Morgunblaðið - 17.05.2006, Side 42
42 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
eee
V.J.V Topp5.is
eee
H.J. Mbl
eee
J.Þ.B. Blaðið
MI : 3 kl. 6, 9 og 11 B.i. 14 ára
MI : 3 LÚXUS kl. 6 og 9
Cry Wolf kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 4, 6 og 8
Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 4 og 6
Prime kl. 8
The Hills have Eyes kl. 10.10 B.i. 16 ára
Ice Age 2 m. ensku tali kl. 4
Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 4 og 6
FRÁ J.J.ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
eeee
VJV, Topp5.is
eee
H.J. mbl
eee
JÞP blaðið
pénelope cruz Salma hayek
Cry Wolf kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Skrolla & Skelfir Á Saltkráku kl. 6 (KR 500)
Inside Man kl. 8 B.i. 16 ára
Rauðhetta m/íslensku tali kl. 6
Lucky Number Slevin kl. 10:20 B.i. 16 ára
FYRSTA STÓRMYND
SUMARSINS ER KOMIN
S.U.S. XFM
FRÁBÆR GRÍNSPENNUMYND FRÁ SNILLINGNUM LUC BESSON
EFTIRSÓTTUSTU BANKARÆNINGJAR
VILLTA VESTURSINS ERU MÆTTIR
2 DAGAR Í FRUMSÝNINGU • FORSALA AÐGÖNGUMIÐ
Úlfur…úlfur… engin trúir
lygara þótt hann segi satt!
Magnaður spennutyllir sem fær hárin til að rísa!
Þau bjuggu til
morðingja sem
snerist gegn
þeim…!
TUGIR Íslendinga eru í hópi tug-
þúsunda aðkomumanna, sem eru
að tínast á frönsku rivíeruna um
þessar mundir alls staðar að úr
heiminum. Aðdráttaraflið er hin
árlega stórhátíð kvikmyndanna
sem hefst í Cannes í dag í 59. sinn.
Hundruð kvikmynda verða sýnd
í Cannes á næstu tíu dögum en
hæst ber þær tuttugu myndir sem
keppa um aðalverðlaunagrip hátíð-
arinnar, Gullpálmann, í ár.
Keppnismyndirnar í ár þykja
hafa á sér svolítið pólitískan blæ
en þær eru vitanlega af ýmsum
toga. La Raison Du Plus Faible
(Réttur hinna verst settu), Selon
Charlie (Samkvæmt Charlie), Fast
Food Nation (Skyndibitaþjóð), El
Laberinto Del Faunto (Völund-
arhús fánsins) og Volver (Snúið
aftur) eru nokkrar þeirra sem
hljóma álitlegar á komandi bíó-
dögum. Og meðal leikstjóranna
eru vel kunn nöfn. Spænski
stórvesírinn Pedro Almodóvar,
Finninn Aki Kaurismäki, Ken
Loach hinn breski og leik-
stjóraafkvæmið bandaríska Sofia
Coppola ásamt fleirum.
Um hver myndanna tuttugu
verður hlutskörpust er vandi að
spá, eða hvaðan hún kemur. Skyn-
samlegast væri þó að veðja á
franska mynd en það vill svo til að
ekki færri en ellefu myndir í
keppninni um Gullpálmann eru að
hluta eða öllu leyti frá Frakklandi.
Bretland, Bandaríkin og Ítalía
koma að þremur myndum hvert
um sig. Aðeins eina mynd má
rekja til Norðurlandanna og er
hún finnsk.
Íslenskir framleiðendur
með í slagnum
Íslenska mynd er ekki að finna í
keppninni um Gullpálmann þetta
árið en Íslendingarnir láta þó að
sér kveða hér og hvar í Cannes.
Mynd framleidd af þekktasta kvik-
myndaframleiðanda okkar, Sig-
urjóni Sighvatssyni, um franska
knattspyrnusnillinginn Zinedine
Zidane hefur verið valin ásamt 27
öðrum til sýningar utan keppni.
Þar situr hún við sama borð og
t.a.m. flugslysamyndin United 93
og þriðja myndin í seríunni um of-
urmennin X-Men.
Sigurjón er einnig framleiðandi
stuttmyndasafnsins Destricted,
sem valið hefur verið valið í flokk-
inn Critic’s Week. Í þeim flokki er
jafnframt myndin Den Brysomme
Mannen (Uppáþrengjandi gaurinn)
sem þeir Ingvar Þórðarson og Júl-
íus Kemp tóku þátt í að framleiða
og var að hluta tekin upp á Ís-
landi. Að auki eru fjölmargir hing-
að komnir til að kynna myndir sín-
ar, leita fjármögnunar, skoða það
sem er í boði annars staðar frá og
ekki síst að vekja athygli kvik-
myndagerðarmanna og framleið-
enda á Íslandi. Þannig stendur Al-
þjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja-
vík fyrir hádegisverðarboði á
sunnudag þar sem stendur til að
iðnaðarráðherra, Valgerður Sverr-
isdóttir, verði viðstödd ásamt ýmsu
áhrifafólki úr kvikmyndageiranum.
París opnunarmynd
Sjálfsagt verður mikið um dýrð-
ir á opnunarhátíðinni í Cannes í
dag. Dómnefndin viðruð og mynd-
uð. Að ógleymdri heimsfrumsýn-
ingu opnunarmyndar kvik-
myndahátíðarinnar um Da Vinci-
lykilinn margfræga, í leikstjórn
Rons Howards með Tom Hanks í
hlutverki Langdons prófessors.
Myndin er nú þegar orðin umdeild
líkt og bókin sem hún er byggð á
og er hennar beðið með eftirvænt-
ingu.
Og frá Louvre-safninu í París út
í hverfi borgarinnar. Í flokki kvik-
mynda sem sérstök athygli er vak-
in á, „Un Certain Regard“, voru
valdar 25 kvikmyndir. Opn-
unarmyndin í þeim flokki, Paris, je
t’aime, lofar góðu en um er að
ræða tilraunaverkefni þar sem 20
leikstjórar skiptu með sér hverfum
Parísarborgar og gerðu hver um
sig stutta ástarsögu úr sínu hverfi.
Myndina prýðir fjöldi þekktra leik-
ara og leikstjóra og verður athygl-
isvert að sjá hvernig til hefur tek-
ist.
Kvikmyndir | Kvikmyndaveislan í Cannes hefst í dag í 59. sinn
Stórhátíð kvikmyndanna
-
,
.//0
*-
8% 9:-;
'55- :-
+<
+-
6 -
68
6+ =-
> - +--9#
5 +" -
5 " 7
5? 9+
& - - -
@+$? 9# -
A-+A B-8# -
B #+-
B-C9-
#-. + # B#- #-*-4
7 -
4+ 5- $% 5+
2%* %T1T 5%1
5 * 1% ?%
. ! :
M
* ' %
% !.%
6 " ?;%
6%% ,
M
*
8* ?
'
S
( .U
8 -% %
- ?
I %%
%* %*
6
M
* (;
' N
(% '
8* .*
$ %&
&
./$ %&
* /* &
/
0&/
/$ #/& /*
&
1# -
/ /)
*
&/
/23/
0&/
* &
*
* &
'&/
* /0 /0&/23/.
.
Reuters
Leikkonurnar Carmen Maura og Penelope Cruz leika í myndinni Volver eft-
ir spænska leikstjórann Pedro Almodovar, sem keppir um Gullpálmann í ár.
Indigenes eftir leikstjórann Rachid Bouchareb tekur þátt í aðalkeppninni.
Ron Howard leikstýrir Da Vinci-lyklinum sem er heimsfrumsýndur á hátíðinni.
Verðlaunagripurinn Gullpálminn er
frá Chopard-skartgripafyrirtækinu.
’Skynsamlegast væriþó að veðja á franska
mynd en það vill svo til
að ekki færri en ellefu
myndir í keppninni um
Gullpálmann eru að
hluta eða öllu leyti frá
Frakklandi.‘
Eftir Soffíu Haraldsdóttur í Cannes
folk@mbl.is