Morgunblaðið - 17.05.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 29
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
NÚ, þegar sveitarstjórnarkosningar
nálgast, eru allir stjórnmálaflokkar í
óða önn við að tilkynna stefnuskrár
sínar. Allir ætla að verða voða góðir
við aldraða og öryrkja og margir eru
orðnir mjög „grænir“, þ.e.a.s. svona
umhverfisvænir, a.m.k. að nafninu til.
Nú á að leggja stíga, gróðursetja heil
ósköp, flokka heimilisrusl, vera á móti
virkjunum og ég veit ekki hvað og
hvað.
En … ekki nokkur einasti flokkur
hefur minnst á aðal umhverfisvanda-
málið, fyrir utan gróður- og jarðvegs-
eyðingu, nefnilega hina sískítandi og
mígandi ketti út um allar trissur. Ég
skil reyndar ekkert í því hvers vegna
fólk hefur ketti, þeir eru úti allan sól-
arhringinn nema þegar þeir reka inn
trýnið heima hjá sér til að éta. Annars
á lóðaríi út um allan bæ og sveitir,
klórandi upp plöntur í nærliggjandi
görðum og gerandi þarfir sínar í
sandkassa barnanna , utan í bíla, ét-
andi fugla og … bara nefndu það.
Enn á að humma það fram af sér
að koma böndum á flökkudýrin og
gera eigendur þeirra ábyrga fyrir
þeim, eins og hundaeigendur eru nú
þegar orðnir. Hver þorir að ríða á
vaðið? Allir hræddir um atkvæðin
sín?
Annað umhverfisvandamál virðist
ekki vera til staðar í nokkru sveitarfé-
lagi, nefnilega ruslið í vegköntum og
öllum opinberum stöðum. Merkilegt
fyrirbæri að hér á landi er aðeins einu
sinni á ári tekið til á landinu, nefni-
lega í byrjun júní. Svo ekki söguna
meir. Allt árið verður maður að horfa
upp á allt draslið sem safnast fyrir
hér og þar. Ekki er nóg að ein og ein
góðhjörtuð kona með Bónuspokann
sinn fari um héruð og hreinsi eftir al-
múgann í ruslalandinu þeirra. Það
þarf miklu meira til. Það þarf heila
hreinsunardeild sem starfar allt árið,
landið um kring.
Hvernig væri að virkja alla heilsu-
góða atvinnuleysingja við að hreinsa
allt draslið eftir okkur, þessa frábæru
Íslendinga, sem erum jú „bestir“ í
öllu, líka í því að rusla til?
Það er til háborinnar skammar fyr-
ir okkur sem viljum hafa allt vaðandi í
erlendum túristum, allan ársins
hring, að bjóða þeim upp á allt hvíta
plastið og annað drasl við alla vegi og
götur landsins sem og annars staðar.
Ég skora hér með á alla þessa frá-
bæru stjórnmálamenn sem öllum
vilja vel að banna lausagöngu katta
og stofna öfluga hreinsunardeild sem
sér um að vera sífellt að störfum við
að tína upp eftir okkur sígarettu-
stubba, tyggjóklessur, heyplast af
girðingum og úr gróðri og alls konar
umbúðir af öllum stærðum og gerð-
um.
Svo mætti setja á stofn rukkunar-
deild með óeinkennisklæddu fólki
sem sér um að sekta fólk sem staðið
er að því að henda rusli, svona eins og
þeir gera í Singapúr, hreinasta landi
heims.
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR,
Melteigi 4,
Akranesi.
melteigur@simnet.is
Rusla- og
skítahaugurinn Ísland
Frá Margréti Jónsdóttur
Í AÐDRAGANDA kosninganna reikar hugurinn
ósjálfrátt 12 ár aftur í tímann, þegar íhaldið átti
borgina. Það er með ólíkindum hversu
mikið hefur unnist á ekki lengri tíma,
ekki síst í réttindamálum kvenna. Allir
grunnskólar eru einsetnir, og öll börn
eiga kost á heilsdagsvistun á leikskóla,
en þessi atriði eru grundvöllur að at-
vinnuþátttöku kvenna. Biðlistar á leik-
skóla heyra einnig sögunni til, en í tíð
íhaldsins færðust börn jafnvel aftar á
biðlistunum eftir því sem tíminn leið, ef samböndin
voru ekki nógu góð.
Reykjavík jafnréttisborg
Kynbundinn launamunur hjá Reykjavíkurborg hefur
snarminnkað en er óbreyttur hjá ríkinu, þar sem
sjálfstæðismenn og Bélistinn (Framsókn) hafa ráðið
ríkjum í meira en áratug. Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir borgarstjóri sýndi svo um munar í haust að
Samfylkingin berst ekki bara fyrir meiri jöfnuði í
orði heldur líka á borði þegar lægstu laun borg-
arstarfsmanna voru hækkuð, þrátt fyrir hávær mót-
mæli sjálfstæðismanna. Einnig er athyglisvert að
bera saman mál sem varða Reykjavíkurborg annars
vegar og ríkið hins vegar hjá jafnréttisnefnd, kæru-
nefnd jafnréttismála og hjá dómstólum en ítrekað
hefur verið sett ofan í við ríkið fyrir að brjóta jafn-
réttislög og stjórnsýslulög við ráðningar og upp-
sagnir starfsmanna.
Það þarf vilja og snerpu
Hvers vegna hefur Reykjavíkurborg hefur náð svona
góðum árangri í réttindamálum kvenna. Svarið er
einfalt, Reykjavíkurlistinn, með Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og fleiri
kvenfrelsishetjur í broddi fylkingar, setti þessi mál
einfaldlega á dagskrá og hrinti þeim í framkvæmd.
Aðrir flokkar virðast þó ekki enn búnir að átta sig.
Stefna íhaldsins í dagvistunarmálum er í besta falli
óljós og Bélistinn vill leysa málin með því að borga
konum 50 þúsund krónur á mánuði fyrir að vera
heima (sem var á stefnuskrá íhaldsins í kosningum
1998).
Kvennagildran
Slík heimsendingarþjónusta er auðvitað móðgun við
allar konur. Fleiri konur en karlar ljúka nú stúdents-
prófi og fleiri konur en karlar stunda nám við há-
skóla. Konur, sem hafa fjárfest í menntun, hafa
áhuga á að nýta sér þá fjárfestingu samhliða því að
eignast börn og hafa ekki áhuga á því að vera heima-
vinnandi og borga 20 þúsund krónur í skatta af þess-
ari kvennagildrugreiðslu.
Kjósið Samfylkinguna
Fjölmörg tækifæri bíða í framtíðinni. Það skiptir öllu
máli hverjir taka við stjórn borgarinnar eftir kosn-
ingarnar í vor. Reykjavíkurborg verður að halda
áfram að vera framsækin og jafnréttissinnuð, bæði
hvað varðar mál sem snerta borgarbúa almennt og
þau mál sem snúa að rekstri borgarinnar. Það eina
rétta er að setja X við S hinn 27. maí.
Reykjavík og réttindi kvenna
Eftir Heiðu Björgu Pálmadóttur
Höfundur er lögfræðingur, varaformaður Ungra
jafnaðarmanna og skipar 16. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
SJÁLFSTÆÐISMENN í Garða-
bæ hafa í málflutningi sínum lagt
ríka áherslu á ábyrga fjármála-
stjórn. Ef samn-
ingur þeirra við
Klasa hf. um upp-
byggingu miðbæjar
í Garðabæ er dæmi
um ábyrga fjár-
málastjórn þá hef
ég greinilega mis-
skilið hugtakið
ábyrg fjármálastjórn og hvað í því
felst að vera ábyrgur.
Vissir þú:
Að Klasi hf. fær alla vega, jafn-
vel þó ekkert verði gert með
þeirra tillögur, yfir 20 milljónir í
greiðslu frá bænum?
Að komi til þess að Garðabær
gangi til liðs við aðra um tillögur
Klasa hf. skal Garðabær greiða
Klasa hf. að auki 1,3% af áætluðu
lokaverðmæti verkefnisins? Þetta
er kallað „sérstök þóknun“ í samn-
ingnum.
Að í upphaflega samningnum
frá maí 2005 var aðeins eitt
ákvæði sem verndaði hagsmuni
Garðabæjar, þannig að hægt væri
að segja samningnum upp, en það
hljóðar svo að „verði veruleg
eignabreyting á leiðandi hlutum í
Klasa hf. er Garðabæ heimilt að
segja samkomulagi þessu upp ein-
hliða“? Í sömu grein samningsins
er sagt að „ákvæði þetta um breyt-
ingar á eignar- og starfs-
mannahaldi fellur niður í árslok
2005“. Meirihlutinn gerir sem sagt
samning sem felur í sér eina út-
gönguleið fyrir bæinn, en semur
jafnframt um að ákvæðið falli úr
gildi nokkrum mánuðum síðar.
Hvaða hagsmuni er verið að
vernda þarna?
Að í viðaukasamningi, des. 2005,
er Garðabæ gert að lýsa því yfir,
að þrátt fyrir að forstjóri Klasa
hf., Þorgils Óttar Mathiesen, hafi
eignast 40% hlut í Klasa hf. þá
muni bærinn ekki nýta heimildina
úr upphaflega samningnum sem
kvað á um útgönguleið? Hvers
konar samningamenn eru þessir
sjálfstæðismenn? Hverra hagsmuni
eru þeir að vernda með þessu
ákvæði? Í mínum huga er þetta
fullkomlega óábyrg fjármála-
stjórn.
Að það hefur hvergi komið fram
að Klasi hf. skuli greiða fyrir það
landsvæði sem færi undir versl-
unarmiðstöð og íbúðablokkir á
verðmætum Sveinatungureitnum
við Hafnarfjarðarveginn? Hvernig
skyldi standa á því?
Að forstjóri Klasa hf. og hans
fjölskylda eiga 40% í félaginu?
Hvaða hag af verkefninu hefur
hann, annan en að það skili Klasa
sem mestum arði?
Að öllu þessi ferli átti að ljúka í
desember 2005? Hvernig má það
vera að jafn ábyrgt fyrirtæki og
Klasi hf. skuli ekki ná að standa
við tíma- og verkáætlanir? Hver er
eiginlega styrkur Klasa hf. í þessu
máli? Þeir voru nú einu sinni vald-
ir til verksins af sjálfstæðis-
mönnum í meirihlutanum.
Kæri kjósandi. Myndir þú fara
svona með þínar eigur? Ef ekki; af
hverju ættir þú þá að sætta þig við
að sjálfstæðismenn í bæjarstjórn
Garðabæjar ráðskist svona með
okkar verðmætu sameign upp á
hundruð milljóna?
Nei, það er staðreynd að væru-
kærðin hefur leitt af sér óábyrga
fjármálstjórnun og ógagnrýna
stjórnsýslu af hálfu meirihlutans.
Látum sjálfstæðismenn í bæj-
arstjórn axla ábyrgðina af eigin
vinnubrögðum. Komum í veg fyrir
fúsk og sérhagsmunapot. Ég hvet
þig kæri kjósandi til að hugleiða
þetta mál áður en þú tekur
ákvörðun. Sérstaklega ef þú ert
talsmaður ábyrgrar fjármála-
stjórnar í Garðabæ.
Bæjarlistinn er tilbúinn til for-
ystu. X-A!
Ábyrg fjármálastjórn í Garðabæ?
Er samningurinn við Klasa hf. dæmi um
ábyrga fjármálastjórn?
Eftir Þorgeir Pálsson
Höfundur skipar 4. sæti á lista
Bæjarlistans í Garðabæ.
Fréttir á SMS
Heimsferðir bjóða frábær tilboð til Rimini í maí og júní. Njóttu
lífsins í sumar á þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Rimini
er ekki aðeins frábær áfangastaður út af fyrir sig heldur eru
ótrúlega spennandi valkostir í næsta nágrenni, vilji menn kynnast
mörgum andlitum Ítalíu í einni ferð.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Rimini
Vinsælasti sumarleyfisstaður Ítalíu
Síðustu sætin í maí og júní
frá kr. 29.995
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
Verð kr.39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð
í viku. Stökktu tilboð 24. og 31. maí.
Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Aukavika kr. 10.000.
Verð kr.29.995
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, í íbúð í viku. Stökktu tilboð 24. og 31. maí.
Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Aukavika kr. 10.000.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg