Morgunblaðið - 17.05.2006, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Vélamenn og
meiraprófsbílstjórar
óskast
Óskum eftir að ráða vélamenn og meiraprófsbíl-
stjóra til starfa.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu
Jarðvéla í síma 414 7500, Bakkabraut 14, 200
Kópavogi, eða fyllið út umsóknareyðublað á
vefsíðu fyrirtækisins www.jardvelar.is.
Fasteignir Akureyrarbæjar óska eftir tilboðum í að
koma upp 18x33 m² sparkvöllum við Lundarskóla
og Giljaskóla, 9x18 m² blakvelli við Lundarskóla
og frágang á afmörkuðu svæði í kringum vellina
samkvæmt útboðsgögnum.
Helstu verkliðir eru jarðvinna og jarðvegsskipti í
vallarstæðum, lagning regnvatnslagna og
snjóbræðslulagna, tengingar lagna innanhúss,
raflagnir og lýsing, hellulagnir, malbikun og
þökulagnir, smíði girðinga og steypta stoðvegg við
sparkvöll við Giljaskóla. Gervigras og lögn á því er
ekki hluti þessa útboðs.
Verktími er til 15. ágúst 2006.
Útboðsgögn verða afhent í Þjónustuanddyri Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9, frá og með 18. maí.
Tilboðum skal skila til Fasteigna Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 4. hæð, og verða þau opnuð á sama
stað þriðjudaginn 30. maí kl. 11.30 að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Geislagötu 9, 4. hæð,
sími 460 1128
Útboð
Blak- og sparkvellir við
Lundarskóla og Giljaskóla
Fasteignir Akureyrarbæjar óska eftir tilboðum í
byggingu fjölnota íþróttahúss í Hrísey. Húsið skal
standa norðan núverandi sundlaugar. Verkið nær til
fullnaðarfrágangs alls verksins ásamt aðlögun að
núverandi mannvirki.
Helstu stærðir:
● Íþróttahús og búningsaðstaða um 624 m²
● Lóðarframkvæmdir um 200 m²
Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 1. júní 2007.
Útboðsgögn verða afhent í þjónustuanddyri
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, frá og með 22. maí
2006.
Bjóðendum er boðið í vettvangsskoðun 26. maí
kl. 10:00 á verkstað. Bjóðendur eru vinsamlegast
beðnir um að tilkynna mætingu í skoðunina til
Gylfa Snorrasonar, Fasteignum Akureyrarbæjar
í síma 460 1125. Bjóðendur eru hvattir til að mæta
og kynna sér aðstæður.
Tilboðum skal skila til Fasteigna Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 4. hæð og verða þau opnuð á sama
stað, fimmtudaginn 8. júní, kl: 11.00, að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Geislagötu 9, 4. hæð,
sími 460 1128
Útboð á byggingu
fjölnota íþróttahúss
í Hrísey
Atvinnuauglýsingar
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.00 norsk þjóð-
hátíðarsamkoma.
Anne Marie Reinholdtsen stjórn-
ar. Áslaug Haugland talar. Ath.
dagskráin fer fram á norsku.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Raðauglýsingar 569 1100
Óska eftir
Málverk
Óska eftir að kaupa málverk eftir eftirtalda lista-
menn:
Gunnlaug Scheving, Þorvald Skúlason, Júlíönu
Sveinsdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Louisu
Matthíasdóttur, Svavar Guðnason og Guð-
mundu Andrésdóttur.
Upplýsingar í síma 864 3700.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
FRÉTTIR
MÁLFUNDUR verður haldinn í
Háskólanum í Reykjavík í dag kl. 15
undir yfirskriftinni „Skipulagsmál í
nýju ljósi.“ Dr. Mark Pennington
lektor í stjórnmálafræði við Lund-
únaháskóla flytur framsöguerindi og
fjallar þar um rökin fyrir einka-
framtaki í skipulagsmálum.
Að loknu framsöguerindinu verða
pallborðsumræður með þátttöku
Ragnheiðar Ríkharðsdóttur bæj-
arstjóra, Þórs Sigfússonar forstjóra,
Þorkels Sigurlaugssonar fram-
kvæmdastjóra og Egils Helgasonar
blaðamanns. Fundarstjóri verður
Birgir Tjörvi Pétursson fram-
kvæmdastjóri RSE, sem stendur
fyrir ráðstefnunni.
Fundurinn verður haldinn í stofu
131b í Ofanleiti 2 og er öllum opinn.
Málfundur um
skipulagsmál
KIWANISKLÚBBARNIR Eldey,
Setberg, Sólborg, Hraunborg og Eld-
borg héldu sinn árlega Kiwanisdans-
leik fyrir fatlaða einstaklinga á sam-
býlum í Kópavogi, Garðabæ og
Hafnarfirði á sunnudagskvöld.
Hljómsveitin Ísafold lék fyrir dansi
og Idolstjarnan Ragnheiður Sara
kom og söng fyrir hópinn.
Undirbúningur fyrir dansleikinn
hefst í upphafi hvers árs og skipta
klúbbarnir með sér verkum. Á annað
hundrað fatlaðir einstaklingar og um
25 aðstoðarmenn frá sambýlum
skemmtu sér konunglega og hátt í 40
Kiwanisfélagar inna af hendi sjálf-
boðastarf við undirbúning, fram-
kvæmd og frágang.
Stuð á dansleik
REYKJAVÍKURAkademían stendur
fyrir málþingi á morgun, fimmtu-
daginn 18. maí kl. 16.30, um mót-
mæli og lýðræði. Málþingið er haldið
í aðalsal ReykjavíkurAkademíunn-
ar, Hringbraut 121, 4. hæð.
Frummælendur verða Viðar Þor-
steinsson heimspekingur og Illugi
Gunnarsson hagfræðingur. Að lokn-
um erindum verða pallborðs-
umræður með frummælendum og
Gesti Guðmundssyni, prófessor í fé-
lagsfræði við KHÍ, og Írisi Ellen-
berger, sagnfræðingi og umhverf-
isverndarsinna. Fundarstjóri er Jón
Ólafsson, prófessor í heimspeki við
Viðskiptaháskólann á Bifröst.
Málþing um mót-
mæli og lýðræði
SIÐMENNT, félag siðrænna húm-
anista á Íslandi, og Mannréttinda-
skrifstofa Íslands standa að mál-
þingi sem ber yfirskriftina
Trúfrelsi og lífsskoðanafélög.
Lífsskoðanafélög eru félög sem
fjalla um siðferði og lífsskoðanir
og sjá meðlimum fyrir fé-
lagslegum athöfnum eins og nafn-
gift, fermingu, giftingu og greftr-
un. Tilgangur málþingsins er að
fjalla um jafnræði trúfélaga,
skráningu lífsskoðanafélaga og
trúfrelsi á Íslandi.
Fulltrúi Mannréttinda-
skrifstofunnar talar um trúfrelsi
út frá mannréttindasjónarmiðum,
Oddný Mjöll Arnardóttir hdl.,
fjallar um skráningu trúfélaga út
frá mannréttindasamningum og
ákvæðum stjórnarskrár, Sigurður
Hólm Gunnarsson varaformaður
Siðmenntar talar um lífsskoð-
unarfélög og viðhorf Siðmenntar,
og Lorentz Stavrum lögfræðingur
Human Etisk Forbund (HEF) í
Noregi, segir frá réttarþróun og
stöðu mála í þar í landi. Að fyr-
irlestrum loknum munu fulltrúar
stjórnmálaflokka kynna viðhorf
flokka sinna til viðfangsefnisins
en að framsögum loknum verður
opnað fyrir spurningar og um-
ræður.
Fundurinn fer fram á morgun,
fimmtudaginn 18. maí kl. 16.15–
18, í Kornhlöðunni, Bankastræti
2. Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn.
Málþing um
trúfrelsi og lífs-
skoðanafélög
BRIMBORG býður 75.000 kr.
endurgreiðslu af sérstökum
Evróvisjón-bílum ef Silvía Nótt
vinnur ekki Evróvisjón.
Alls verða 32 Evróvisjón-bílar til
sölu hjá notuðum bílum Brimborg-
ar og stendur tilboðið frá þriðju-
deginum 16. fram á fimmtudag, 18.
maí, en þá stígur Silvía einmitt á
svið í forkeppninni.
Endurgreitt ef
Ísland vinnur ekki
LÖGREGLAN í Reykjavík auglýsir
eftir vitnum að árekstri sem varð á
sunnudag, 14 maí, á gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Lista-
brautar. Þar rákust saman grá
Subaru Legacy fólksbifreið og blá
Toyota Yaris fólksbifreið. Barst
lögreglu tilkynning um áreksturinn
kl. 10.21.
Var Subaru bifreiðinni ekið suð-
ur Kringlumýrarbraut og beygt til
vinstri austur Listabraut en Toyota
bifreiðinni norður Kringlumýrar-
braut og greinir ökumenn á um
stöðu umferðarljósanna.
Vitni að árekstrinum eru beðin
að hafa samband við lögregluna í
Reykjavík í síma 444 1130 eða
843 1133.
Auglýst
eftir vitnum
NORRÆNA upplýsingaþjónustan
Halló Norðurlönd stendur fyrir
námskeiðum sem kallast „Að flytja
til annars Norðurlands – hvað ber
að hafa í huga“. Á námskeiðunum
verður farið í gegnum helstu atriði
sem hafa ber í huga við flutninga,
hvaða réttindi og skyldur fylgja bú-
setu á hinum Norðurlöndunum,
hvert ber að snúa sér og fleira gagn-
legt. Þátttakendur fá ýmsar gagn-
legar upplýsingar um flutninga milli
Norðurlandanna. Námskeiðin eru
haldin á skrifstofu Norræna félags-
ins að Óðinsgötu 7 sem hér segir:
Danmörk: mánudaginn 22. maí kl. 18.
Svíþjóð: þriðjudaginn 23. maí kl. 18.
Noregur: þriðjudaginn 23. maí kl. 20.
Áhugasamir eru beðnir um að
skrá sig á námskeiðin í síðasta lagi
föstudaginn 19. maí Allar nánari
upplýsingar veitir Esther á skrif-
stofu Norræna félagsins, sími
511 1808 /netfang hallo@norden.is
Námskeið fyrir
fólk sem er að
flytja utanROKK og pólitík er yfirskrift uppá-
komu sem SFR og Starfsmanna-
félag Reykjavíkurborgar gangast
fyrir í nýrri félagamiðstöð BSRB á
Grettisgötu 89 í dag, miðvikudaginn
17. maí og hefst kl. 20. Þar munu
troða upp nokkrar rokkhljómsveitir
og nokkrir þeirra stjórnmálamanna
sem taka þátt í baráttunni fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar.
Með þessari uppákomu vilja SFR
og Starfsmannafélag Reykjavík-
urborgar auka áhuga ungs fólks á
stjórnmálum og kynna þau málefni
sem eru efst á baugi nú þegar kosn-
ingabaráttan er komin á fulla ferð.
Ljóst er að atkvæði ungs fólks geta
ráðið úrslitum. Þarna gefst kostur á
að slá tvær flugur í einu höggi, að
ræða milliliðalaust við fulltrúa allra
framboðanna og heyra í nokkrum
hljómsveitum sem hafa verið að gera
það gott.
Hljómsveitirnar sem stíga á svið
eru: Benni Hemm Hemm, Hjaltalín,
Mammút og Rass – órafmagnaðir.
Frá stjórnmálaflokkunum koma:
Björn Ingi Hrafnsson, Framsókn-
arflokki, Anna Sigríður Ólafsdóttir,
Frjálslynda flokknum, Dagur B.
Eggertsson, Samfylkingu, Bolli
Thoroddsen frá Sjálfstæðisflokki og
Katrín Jakobsdóttir, Vinstri græn-
um. Kynnir kvöldsins verður Þóra
Arnórsdóttir fréttakona.
Enginn aðgangseyrir er á Rokk
og pólitík og þótt samkoman sé fyrst
og fremst hugsuð fyrir unga kjós-
endur í SFR og Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar eru allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Rokk og pólitík
fyrir ungt fólk