Morgunblaðið - 11.06.2006, Blaðsíða 73
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir Rob
Hornstra eru afrakstur af ferðum hans um
Ísland og veita sýn á Ísland nútímans og
vitna um samfélagsbreytingar síðustu ára.
Rjúpnaskyttur hjálpuðu Bryndísi Snæ-
björnsdóttur og Mark Wilson að skapa lista-
verk sem eru til sýnis á Veggnum. Líka var
unnið með nemendum Austurbæjarskóla
og má sjá afraksturinn á Torginu. Til 11. júní.
Tónlist
Hafnarborg | Ljóðatónleikar kl. 18. Margrét
Árnadóttir, sópran, og Iwona Ösp Jagla, pí-
anóleikari, flytja lög og ljóðaflokka eftir
Clöru Schumann, Richard Strauss, Hugo
Wolf, William Walton og Ívar Helgason.
Íþróttahúsið í Reykjahlíð | Kórastefna við
Mývatn kl. 15. W.A. Mozart; Requiem, og
finnsk og íslensk kórtónlist. Flytjendur: 250
þátttakendur kórastefnu, Margrét Bóas-
dóttir, sópran, Sesselja Kristjánsdóttir, alt,
Gunnar Guðbjörnsson, tenór, Ágúst Ólafs-
son, bassi, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands,
stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson.
Salurinn, Kópavogi | Söngtónleikar þriðju-
daginn 13. júní kl. 20. Þorsteinn Árbjörns-
son og Janette A. Zilioli flytja tónlist til-
einkaða ástinni. Miðaverð: 2.000/1.600.
Uppl. í síma 570 0 400. www.salurinn.is
Seltjarnarneskirkja | The Elizabethan
Madrigal Singers, ungmennakór úr listahá-
skóla í Wales, heldur tónleika í Seltjarnar-
neskirkju þriðjudaginn 13. júní kl. 20.30. Á
efnisskránni eru madrígalar, þjóðlög,
negrasálmar og léttmúsík, auk kórperla frá
Íslandi. Aðgangur er ókeypis.
Bækur
Listasafn ASÍ | ASÍ – Fraktal – Grill Huginn
Þór Arason og Unnar Örn J. Auðarson
unnu sýninguna í sameiningu með safnið í
huga. Listamennirnir reyna að fletta ofan
af illsýnilegum, óskráðum en kannski aug-
ljósum hliðum þess samfélags/umhverfis
sem þeir starfa innan. Opið 13–17. Aðgang-
ur ókeypis. Til 26. júní.
Útivist og íþróttir
Sögufélag Kjalarnesþings | Vorferð Sögu-
félags Kjalarnesþings verður í dag. Lagt
verður af stað frá Hlégarði kl. 10 og ekið í
Seljadal. Þaðan verður gengið yfir í Helga-
dal, en rúta sækir göngufólkið þangað.
Gönguferðin tekur um tvær klukkustundir,
fararstjóri verður Bjarki Bjarnason.
Fyrirlestrar og fundir
Alanó-húsið | 12 spora-fundir kl. 11–12, fyrir
skuldara, þar sem deilt er reynslu, styrk og
vonum og DA kynna þér lausnir. Héðinshús-
inu, Seljavegi 2, herbergi 3.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning
Borgarskjalasafns í anddyri Laugardals-
laugar um Laugarnesskóla í 70 ár. Sögu-
legur fróðleikur, ljósmyndir og skjöl. Opin á
opnunartíma laugarinnar. Allir velkomnir. Til
30. júní.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga í sumar kl. 9–17.
Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is og í 586 8066.
Listasafn Árnesinga | Tvær sýningar í
safninu. Sýningin HÉR er verðlaunasýning
Hrafnhildar Sigurðardóttur, en hún tók við
norrænu textíllistaverðlaununum í Svíþjóð
2005. Sýningin FORMLEIKUR – GEO-
METRIA er sýning Sonju Hakansson, en
hún var tilbúin með þessa einkasýningu
sama ár og hún lést, árið 2003. Til 18. júní.
Minjasafnið á Akureyri | Sumarsýning. Ef
þú giftist? Brúðkaupssiðir fyrr og nú. Ef þú
giftist fjallar um brúðkaup og brúðkaups-
siði í gegnum tíðina. Sýningin er unnin í
samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og er
opin alla daga milli 10 og 17. Til 15. sept.
Perlan | Sögusafnið í Perlunni er opið alla
daga kl. 10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í
gegnum fjölda leikmynda sem segja sög-
una frá landnámi til 1550. ww.sagamu-
seum.is
Þjóðmenningarhúsið | Handritin – Saga
handrita og hlutverk um aldir. Fyrirheitna
landið – fyrstu Vestur-Íslendingarnir. Það
gisti óður – Snorri Hjartarson 1906–2006.
Síðustu forvöð að sjá sýninguna um
Snorra, henni lýkur 17. júní.
Þjóðminjasafn Íslands | Nú stendur yfir
sýning á níu fornleifarannsóknum
Kristnihátíðarsjóðs í Rannsóknarýminu á 2.
hæð. Hér gefst tækifæri til að skoða úrval
gripa sem komið hafa úr jörð á síðustu ár-
um en mikil gróska hefur verið í fornleifa-
rannsóknum. Boðið er upp á fræðslu og
þjónustu fyrir safngesti. Þar eru sýningar
auk safnbúðar og kaffihúss. Opið alla daga
kl. 10–17.
Uppákomur
Listasafn ASÍ | ASÍ – Fraktal – Grill –
Sunnudaginn 11. júní milli kl. 15–17 taka lista-
mennirnir Huginn Þór Arason og Unnar Örn
J. Auðarson á móti gestum og ræða um
verk sín. Aðgangur að Listasafni ASÍ er
ókeypis.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 73
DAGBÓK
Pottþétt frí með Starcraft
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
Umboðsmaður á Akureyri:
Bílasalinn.is // Hjalteyrargötu 2
Starcraft RT. Smellpassar aftan í jeppann þinn.
Þú ferð lengra með upphækkað Starcraft RT á off-road grind Centennial og Starcraft series. Hreinn og klár lúxus
Starcraft pallhús.
Svítan á pallbílnum þínum. Fyrir allar gerðir pallbíla.
Alþjóðleg ráðstefna um trúleysi verðurhaldin í Reykjavík dagana 24. og 25.júní. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Já-kvæðar raddir trúleysis“ en að henni
standa SAMT – samfélag trúlausra, Skeptíkus –
félag trúleysingja við Háskóla Íslands, Vantrú og
Siðmennt.
„Ráðstefnan er haldin undir merkjum Atheist
Alliance International sem eru alþjóðleg samtök
trúleysingjafélaga. Samtökin halda reglulega ráð-
stefnu og sóttumst við eftir að halda ráðstefnuna
hér á landi í ár,“ segir Óli Gneisti Sóleyjarson,
einn skipuleggjenda ráðstefnunnar.
„Þetta er tækifæri fyrir trúleysingja og áhuga-
menn um trúmál að hlusta á áhugaverða fyr-
irlestra. Samkoma af þessu tagi og stærðargráðu
hefur mér vitandi aldrei fyrr verið haldin á Íslandi
og mikill fengur fyrir trúleysingja á Íslandi,“ seg-
ir Óli Gneisti.
„Við höfum fengið einstaklega góð viðbrögð frá
þeim fyrirlesurum sem við leituðum til og koma
margir þeirra til ráðstefnunnar fyrir brot af því fé
sem þeir fá venjulega fyrir að taka þátt í ráð-
stefnum af þessum toga.“
Ráðstefnuna heimsækir einvalalið fræðimanna
og rithöfunda: „Fyrstan má nefna breska þróun-
arlíffræðinginn Richard Dawkins. Hann er ein-
hver þekktasti núlifandi vísindamaður heims og
líklega þekktasti trúleysinginn líka. Dawkins hef-
ur fjallað ítarlega um trúarhugmyndir í rann-
sóknum sínum og skrifum og er m.a. höfundur
bókarinnar „The Blind Watchmaker“ sem oft er
kölluð skyldulesning um sköpunarkenninguna.
Hann vakti síðast athygli fyrir sjónvarpsþátt í
tveimur hlutum, „The Root of All Evil?“ þar sem
hann færði fyrir því rök að heiminum væri betur
borgið án trúarbragða,“ segir Óli Gneisti.
„Þá fáum við til okkar Dan Barker, fyrrum bók-
stafstrúarpredikara í Bandaríkjunum og núver-
andi trúleysingja. Hann skrifaði skemmtilega bók
um reynslu sína, og mun segja fundargestum frá
hvað gerðist þegar hann tók að lesa Biblíuna með
gagnrýnu hugarfari.“
Brannon Braga sækir einnig ráðstefnuna:
„Hann framleiddi, skrifaði og lék jafnvel í Star
Trek þáttunum. Auk þess að vera fengur fyrir
aðdáendur þáttanna mun hann segja frá við-
horfum sínum og Gene Roddenberry, skapara
Star Trek, til trúleysis,“ segir Óli Gneisti. „Síðast
en ekki síst má nefna Juliu Sweeney. Hún kemur
hingað með leikþáttinn „Letting go of God“ sem
hefur gengið á Broadway fyrir fullu húsi. Hún
hefur skrifað fyrir og leikið í þáttunum Saturday
Night Life og stendur einnig á bak við Að-
þrengdar eiginkonur.“
Þá eru aðeins nefndir nokkrir af þeim fjöl-
mörgu erlendu og innlendu fyrirlesurum sem taka
þátt í dagskrá ráðstefnunnar.
Nánari upplýsingar um dagskrána og þáttöku-
gjöld má finna á www.samt.is/conference. Þátt-
taka er öllum heimil á meðan enn eru laus pláss.
Trúmál | Fjöldi virtra fyrirlesara á ráðstefnunni „Jákvæðar raddir trúleysis“ 24. og 25. júní
Vegleg ráðstefna um trúleysi
Óli Gneisti Sól-
eyjarson fæddist á Ak-
ureyri 1979. Hann lauk
stúdentsprófi frá Verk-
menntaskólanum á Ak-
ureyri 2002 og er að
hefja nám í þjóðfræði
við Háskóla Íslands. Óli
Gneisti starfaði sem
bókavörður á Lands-
bókasafninu 2004–
2006 en starfar nú
sem filmusafnsvörður hjá 365 ljósvakamiðl-
um. Sambýliskona Óla Gneista er Eygló
Traustadóttir bókasafns- og upplýsingafræð-
ingur hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur.
Hagnýt sjónarmið.
Norður
♠32
♥KD7 S/AV
♦Á109
♣ÁD764
Suður
♠ÁD65
♥ÁG84
♦KG32
♣K
Zia Mahmood fengi seint verðaun
fyrir tæknilegar sagnir, enda alinn upp
við rúbertuborðið þar sem hagnýt
sjónarmið ráða ferðinni. Við slíkt til-
efni var hann í suður og vakti á einu
grandi, en tilgangurinn var auðvitað sá
að tryggja sér sagnhafasætið, hver
sem lokasögnin yrði:
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 grand
Pass 4 grönd Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Útspilið var lauftía.
Hvernig myndi lesandinn spila í
sporum Zia?
Tólf slagir eru öruggir með því að
finna tíguldrottninguna, en annars
verður að svína í spaða. Slíkt gefur
góðar vinningslíkur, en Zia vildi gera
betur.
Ef laufið er 4–3 (62%) má fría þar
slag og kannski neyða vörnina til að
hreyfa spaða eða tígul.
Norður
♠32
♥KD7
♦Á109
♣ÁD764
Vestur Austur
♠KG94 ♠1087
♥32 ♥10965
♦D54 ♦876
♣10985 ♣G32
Suður
♠ÁD65
♥ÁG84
♦KG32
♣K
Zia tók þrisvar hjarta, spilaði ÁD í
laufi og enn laufi. Vestur lenti inni á
laufníu og varð að gefa tólfta slaginn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjórn@mbl.is
JPV ÚTGÁFA hefur sent frá sér kiljuút-
gáfu af metsölubókinni Við enda
hringsins eftir Tom Egeland sem kom
út á síðasta ári og varð ein af met-
sölubókum ársins.
Söguþráður bókarinnar er á þessa
leið: „Við fornleifauppgröft í miðalda-
klaustri í Noregi kemur hópur al-
þjóðlegra vísindamanna niður á lítið
skrín úr skíragulli. Tvö þúsund ára
gamalt. Skrínið er harðlæst en forn-
leifafræðingarnir vita að það geymir
dýrmæta en ógnvekjandi leynd-
ardóma. Leyndardóma sem breyta
munu gangi sögunnar og skilningi
manna á kristinni trú og vestrænni
menningu verði þeim ljóstrað upp.
Voldug öfl svífast einskis til að varð-
veita þá leyndardóma sem skrínið
geymir og varla er það komið upp á yf-
irborð jarðar þegar því er stolið. En
Björn Beltö, ungur fornleifafræðingur
sem starfar við uppgröftinn, kemur hin-
um ósýnilegu andstæðingum í opna
skjöldu og við tekur æsispennandi elt-
ingarleikur sem berst víða um lönd.“
Tom Egeland hefur skrifað nokkrar
spennusögur og er jafnframt þróun-
arstjóri hjá TV 2 í Noregi. Bókin fór
beint í fyrsta sæti metsölulista Ey-
mundsson yfir innbundnar skáldsögur
við útkomu hér á Íslandi. Kristín R.
Thorlacius og Áslaug Th. Rögnvalds-
dóttir þýddu.
Nýjar bækur
Fréttir
í tölvupósti