Morgunblaðið - 11.06.2006, Page 41

Morgunblaðið - 11.06.2006, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 41 Glaðvakandi á Menningarnótt! Vilt þú taka þátt í dagskránni? Það verður skemmtilegt að vaka fram eftir og heimsækja miðborg Reykjavíkur 19. ágúst næstkomandi þegar Menningarnóttin verður í algleymingi í ellefta sinn. Stjórn Menningarnætur hefur með höndum almenna samræmingu og kynningu á þeim atriðum sem fram fara í menningarstofnunum, galleríum, á götum úti, í kirkjum, bönkum, heimahúsum og víðar í miðborginni. Við stefnum að því að gera Menningarnóttina að eftirminnilegustu hátíð ársins og hvetjum listamenn og aðra skapandi einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki til að taka þátt. Hugmyndir eða upplýsingar um dagskráratriði skal senda fyrir 1. júlí næstkomandi, á Höfuðborgarstofu, Aðalstræti 2, 101 Reykjavík, merkt Menningarnótt, eða rafrænt á sif.gunnarsdottir@reykjavik.is Nánari upplýsingar veita Sif Gunnarsdóttir, sif.gunnarsdottir@reykjavik.is, sími 590 1500 og Eva Rún Þorgeirsdóttir, eva.run.thorgeirsdottir@reykjavik.is, sími 590 1500ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H BS 33 01 6 0 6/ 20 06 Doktor í menntunar- fræðum  ANNA Kristín Sigurðardóttir varði doktorsritgerð sína í mennt- unarfræðum við Háskólann í Ex- eter á Englandi, 21. mars sl. Rit- gerðin ber heitið „Studying and Enhancing the Professional Learning Comm- unity for School Effectiveness in Iceland“. Leið- beinendur voru David Reynolds og Robert Burden, prófessorar við kennaramennt- unardeild háskólans. Andmælendur í vörninni voru Ray Bolam, prófess- or í menntunarfræðum við háskól- ann í Cardiff, og Janet Draper, prófessor við Háskólann í Exeter. Rannsóknin beindist að því að skoða annars vegar tengsl lær- dómsmenningar í grunnskóla og ár- angurs skólans á samræmdum prófum og hins vegar leiðir til að styrkja lærdómsmenningu meðal starfsmanna skóla. Tekið var mið af fyrri rann- sóknum um lærdómsfyrirtæki, um þróun grunnskóla, árangursríka skóla og um starfsþróun kennara. Sterk lærdómsmenning var skil- greind innan skóla þar sem starfs- menn ígrunda eigið starf í samein- ingu og vega og meta eigið verklag með það að markmiði að bæta ár- angur nemendanna. Til að meta ár- angur skólans var spáð fyrir um út- komu á samræmdum prófum í 10. bekk með því að nota einkunnir í 4. bekk og menntunarstig foreldra í skólahverfinu. Síðan var spáin bor- in saman við raunverulega útkomu. Þannig var skóli sem hafði betri út- komu en búist var við talinn sýna góðan árangur. Rannsókninni var skipt í tvo hluta og gagna aflað með blönduðum aðferðum í þremur grunnskólum í Reykjavík. Í fyrri hluta voru skoðuð tengsl lærdóms- menningar og árangurs með því að bera saman lærdómsmenningu í tveimur skólum með mismunandi árangur. Síðari hluti var til- raunasnið þar sem reynt var að styrkja lærdómsmenningu í þriðja skólanum og skoðuð áhrif á árang- ur nemenda. Lærdómsmenning meðal fagfólks í skólunum þremur virtist almennt fremur veik sem birtist m.a. í fáum tækifærum til að miðla reynslu úr daglegu starfi og til að skoða og ígrunda verklag með gagnrýnum huga. Helstu nið- urstöður benda þó til sterkra tengsla milli árangurs skólans og lærdómsmenningar meðal starfs- manna sem gefur vísbendingar um að vinna við að styrkja lærdóms- menningu meðal starfsmanna skóla komi nemendum hans til góða. Sú vinna gæti m.a. falist í því að opna starfshætti og auka samstarf og sameiginlega ábyrgð kennara t.d. með teymiskennslu. Anna Kristín er fædd 5. ágúst 1957. Foreldrar hennar eru Sig- urður M. Sólmundarson og Auður Guðbrandsdóttir. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum að Laug- arvatni 1977 og lauk B.Ed-gráðu frá Kennaraháskóla Íslands árið 1981, BA-gráðu í sérkennslufræð- um árið 1993 og M.Ed-gráðu árið 1996 frá sama skóla. Anna Kristín er skrifstofustjóri grunnskólaskrif- stofu á menntasviði Reykjavík- urborgar. Hún er gift Þorvarði Kára Ólafssyni tölvunarfræðingi og eiga þau samtals 5 börn og eitt barnabarn. Nýir styrktar- aðilar langhlaupa UNDIRRITAÐUR hefur verið styrktarsamningur milli Reykjavík- urmaraþons, Asics og Cintamani. Með honum verður íþróttavöru- framleiðandinn Asics einn af stærstu bakhjörlum Reykjavíkurmaraþons og Cintamani-útivistarfatnaður helsti bakhjarl Laugavegshlaupsins. Asics og Cintamani verða einu fyrirtækin á hvoru sviði fyrir sig sem Reykjarvíkurmaraþon vinnur með á samningstímanum en hann er frá árinu 2006–2008. Asics og Cint- amani styrkja Reykjavíkurmaraþon- ið og Laugavegshlaupið með beinum fjárframlögum ásamt því að leggja til klæðnað á um 300 starfsmenn og gjafabréf fyrir keppendur. Á myndinni eru Skúli Björnsson, framkvæmdastjóri Sportís, og Knút- ur Óskarsson, formaður fulltrúaráðs Reykjavíkurmaraþons Glitnis. Egils Lite vinnur gullverðlaun ÖLGERÐIN Egill Skallagrímsson hefur á stuttum tíma tvisvar unnið gullverðlaun í alþjóðlegri keppni bjórframleiðenda fyrir Egils Lite. Nú síðast í belgísku Monde sel- ection-keppninni sem haldin er ár- lega. Þá vann Egils Lite nýlega gull- verðlaun í World Beer Cup 2006, heimsmeistarakeppni bjórframleið- enda í flokki kolvetnissnauðra bjóra. Guðmundur Mar Magnússon, bruggmeistari Ölgerðarinnar, hefur haft veg og vanda af þróun Egils Lite. Við þróun bjórsins var allt kapp lagt á að ná fram fyllingu í lit og bragði en halda hitaeiningunum í skefjum, segir í fréttatilkynningu. Gaf þrjú GPS-tæki NÝLEGA afhenti Guðmundur Bald- ursson, umdæmisstjóri Kiwanis- umdæmisins á Íslandi og Færeyjum, Hjálparsveit skáta í Hveragerði þrjú GPS-handtæki ásamt kortagrunni og kortum frá Landmælingum Ís- lands að gjöf. Gjöfin var afhent fyrir hönd Kiwanisklúbbsins Skjálfanda á Húsavík, sem hafði veg og vanda af söfnuninni. Var gjöf þessi gefin til styrktar hjálparsveitinni sem missti húsnæði sitt og nánast allan búnað í bruna sl. gamlárskvöld. Fréttir í tölvupósti Í DÁNARFRÉTT um Báru Sigur- jónsdóttur, fyrrverandi kaupkonu í Reykjavík, í Morgunblaðinu í gær var því miður farið rangt með nafn föður Báru. Hið rétta er að faðir Báru var Sigurjón Einarsson skip- stjóri. Útför Báru fer fram fimmtu- daginn 15. júní frá Hafnarfjarðar- kirkju kl. 14. LEIÐRÉTT Rangt föðurnafn SÍÐUSTU daga hefur verið mikið um að vera við Mjóeyrarhöfn. Á dögunum kom skip frá Fuji í Japan með afriðla og spennubreyta innanborðs sem nota á í kerskálum Alcoa-Fjarðaáls. Einnig kom skipið Happy Rover með loftstokka sem notaðir verða í lofthreinsivirki. Lokið verður við að afferma skipin yfir helgina. Annir við Mjóeyrarhöfn FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.