Morgunblaðið - 17.05.2006, Síða 38

Morgunblaðið - 17.05.2006, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Nú reynir á félagsfærni hrútsins. Ný sambönd hjálpa þér við að umbreyta hugmynd yfir í áþreifanleg verðmæti. Gættu þess að endurtaka ekki tiltekið mynstur í samskiptum, sérstaklega ekki ef það á eftir að enda með ósköpum. Naut (20. apríl - 20. maí)  Ef nautið leggur of lítið undir leiðist því bara og það byrjar að búa til vandamál. Ef of mikið er í húfi missir það móðinn. Þú veist þú ert á réttri leið ef þú ert ekki viss um að vinna en langar samt til þess að reyna þig. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þarftu virkilega að leggja svona mikið á þig? Taktu það rólega. Það má alveg vera gaman að sjá sér farborða. Yfir- drifnar sögur létta lund. Áköfu fólki hættir til að ýkja, ekki trúa öllu sem þú heyrir en hlæðu með. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn hefur áhrif þegar hann ákveður að stappa í sig stálinu. Passaðu að hafa nóg svigrúm í dag. Annars fer allt í vitleysu ef þú lendir í umferðarhnút eða að fundur dregst á langinn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Takmark hjálpar manni að komast áfram en ekki þarf að gera allt að tak- marki. Eitthvað sem verið hefur á verk- efnalistanum um langt skeið má alveg fara, þó að þér takist ekki að klára það. Við þetta leysist aukaorka úr læðingi. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Samningar sem meyjan hefur unnið að, að því er virðist heila eilífð, eru enn á döfinni. Þolinmæði er málið. Allt hefur sinn tíma. Leiðbeindu þeim sem vinna undir þér af gætni, einn góðan veðurdag verður einn þeirra yfirboðari þinn. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Fólk sem segir að þú sért hugrökk mein- ar yfirleitt að þú látir eins og kjáni. Hvað veit það? Láttu eins og þú heyrir það ekki og leyfðu hugrekkinu sem þú þarft til fara aftur á fætur á morgun og leggja þig alla fram. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Eitthvað í skjalabunkanum á borðinu þínu lumar á þeim möguleika að þú getir unnið þér inn smávegis peninga. Farðu vel yfir öll smáatriði og leitaðu að smug- um. Lestu smáa letrið. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er gott að vera afkastamikill. Því betur sem þér líður, því meiru kemur þú í verk. Það er alger óþarfi að þrasa – bíttu bara í tunguna og bíddu átekta. Skyldustörf eru í höndum þeirra sem bera ábyrgðina. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ástvinur hljómar eins og fiðla sem leikur dramatískan og þunglamalegan tón. Forðastu að láta of mikla samúð í ljós. Þú vilt ekki ýta undir þá blekkingu að viðkomandi sé fórnarlamb aðstæðna. Segðu heldur: Ég trúi á þig! Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Nýttu þér greiða sem þú átt inni til þess að koma verkefni áleiðis. Allir eru að leita að góðum málstað og hann gæti vel verið þinn draumur. Að minnsta kosti einn þverkálfur skiptir um skoðun, ekki sætta þig við nei sem lokasvar. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fiskurinn sinnir verkefnum sínum af slíkum stíl að þeir sem eru í kringum hann suða af ánægju. Hann sér skemmtilegasta vinkilinn og nálgast við- fangsefnið þannig. Að tapa gæti verið það sama og að sigra í kvöld og öfugt. Stjörnuspá Holiday Mathis Tungl í steingeit er alvöru- gefið og svalt, alvarlega svalt. Það má líkja því við James Dean hallandi sér upp að mótor- hjóli, með krosslagðar hendur og sígar- ettu sem hangir kæruleysislega. Viðskipti fara fram án orða. Ástin lætur ekki á sér kræla eða fellur í yfirlið með ljóðrænni viðkvæmni. Meiriháttar atburðarás hefst með smávægilegri höfuðbendingu. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 gamansemi, 4 kom við, 7 snúa heyi, 8 dans, 9 handæði, 11 groms, 13 geta gert, 14 drýsilinn, 15 krukku, 17 örlagagyðja, 20 hygg- indi, 22 skrá, 23 fjand- skapur, 24 eldstæði, 25 mannlaus. Lóðrétt | 1 mjó lína, 2 árás, 3 teikning af ferli, 4 litur í spilum, 5 skyld- mennið, 6 bik, 10 kækur, 12 gætni, 13 elska, 15 leggja inn af, 16 skrínu- kostur, 18 amboðið, 19 sonur, 20 sigra, 21 munn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 munntóbak, 8 byrst, 9 áfram, 10 auð, 11 arður, 13 aumur, 15 flagg, 18 saggi, 21 Rut, 22 tuddi, 23 ísöxi, 24 snakillur. Lóðrétt: 2 umráð, 3 notar, 4 ónáða, 5 aurum, 6 obba, 7 ámur, 12 ugg, 14 una, 15 fætt, 16 aldin, 17 grikk, 18 stíll, 19 glöðu, 20 iðin. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Tónlist Þjóðleikhúskjallarinn | Kristjana Stef- ánsdóttir ásamt hljómsveit flytja lög og texta eftir Abbey Lincoln ásamt standör- dum sem hún hefur gert á ferli sínum. Tón- leikarnir hefjast kl. 21. Myndlist 101 gallery | Steingrímur Eyfjörð – Bein í skriðu. Til 3. júní. Anima gallerí | Björg Örvar barnasaga/ fiskisaga – málverk. Til 21. maí. Bókasafn Garðabæjar | 13 myndlist- arnemar úr Garðabæ með málverkasýn- ingu í húsnæði Bókasafns Garðabæjar. Café Karólína | Gunnar Kristinsson sýnir málverk, teikningar og prjónaskap þar sem sigurlið heimsmeistarakeppninnar í knatt- spyrnu 2006 er kynnt. Til 2. júní. Energia | Kristín Tryggvadóttir – Rauður þráður. Til 19. maí. Gallerí Galileó | Myndlistarsýning Ernu Guðmarsdóttur í Galleríi Galileó, Hafn- arstræti 1–3. Til 24. maí. Gallerí Humar eða frægð! | Sýning með hljóðtengdum myndverkum í tilefni Fjöl- ljóðahátíðar. Finnbogi Pétursson, Haraldur Jónsson, Steingrímur Eyfjörð, Kira Kira, Ólafur J. Engilbertsson og listnemar við LHÍ sem sýna bókverk. Gallerí Lind | Listamaður maímánaðar hjá Gallerí Lind er Guðrún Benedikta Elíasdótt- ir. Til 20. maí. Gallerí Úlfur | Gallerí Boreas frá New York sýnir verk eftir Adam Bates. Sýningin „Sögur“ stendur til 31. maí. Gel Gallerí | Dirk Leroux „A Model for The Treeman“. Til 8. júní. Hafnarborg | Rósa Sigrún Jónsdóttir er myndhöggvari mánaðarins í Hafnarborg. Verkin sem Rósa sýnir nú í kaffistofu Hafn- arborgar ganga undir heitinu „Svarthvítir dagar“. Til 29. maí. Hafnarborg | Örn Þorsteinsson mynd- höggvari sýnir í öllum sölum Hafnarborgar. Til 29. maí. Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí. Hrafnista Hafnarfirði | Eiríkur Smith, list- málari, sýnir í Menningarsal til 12. júní. Hönnunarsafn Íslands | Sýningin 3x3 er þriðja samsýning leirlistakvennanna Guð- nýjar Magnúsdóttur, Koggu og Kristínar Garðarsdóttur. Öll verk á sýningunni eru ný og unnin sérstaklega fyrir þessa sýningu. Til 18. júní. Kaffi Sólon | Þórunn Maggý Mýrdal Guð- mundsdóttir sýnir kröftug málverk. Til 9. júní. Karólína Restaurant | Joris Rademaker sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Til 6. okt. Kirkjuhvoll, Akranesi | Tolli sýnir olíu- málverk til 28. maí. Listasafn ASÍ | Kees Visser sýnir málverk í Listasafni ASÍ. Opið 13–17. Aðgangur ókeypis. Til 28. maí. Listasafn Íslands | Sýning á verkum Birgis Andréssonar og Steingríms Eyfjörð til 25. júní. Ókeypis aðgangur. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits- sýning á verkum Guðmundar Einarssonar frá Miðdal. Unnið í samstarfi við Nátt- úrufræðistofu Kópavogs. Safnbúð og kaffi- stofa. Til 3. júlí. Listasafn Reykjanesbæjar | Í EYGSJÓN? Sex færeyskir málarar. Myndefnið er fær- eysk náttúra. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Ásmundur Sveinsson – Maður og efni. Sýn- ing á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, stein, brons, og aðra málma – og hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sam- starfsverkefni Listasafns Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands þar sem um 75 nem- endur í útskriftarárgangi myndlista- og hönnunarsviðs sýna verk sín. Til 25. maí. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning fyrir unga listunnendur sem sett er upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn þar sem kynnt eru verk úr safneign Listasafns Reykjavíkur. Til 3. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja & Emiliu Kabakov sem eru fremstu konsept- listamenn heimsins í dag. Á sýningunni vinna þau með ólík þemu úr ævintýrum sagnaskáldsins mikla, H.C. Andersen. Hluti sýningarinnar fer einnig fram í porti Hafn- arhússins. Til 5. júní. Listasalur Mosfellsbæjar | Sundrun – sýn- ing á verkum Marissu Navarro Arason stendur nú yfir til 24. maí Næsti Bar | Undanfarin ár hefur Snorri Ás- mundsson þróað með sér andlega tækni í málaralist. Orkuflámamyndir hans sem eru taldar hafa lækningamátt hafa vakið sterk áhrif hjá áhorfendum. Til 26. maí. Óðinshús | Málverkasýning Jóns Inga Sig- urmundssonar – Við ströndina – í Óðins- húsi, Eyrarbakka. Til 28. maí. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til 28. ágúst. Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í eigu Safns. Aðgangur er ókeypis. Leiðsögn á laugardögum. www.safn.is Salfisksetur Íslands | Anna Sigríður Sig- urjónsdóttir – Dýrið. Til 21. maí. Skriðuklaustur | Svandís Egilsdóttir sýnir olíumyndir og verk unnin í gifs og lakkrís í gallerí Klaustri. Til 7. júní. Thorvaldsen Bar | Marinó Thorlacius með ljósmyndasýninguna „dreams“. Ljósmynd- irnar hans eru alveg sér á báti og hafa þær vakið mikla athygli bæði hérlendis sem og erlendis. Til 9. júní. Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir Rob Hornstra eru afrakstur af ferðum hans um Ísland og veita sýn á Ísland nútímans og vitna um samfélagsbreytingar síðustu ára. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu- konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra for- réttinda að nema myndlist erlendis á síð- ustu áratugum 19. aldar og upp úr aldamót- um. En engin þeirra gerði myndlist að ævistarfi. Þjóðminjasafn Íslands | Rjúpnaskyttur hjálpuðu Bryndísi Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson að skapa listaverk. Líka var unnið með nemendum Austurbæjarskóla og má sjá afraksturinn á Torginu. Til 11. júní. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning á kosningaminjum fyrri borgarstjórnarkosn- inga. Sýning sett saman af nemendum Guðmundar Odds í Listaháskóla og starfs- mönnum Borgarskjalasafns. Staðsetning Grófarhús, Tryggvagata 15, 1. hæð. Ókeypis aðgangur. Til 26. maí. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn frá kl. 10–17 alla daga nema mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl- unarsýning og gönguleiðir í nágrenninu. Sjá nánar á www.gljufrasteinn.is Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Sigríður Bachmann í Skotinu, nýjum sýningarkosti Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.