Morgunblaðið - 11.06.2006, Side 23

Morgunblaðið - 11.06.2006, Side 23
Hlunnindi Framleiðslustarfsmenn 3.732.000 kr. í árslaun Við leitum að góðu fólki í fjölbreytt framleiðslustörf sem felast meðal annars í stjórnun framleiðslutækja, framleiðslukerfa og farartækja. Unnið er samkvæmt verkferlum í teymum á mismunandi starfsstöðvum. Þegar framleiðslustarfsmaður hefur fengið þjálfun og vottun til að vinna sjálfstætt á tilskildum fjölda starfsstöðva eru viðmiðunarlaun yfir árið um 3.732.000 kr. fyrir fullt starf í vaktavinnu. Rafvirkjar og vélvirkjar 4.915.000 kr. í árslaun Við leitum að fagmenntuðum rafvirkjum og vélvirkjum til að sinna fyrirbyggjandi viðhaldi sem á að tryggja áreiðanleika framleiðslunnar og hámarka um leið nýtingu og endingu tækjabúnaðar. Þegar iðnaðarmaður, með sveinspróf og þriggja ára starfsreynslu í faginu, hefur staðist hæfnismat í viðhaldsstarfi eru viðmiðunarlaun yfir árið 4.915.000 kr. fyrir fullt starf í vaktavinnu. Líkamsræktarstyrkinn geta starfsmenn meðal annars notað í nýrri og glæsilegri sundlaug á Eskifirði í 7 kílómetra fjarlægð frá álverinu. Ferðir, fæði og líkamsrækt Starfsmenn eiga við upphaf og lok venju- legs vinnudags og við vaktaskipti kost á endurgjaldslausum ferðum milli álversins og Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Fáskrúðs- fjarðar, Neskaupstaðar, Stöðvarfjarðar og Egilsstaða. Á vinnustaðnum fá starfsmenn eina máltíð daglega. Fjarðaál greiðir hverjum starfsmanni árlega 12.000 kr. styrk til að stunda líkamsrækt. VinnutímiYfirvinna og vaktir Hluti starfsmanna Fjarðaáls mun vinna á vöktum. Full vaktavinna er 36 virkar vinnu- stundir á viku að meðaltali. Vaktakerfi miðar við 8 klst. vaktir á virkum dögum og 12 klst. vaktir um helgar, samtals 39 virkar vinnu- stundir á viku að meðaltali. Gert er ráð fyrir 16,8 klst yfirvinnu á mánuði vegna vakta- kerfis og vaktaskipta. Störfin henta jafnt konum sem körlum Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá Alcoa Fjarðaáli. Starfsumhverfi er hannað þannig að öll störf henta jafnt báðum kynjum og stefnt er að góðri aldursdreifingu starfsmanna. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um störfin á heimasíðu IMG Mannafls-Liðsauka, www.mannafl.is og láta ferilskrá fylgja með. Frekari upplýsingar fást á www.alcoa.is og hjá Sigurlaugu Þorsteinsdóttur (sigurlaug@img.is) og Helgu S. Guðmundsdóttur (helgas@img.is) hjá IMG Mannafli-Liðsauka. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf í október 2006 eða síðar. Umsóknarfrestur er til og með 18. júní næstkomandi. Nánari upplýsingar um launakjör og vinnustaðarsamninginn er að finna á vefsvæðinu www.alcoa.is - undir starfsmannamálum. Árangur liðsheildarinnar. Starfsmenn Alcoa Fjarðaáls, við þjálfun í Brasilíu, fagna góðum árangri í knattspyrnuleik við heimamenn. Frá hæfni til árangurs www.alcoa.is Þitt tækifæri 100 vel launuð störf á góðum vinnustað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.