlenda ferðamenn og fá þá til að dvelja og una sér hér í bænum lengur en nú er? Tvímælalaust er Akureyri einn fallegasti og hlýlegasti staður landsins og hér í bæ eru veitingahús á heimsvísu, sem eru farin að bjóða norðlenskan mat sem er rakinn beint til framleiðandans og hans getið á matseðli. Mörg dæmi þekki ég af Reykvíkingum sem hafa komið til Akur- eyrar til að fara út að borða. Hér eru góð hótel og kaffi- hús, góðar verslanir, besta sérleyfisbifreiðastöð landsins og gamalgróin leigubílastöð með bílstjórum sem eru leið- sögumenn ef með þarf. Hér eru ljómandi tjaldsvæði í fögru umhverfi, hrein og falleg flugstöð (með frábærum veitingum), margvísleg söfn og frábærar sundlaugar, grasagarður í Lystigarðinum og perla Eyjafjarðar, Hrísey, innan seilingar. Og menningin er í Listagilinu, Leikhúsinu og víð- ar. Er þá nokkuð sem vantar? Ylströnd í Innbæinn Já, okkur vantar almenna afþreyingu fyrir fjölskyldufólk, innlenda og er- lenda ferðamenn sem koma í bæinn og vilja gera eitthvað skemmtilegt saman. Væri ekki tilvalið að setja upp ylströnd í Innbænum með baðhúsi og leiktækjum og góðri sandfjöru? Styðja siglingaklúbbinn okkar í því að gera tilbúna eyju á Pollinum og bjóða upp á stangveiði og leigja út veiði- stangir, báta með glugga í botninum til að skoða lífríkið í sjónum. Frá því er ég sá fyrst myndir af Höpfnersverlun frá seinni hluta 19. aldar hefur mig dreymt um að setja upp krambúð með þeim vörum sem þar fengust. Ég er þess fullviss að hugsjónafók eins og hjónin í Jólahús- inu gætu rekið svona verslun með góðum árangri ef þeim væri hjálpað til með húsnæðið. Einnig mætti reyna að fá stóru lyfsölufyrirtækin til að kaupa gamla apótekið í Innbænum og gera það upp í upprunalegri mynd og vera með verslun í gamaldags stíl og íbúð lyfsalans uppi. Beint millilandaflug frá Akureyri Ef millilandaflug gengur vel frá Akureyrarflugvelli á næstu árum getum við flutt 30–50 þúsund erlenda ferðamenn til Norðurlands, sumar og vet- ur, ef björtustu vonir ganga eftir. Og með sæeyrnarækt og kræklinga- rækt ásamt þorskeldi og lúðurækt hér í Eyjafirði ásamt u.þ.b. 15.000 tonnum af ferskfiski á viku má áætla að fragtflug með fiskafurðir frá Ak- ureyri verði arðbært og að verðið á slíkri ferskvöru yrði í hæsta kanti. Forsenda þessa er að við fáum lengingu á flugbrautinni svo flestar gerðir flugvéla geti lent þar. Einnig þarf að stækka flugstöðina. Þá mun lifandi miðaldaþorp á Gáseyri draga til sín þúsundir ferðamanna þegar fram líða stundir. Góðir Akureyringar, tjöldum því sem til er og bætum við. Gerum bæinn okkar að helstu ferðamannaparadís landsins að sumri sem vetri og tökum á móti ferðamönnum með bros á vör og miklu stolti. Aukum avinnuna í bænum, hækkum launin og gerum bæinn enn betri og fallegri. Ferðaþjónusta er framtíðin Eftir Baldvin H. Sigurðsson Höfundur er matreiðslumaður og skipar 1. sæti á V-listanum á Akureyri. BETRI Mosfellsbær eru einkunnarorð B-listans í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hinn 27. maí nk. B-listinn hefur sent stefnuskrá sína í hvert hús í Mosfellsbæ. Í stefnuskrá listans er lagt fram með skýrum og afdráttarlausum hætti hvernig við viljum bæta samfélagið okkar. Vinna að þessari stefnuskrá hefur verið mjög skemmtileg en við höfum fundað um hana á fjölmörgum opnum fundum þar sem öllum íbúum bæj- arins var gefinn kostur á að mæta og koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Ennfremur var sent út bréf til allra bæjarbúa þar sem þeir gátu sent til baka tillögur sínar. Það er skemmst frá því að segja að fjöldi svarbréfa barst með tölvupósti í gegnum heimasíðuna www.mosfellsfrettir.is og í pósti. Því má segja að viðbrögðin við dreifibréfinu hafi verið frábær. Stefnuskrá þessi er því gerð með nýjum hætti því allir bæjarbúar höfðu kost á að móta hana og má því segja að hún sé mótuð með gagnvirkni. Þegar stefnuskráin er skoðuð má sjá að B-listinn vill auka íbúalýðræði þar sem skoðanir, álit og til- lögur eru virtar. Velferð íbúanna, menntun barnanna okkar, félagslegt öryggi, drifkraftur og frumkvæði einstaklingsins sé tryggt og í heiðri haft. Það er auðvitað alltaf erfitt að draga út úr stefnuskrá fáein áhersluatriði en ég vil nú samt nefna eftirfarandi punkta sem við leggjum mikla áherslu á:  Fjölskylduvæn fjármálastefna þar sem álögum og gjaldtöku er stillt í hóf  Komið verði til móts við foreldra barna á grunnskólaaldri með frístundagreiðslum  Lýðræðisleg vinnubrögð í skipulagsmálum í sátt við umhverfið og í samvinnu við íbúana  Tryggt verði metnaðarfullt starf í skólum bæj- arinns  Daggæsla verði tryggð frá lokum fæðingar- orlofs Þetta er aðeins fátt eitt af þeim stefnu- og áhersluatriðum sem hægt er að finna í stefnuskrá okkar „Betri Mosfellsbær“ . Framtíðarsýn okkar er skýr. Betri Mosfellsbær Eftir Martein Magnússon Höfundur skipar 1. sæti B-listans í Mosfellsbæ. Í STARFI mínu sem skólameistari eins stærsta framhaldsskóla landsins síðastliðin sjö ár, Verkmenntskólans á Akureyri, hef ég haft náið og gott samstarf við lögreglu og sýslumann. Hefur lögreglan unnið ötullega með okkur að forvörnum og verið okkur innan handar hvenær sem við höfum þurft á að halda, þó að tilefnin séu sjaldnast stórvægileg, en jafnan mikilvæg. Á Akureyri starfar vaskur hópur lögreglumanna af báðum kynjum og oft hef ég dáðst að dugnaði þeirra, þolinmæði, innsæi og þekkingu á starfi sínu, eðli þess og margbreytileika. Ég hef horft upp á allt of marga nemendur mína, í þess- um 1.200 manna skóla, verða áfengi og öðrum fíkniefnum að bráð. Margir hafa flosnað upp úr námi af þessum sökum en sem betur fer koma sumir aftur eftir meðferð af mismunandi toga, m.a. á vegum SÁÁ, sem hefur unnið mjög gott starf hér í bæ og komið fjölmörg- um ungmennum og fjölskyldum þeirra til hjálpar. Fá afgreitt áfengi á tilboðsverði Það er sannarlega við ramman reip að draga fyrir okkur uppalendur. Hart er sótt að ungu fólki, jafnvel grunnskólanemendum, og þeir hvattir til þess að kaupa og neyta vímuefna af öllu mögulegu tagi. Þá reyna skemmtistaðir bæjarins að gylla starfsemi sína fyrir framhaldsskólanemendum og aug- lýsa sérstök tilboð á bjór og sterku áfengi t.d. á fimmtudagskvöldum. Kom- ið hefur fyrir að fjöldi 16 og 17 ára framhaldsskólanema hafi fengið inn- göngu á staði þessa þó svo að slíkt sé skv. lögum miðað við 18 ára aldurs- takmark. Þá hafa þessir sömu unglingar fengið afgreitt áfengi, jafnvel á tilboðsverði, þó svo að áfengisaldurinn sé 20 ár. Teljum við starfsfólk fram- haldsskólanna á Akureyri, MA og VMA, sem hafa um 2.000 nemendur inn- an vébanda sinna samanlagt og þar af 350 á heimavist, löngu orðið tíma- bært að eftirlit með veitingahúsum verði hert með hliðsjón af ofangreindu. Stöðugildum lögreglumanna hefur fækkað Fyrir um 30 árum voru stöðugildi lögreglumanna á Akureyri 30. Síðan hef- ur íbúum bæjarins fjölgað um mörg þúsund og ekki síst hlutfall fólks á framhaldsskólaaldri, en það er að líkindum hvergi jafnhátt og hér. Stór- aukin bílaumferð er öllum ljós. – Og hvað ætli stöðugildi lögreglumanna séu mörg í dag? Þau eru 29! Virkt eftirlit lögreglu þarf að stórbæta, hvort sem er í tengslum við hraðakstur á þjóðvegum og innanbæjar eða áfengis- og vímuefnaneyslu. Okkur ber að vernda unga fólkið og veita því og heimilum þess nauðsyn- legt öryggi. Af ofangreindum sökum hef ég viðrað þá hugmynd á vettvangi Sjálf- stæðisflokksins á Akureyri að kannað verði hvort málefni lögreglunnar beri að færa yfir til sveitarfélagsins að öllu eða einhverju leyti. Geta sýslu- mannsembættisins í bænum virðist ekki vera í samræmi við þörfina. Með aðkomu sveitarfélagsins verða meiri líkur á því að svo verði. Verndum unga fólkið, stöðvum unglingadrykkju og komum í veg fyrir frjálsan aðgang eiturlyfjasala að unglingum bæjarins. Styrkjum lögregl- una, verndum unga fólkið. Það ætlum við sjálfstæðismenn að gera. Verndum unga fólkið Eftir Hjalta Jón Sveinsson Höfundur er skólameistari og skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Kristinn Pétursson: „Endur- vinna gagnagrunni ICES og Hafró.“ Þorsteinn Gestsson fjallar um vímuefni. KOSNINGAR 2006 Toshiki Toma: „Spurning til allra frambjóðenda.“ Magnús Helgi Björgvinsson: „Kópavogsbúar skuldsettir um 110 þúsund.“ Gunnar G. Bjartmarsson: „Kosningaloforðin.“ Magnús Helgi Björgvinsson: „Sjálfstæðismenn lesa Moggann.“ Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar Fréttir á SMS Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Opið hús milli kl. 17 og 19 í dag Njálsgata 35 Glæsileg í gömlum stíl Glæsileg 108,1 fm 3ja herb. hæð á 1. hæð m. 2,8 m lofthæð í fallegu steinhúsi frá árinu 1932. Ekta gamaldags hús með yndislegum fataskáp m. útskornum hurðum, fallegri hurð með lituðu gleri fram á ganginn, viðar- handrið á stiganum milli hæða, falleg rosetta í kringum ljósastæði í stofu, stór gamall skápur á baði og fleira sem gerir íbúðina og húsið ótrúlega sjarmerandi. Tvö stór herbergi, stofa, bað, eldhús og borðkrókur. Möguleiki að breyta t.d. bæta við herbergjum. Gott parket úr aski á gólfum og margt endurnýjað s.s. eldhúsinnrétting og bað. Góður sólpallur í garðinum. Skemmtileg, heillandi eign sem gaman er að skoða. Verð 25 millj. Kristrún og Ólafur taka vel á móti gestum í dag milli kl. 17og 19. Bjalla merkt Kristrún/Ólafur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.