Morgunblaðið - 11.06.2006, Side 42

Morgunblaðið - 11.06.2006, Side 42
42 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ 9. júní 1996: „Skipulagsstjóri ríkisins hefur ákveðið að fram skuli fara frekara mat á umhverfisáhrifum fyrirhug- aðs miðlunarlóns í Köldukvísl við Hágöngur. Landsvirkjun hefur kært þennan úrskurð til umhverfisráðherra. Krefst Landsvirkjun þess, að úr- skurður skipulagsstjóra verði felldur úr gildi og að fallizt verði á miðlun þessa á grundvelli frumathugunar um mat á umhverfisáhrifum. Upplýsingafulltrúi Lands- virkjunar segir, að kröfur skipulagsstjóra seinki fyr- irhuguðum framkvæmdum um eitt til tvö ár. Í nið- urstöðu skipulagsstjóra seg- ir: „Í ljósi þess hve víðtækar rannsóknir eiga eftir að fara fram og óljóst er um nið- urstöður þeirra er niðurstaða skipulagsstjóra ríkisins sú, að fram skuli fara frekara mat á umhverfisáhrifum. Þetta er gert til þess að hægt sé að fjalla um framkvæmd- ina á nýjan leik í ljósi nið- urstaðna frekari rannsókna og ítarlegri upplýsinga.“ Í athugasemdum Lands- virkjunar segir hins vegar: „Takmörk eru fyrir því til hvers megi ætlast af fram- kvæmdaraðila og telja verð- ur, að Landsvirkjun hafi nú þegar lagt fram þau gögn, sem með sanngirni er hægt að ætlast til að gert verði.“ Stefán Thors, skipulags- stjóri ríkisins, segir í samtali við Morgunblaðið í gær um athugasemdir Landsvirkj- unar: „Að fengnum at- hugasemdum og umsögnum var málið athugað og lagt mat á það, hvort í skýrslu Landsvirkjunar væri nægj- anlega vel gerð grein fyrir framkvæmdinni, áhrifum hennar á umhverfið og hugs- anlegum mótvægisaðgerðum. Okkar mat var, að svo væri ekki og var sú niðurstaða rökstudd með, að frekari rannsóknir skorti.““ . . . . . . . . . . 8. júní 1986: „Um hálfrar ald- ar skeið hafa Íslendingar haldið sérstakan sjó- mannadag hátíðlegan. Það er sannarlega við hæfi hjá þjóð, sem á allt sitt undir fisk- veiðum. Starfsvettvangur íslenskra sjómanna er þrískiptur. Fiskimenn færa björg að landi og öll sjávarvörufram- leiðslan hvílir á aflafeng þeirra. Farmennirnir flytja framleiðsluna, sjávarvörur og iðnvarning, á erlenda markaði – og innfluttar nauð- synjar til landsins. Loks er að nefna starfsmenn Land- helgisgæslunnar, sem gæta hagsmuna okkar og réttar innan hinnar víðfeðmu efna- hags- og fiskveiðilögsögu.“ . . . . . . . . . . 13. júní 1976: „Þegar fiski- skipaflotinn sigldi í höfn seint á síðasta ári, vegna óánægju sjómanna með fisk- verð, kom í ljós að mjög skorti á, að sjómenn hefðu al- mennt nægar upplýsingar í höndum um ýmis þau atriði, sem úrslitum ráða um af- komu þeirra, svo sem um verðþróun á einstökum fisk- tegundum erlendis, aðstæður á mörkuðum og sölumál yf- irleitt, en augljóst má vera, að fiskverð til sjómanna og útgerðarmanna hér innan- lands byggist að langmestu leyti á markaðsaðstæðum er- lendis. Nú er auðvitað ljóst, að á ör- fáum áratugum hefur orðið gjörbylting á högum þeirra, sem sjóinn sækja. Afar þeirra, sem nú eru á miðjum aldri, sóttu sjóinn á opnum árabátum, þegar þeir voru að hefja sinn sjómennskuferil. Nú er öldin önnur, en þetta sýnir okkur hvað umskiptin hafa orðið mikil.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. H ópefli er afgerandi þáttur í samfélagi manna og hefur verið frá örófi alda. Enda fer ekki á milli mála að með því að samstilla styrk einstaklinga hefur mann- kyninu tekist að áorka stórkostlegum hlutum. Nægir að nefna hin sjö undur veraldar til forna, óteljandi þrekvirki á sviði byggingarlistar í ald- anna rás og útrás samtímans í himingeiminn. Hópeflið er líklega sá þáttur í mannlegu eðli er hvað ríkast stýrir daglegu umhverfi og lífshátt- um í samfélögum heims – í það minnsta ef litið er til þess með afstæðum hætti sem mótandi afl í stjórnmálum, trúarbrögðum og alþjóðasamskipt- um. En enda þótt þessi tilhneiging mannfólksins til að efla styrk sinn með því að taka sig saman sé einhver fallegasti vitnisburður um mennsku sem hægt er að hugsa sér, á hópeflið sem slíkt líka sínar svörtu hliðar er birtast í margvíslegum myndum. Í gegnum tíðina hefur það iðulega ver- ið nýtt til að þjóna vondum málstað; kúga minni hópa, ala á hatri, fordómum og grimmd. Stríð, þrælahald, jafnvel útrýming hefur verið stunduð fyrir tilstilli hópeflis af einhverju tagi með skelfi- legum afleiðingum fyrir mannkynið allt. Einhver stærsta hópeflishátíð samtímans hófst í gær í Þýskalandi; HM – eða heimsmeist- aramótið í knattspyrnu. Mótið sem slíkt er í raun með dálitlum ólíkindum. Ekki þarf annað en líta til þeirrar samhæfingar sem þarf til að koma því á koppinn. Samhæfingar er teygir sig út um víða veröld; til allra þeirra milljóna einstaklinga er tekið hafa upp á því að sparka bolta með svo markvissum hætti að til þess er tekið, til allra þeirra óteljandi nálaraugna sem þarf að smjúga í gegnum til að verða leikmaður á heimsmeistara- móti sem þessu. Einnig má undrast áhrifamátt þess gríðarlega skipulags sem þróast hefur í kringum það ferli; skipulags sem hefur verið samhæft um heim allan til að allir lúti sömu reglum; skipulags sem aflar allra þeirra fjár- muna er þetta átak kostar. Síðast en ekki síst er hliðarverkun sú (ef hliðarverkun skyldi kalla) er hlýst af þessari iðkun svo stórkostleg að þess eru fá dæmi í heimssögunni. Áhorfendur um heim allan flykkjast á vellina (eða að skjámynd af völl- unum) í réttu hlutfalli við vægi leikja. Og þegar að heimsmeistaramóti er komið er eins og allar flóðgáttir opnist og allt sé lagt undir; peningar; heimilislíf; vinnustaðir – fyrir utan leikvangana sjálfa þar sem hinir útvöldu fá að berja átrún- aðargoð sín augum. Líklega hefur ekkert í sögu mannkyns annað en sjálf trúarbrögðin virkjað hópefli með slíkum krafti og skýrasta táknmynd þess eru leikvang- arnir sjálfir; einhver stærstu mannvirki borgar- samfélaga samtímans – oft á tíðum mun stærri og tilkomumeiri en dómkirkjur trúarbragðanna. Ekki má gleyma að sameiningarmáttur knatt- spyrnu er eftirtektarverður og gengur á þessum hápunkti sem HM er þvert á flest mæri landa, þjóðernis, tungumála og þjóðfélagsstétta. Kraft- urinn í slíku ferli er gríðarlegur enda hefur mikil áhersla verið lögð á bróðerni og vináttu í tengslum við ræktun knattspyrnuáhuga síðustu áratuga. Það er þó ekki hægt að horfa framhjá því að sem endranær á hópeflið sínar skuggahliðar, á þessu sviði sem öðrum. Sértækur heimur karla og vandi honum tengdur Miðað við hversu al- þýðleg og víðtæk upp- lýsing um knatt- spyrnu er í heiminum kann það að virðast heimskulegt að benda á að einungis karl- menn taka þátt í heimsmeistaramótinu – eða öllu heldur því heimsmeistaramóti sem skiptir heims- byggðina máli. Þó hlýtur það að sæta nokkurri undrun, því auðvitað er þetta sláandi staðreynd sem er í óþægilegum samhljómi við aldagamla yfirburði karla sem áhrifavalda í heiminum. Heimsmeistaramót í knattspyrnu kvenna er til, en áhrifamáttur þess er hverfandi miðað við hið fyrrnefnda og fráleitt að það móti lífsstíl fólks um allan heim á meðan á því stendur. Það rataði til að mynda ekki á sjónvarpsskjái Íslendinga síðast er það var haldið. Þarna sker knattspyrna sem heimsmót íþróttamanna sig til að mynda frá Ól- ympíuleikum með afgerandi hætti og ungar knattspyrnukonur hljóta að velta því fyrir sér af hverju þeirra heimsmeistaramót er ekki haldið samhliða hinu sem tilraun til að rétta þeirra hlut. Ýmislegt neikvætt sem hefðinni samkvæmt til- heyrir sértækri menningu karla hefur hugsan- lega átt greiðari leið inn í knattspyrnuheiminn vegna þessarar kynbundnu skiptingar og varpað dimmum skuggum á hann. Um síðust helgi fjallaði Karl Blöndal til að mynda um ofbeldi sem fylgifisk knattspyrnu í grein hér í Morgun- blaðinu, en yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem ferðast landa á milli til að valda usla og meiðslum á knattspyrnuleikjum eru karlar. Tekist hefur verið á við þann vanda með markvissum aðgerð- um víða um heim; bæði með uppfræðslu ungra drengja sem og með eftirliti lögreglu og forsvars- manna liða. Önnur afgerandi skuggahlið þessarar karla- menningar, sem brýst fram í hnotskurn í tengslum við stórviðburð á borð við heimsmeist- aramótið, er vændi. Umræða um vændi sem fylgifisk stórviðburða á sviði íþrótta vakti fyrst heimsathygli í tengslum við Ólympíuleikana í Ástralíu. Hún komst aftur á flug fyrir leikana í Aþenu 2004. Allt frá því snemma á þessu ári hafa síðan samtök kvenna víða um heim lýst áhyggj- um sínum af vændi í tengslum við HM í Þýska- landi og í raun fengið ótrúlega dræmar undir- tektir í opinberri orðræðu flestra landa. Á Íslandi má þó fagna því að ýmis samtök hafa komið á framfæri andmælum sínum og áhyggj- um vegna þessa máls á síðustu vikum; meðal þeirra vestnorrænar þingkonur, jafnréttisnefnd Reykjavíkur, íslenska kvennahreyfingin og prestastefnan í Keflavík. Viðbrögð Knattspyrnu- sambands Íslands, KSÍ, við þessum ályktunum bárust ekki fyrr en 5. maí sl. en þar segir: „Stjórn KSÍ hefur borist ályktun Prestastefnu 2006 og ályktun 14 kvennasamtaka þar sem vændi í tengslum við HM í Þýskalandi er mótmælt. Stjórn KSÍ mun koma ályktunum ofan- greindra samtaka á framfæri við Alþjóðaknatt- spyrnusambandið (FIFA) en minnir á að FIFA eru óháð íþróttasamtök sem ber að virða alþjóða- lög og landslög um heim allan. KSÍ er eitt af 207 aðildarlöndum FIFA og ber sem slíkt að virða ákvarðanir þess. Þá skal þess getið að FIFA hefur þegar sent frá sér ályktun vegna þessa máls sem finna má á vefsíðunni fifa- .com. Knattspyrnuíþróttin hefur á margan hátt rutt brautina fyrir skilningi manna á milli og sann- gjarnari heimi. Það hefur ekki síst tekist vegna þess að knattspyrnuhreyfingin um heim allan hefur gætt þess að hlutast ekki til um málefni á vettvangi stjórnmála einstakra ríkja. Þess í stað hafa knattspyrnusamböndin innan FIFA og FIFA sjálft reynt að láta gott af sér leiða með ýmiskonar góðgerðarstarfsemi og ályktunum sem beinast gegn hvers kyns mannréttindabrot- um. Úrslitakeppni HM í Þýskalandi á að vera glæsilegur vettvangur knattspyrnuleiksins – leiks sem á enga samleið með mannréttindabrot- um af nokkru tagi. Það er markmið FIFA, þýska knattspyrnusambandsins og þátttökuliðanna 32 í sumar að endurspegla þau gildi og þess má geta að FIFA hefur ákveðið að tileinka þessa keppni réttindum barna, friði og baráttu gegn hvers kyns fordómum. KSÍ mun ekki tjá sig frekar um málið í fjöl- miðlum.“ Eins og bent var á í aðsendri grein Þóreyjar Vilhjálmsdóttur í Morgunblaðinu í gær, föstu- dag, er það fyrst og fremst hálfvelgja sem ein- kennir þessa ályktun. Hún segir einu viðbrögð KSÍ þau „að senda út frá sér yfirlýsingu þar sem ekki er tekin ábyrgð á neinu og [...] að málið verði ekki rætt meira af þeirra hálfu“. Víst er að flestir þeir sem láta sig vændi sem samfélagsböl ein- hverju varða hljóta að vera henni sammála. Engu líkara er en að hagsmunir KSÍ gagnvart FIFA séu látnir ganga fyrir hagsmunum KSÍ gagnvart umbjóðendum sínum í grasrót íslenskrar íþrótta- iðkunar. Ekki síst ef litið er til þess að vændi er eitt alvarlegasta og víðtækasta mannréttinda- brot samtímans og andúð og fordæming á því stigmagnast á ári hverju, eins og ljóst má vera af vaxandi umræðum og áhyggjum yfirvalda um all- an heim hvað þennan málaflokk varðar. Færa má góð rök fyrir því að full ástæða sé fyrir KSÍ til að kynna sér betur þær aðstæður sem verið er að ræða í tengslum við HM og móta í kjölfarið mannúðlegri og afdráttarlausari stefnu hvað þetta álitamál varðar. Umhverfi vændisins á HM Talan fjörutíu þúsund hefur verið nokkuð stöðugt viðmið um fjölda þeirra kvenna sem fluttar hafa verið til Þýskalands til að bregð- ast við aukinni eftirspurn eftir vændi þann mán- uð sem HM stendur, en von er á um þremur milljónum gesta. Talan er byggð á líkindareikn- ingi, enda engin leið að staðfesta hana þar sem flestar þessara kvenna koma ekki til landsins eft- ir þeim leiðum sem fólk nýtir sér í hefðbundinni atvinnuleit þótt vændi sé reyndar lögleg „at- vinnugrein“ í Þýskalandi. Sannfærandi rök hafa SJÓMANNADAGUR Sjómannadagurinn er einn afhelztu hátíðisdögum íslenzkuþjóðarinnar. Svo hefur verið um langan aldur og vonandi verður engin breyting á því. Staða sjávarút- vegsins er að vísu önnur en fyrir ára- tug. Vægi þessarar grundvallarat- vinnugreinar þjóðarinnar í þjóðarbúskap okkar er um þessar mundir ekki jafn mikið og áður var en þó skyldu menn varast að líta svo á að um varanlega breytingu sé að ræða. Ekki þarf mikið að gerast á alþjóð- legum fjármálamörkuðum til þess að alvarlegt bakslag komi í viðskiptalífið hér og þá munu menn horfa til sjáv- arútvegsins á ný sem þeirrar atvinnu- greinar, sem máli skiptir. Hins vegar er rík ástæða til að hafa áhyggjur af stöðu þorskstofnsins eft- ir nýjustu tillögur Hafrannsókna- stofnunar um veiðar úr stofninum á næsta fiskveiðiári. Þær tillögur nálg- ast nú mjög lægstu mörkin, sem við komumst í um miðjan tíunda áratug- inn. Við hljótum að spyrja hvers vegna okkur hefur ekki tekizt betur við upp- byggingu þorskstofnsins eftir allar þær umræður, sem fram hafa farið um það mál og allar aðgerðir, sem gripið hefur verið til. Er Hafrannsóknastofnun á villigöt- um í rannsóknum sínum eða hafa sjávarútvegsráðherrar á þessu tíma- bili sýnt ábyrgðarleysi í ákvörðunum sínum? Hafa pólitískir hagsmunir ráðherranna meiri áhrif á ákvarðanir þeirra en vísindalegar rannsóknir? Málið er farið að snúast um þetta og óhjákvæmilegt fyrir ríkisstjórnina að skoða hug sinn vel áður en endanleg- ar ákvarðanir verða teknar um næsta fiskveiðiár. Þessar ákvarðanir hafa að sjálf- sögðu mikil áhrif á stöðu sjómanna al- veg eins og þróunin á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og áhrif þeirrar þróunar hér hafa áhrif á kjör sjó- manna. Hitt fer ekki á milli mála, að staða sjómanna er sú sama í hugum og hjörtum Íslendinga og hún hefur allt- af verið. Landsmenn bera virðingu fyrir sjómönnum, bera til þeirra mik- ið traust og óhöpp og slys á hafi úti snerta tilfinningalíf hvers einasta þegn þessarar þjóðar. Þetta kom skýrt í ljós í viðbrögðum landsmanna við alvarlegu slysi, sem varð um borð í togara á kjördag. Sú var tíðin að sjómenn voru upp til hópa fátækir menn. Nú eru margir sjómenn hálaunamenn eins og vera ber. Það er við hæfi að þeir sem sækja sjóinn beri mikið úr býtum. Eitt einkenni sjávarútvegsins, sem veldur því að atvinnugreinin er frá- brugðin öðrum er sú staðreynd að oft- ast er mikil samstaða meðal sjómanna og útgerðarmanna, þótt stöku sinnum hvessi á milli þeirra út af kjaramál- um. Sennilega er skýringin á þessu sú, að það er algengt að sjómenn á fiskiskipum vinni sig upp í að verða eigin herrar. Þeir hinir sömu gleyma hins vegar ekki uppruna sínum. Á tímabili var ástæða til að hafa áhyggjur af því, að þessi tengsl á milli útgerðarmanna og sjómanna væru að rofna. En framvindan í sjávarútveg- inum á síðustu árum og áratugum sýnir svo ekki verður um villzt, að enn er sá frumkraftur til í íslenzkum sjáv- arútvegi, að ungir kraftmiklir sjó- menn endi sem skipstjórar og eigend- ur fiskiskipanna. Morgunblaðið flytur íslenzkum sjó- mönnum og þjóðinni allri árnaðarósk- ir á sjómannadaginn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.