Morgunblaðið - 11.06.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.06.2006, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu sérlega fallegt pallabyggt raðhús með innbyggðum bílskúr, samtals 194 fm, vel staðsett í Byggðarhverfi í Garðabæ. Eigninni fylgir stúdíóíbúð með sérinngangi. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús, gang, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, stúdíóíbúð með baðher- bergi og bílskúr. Frábær staðsetning, stutt í skóla og leikskóla. Verð 42,5 millj. Eignin getur verið laus fljótlega. Myndir af eigninni á mbl.is. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Hlíðarbyggð - Garðabæ Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu glæsilega 94,7 fm 3ja herbergja íbúð á 10. hæð í góðu nýlegu lyftuhúsi vel staðsett nálægt allri þjónustu í Smáranum í Kópavogi. Eigninni fylgir einnig merkt stæði í bílageymslu. Eignin skiptist í for- stofu, hol, sjónvarpshol (er herbergi á teikningu), gang, eldhús, hjónaherbergi, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús, yfirbyggðar svalir og geymslu. Fallegar innréttingar og gólfefni eru parket og flís- ar. Verð 26,9 millj. Eignin getur verið laus strax. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Lautasmári - Kópavogi UM ÞESSAR mundir stendur yfir í Haag í Hollandi sýningin GLOCAL. Þar sýna þrettán ís- lenskir listamenn og einn erlend- ur í sýningarrýminu Quartair og hafa íslenskir myndlistarmenn sýnt þar reglulega undanfarna tvo áratugi. Sýningin er hluti af listahátíð Haag-borgar sem hófst 19. maí. Myndlistarmennirnir voru valdir af Kling og Bang galleríi og eiga það allir sameiginlegt að hafa starfað í Klink og Bank. Lista- mennirnir eru: Erling T.V. Kling- enberg, Sirra Sigrún Sigurðar- dóttir, Ásmundur Ásmundsson, Gunnhildur Hauksdóttir, Kristján Björn Þórðarson, Guðrún Benón- ýsdóttir, Tómas Lemarquis, Egill Sæbjörnsson, Ragnar Kjartansson, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ragnar Jónasson, Snorri Ásmundsson, Páll Banine og Kate MacIntosh. Umtalaður opnunargjörningur Sýningin hefur notið góðrar að- sóknar og umfjöllunar og vakti ekki síst athygli gjörningur sem framinn var á opnunardaginn: Röðuðu nokkrir karllistamenn sér í hring, gripu föstum tökum hver um annars pung og gengu með erfiðismunum hring eftir hring undir háværu myndbandi Snorra Ásmundssonar. Fékk athöfnin nafnið „Ballroom Dancing“. Verk Tómasar Lemarquis á sýningunni í Haag. Íslensk myndlist í Haag NÆSTSÍÐUSTU sinfóníutónleikar vetrarins, og hinir síðustu í rauðu röðinni, fóru fram sl. fimmtudags- kvöld við góða miðlungsaðsókn. Frumfluttur var Fiðlukonsert eftir Áskel Másson og leikin í fyrsta sinn á Íslandi 11. sinfónía eftir Dmitri Sjostakovitsj. Áskell kvað allra hérlendra tónhöf- unda iðnastur við grein einleikskons- ertsins og fer að líta út fyrir að hann ætli sér að semja öllum hljóðfærum sinfóníuhljómsveitarinnar einn slíkan ef fram heldur sem horfir. Þegar hef- ur hann m.a.s. hyglað hingað til lítt sinntum slagverkshljóðfærum á við marimbu og sneriltrommu, og eru því þó nokkrir tugir eftir ef rétt er til get- ið og allt tekið með – þó efast megi um að t.a.m. kastaníettur eða bassa- bumba beri heilan sólókonsert með góðu móti. Að þessu sinni var hins vegar fiðl- an í forgrunni – það hljóðfæri sem flestir konsertar hafa verið samdir fyrir að píanói undanskildu. Sam- anburðargrundvöllurinn ætti því að virðast geigvænlegur. En ekki var að heyra að nein slík vænisýki kæmi nið- ur á sköpun Áskels. Verkið var að vísu fremur stutt (um 22 mín.) en á móti borið uppi af fjölda innblásinna staða í einkum meðferð litbrigða og orkestrun. Þó að e.t.v. mætti kvarta undan vandheyrðri stefrænni úr- vinnslu – ekki ósvipuðum ásteyting- arsteini og gagnvart þróunarleysi popps eða raftónlistar er undanfarna áratugi virðast hafa einblínt meir á „sánd“ en formrænt innihald – þá fór orkestrunarleg litagleði Áskels langt með að upphefja frekar rapsódískt yfirbragð verksins. Sólistinn, Sigrún Eðvaldsdóttir konsertmeistari SÍ, var meira eða minna að allan tímann, ýmist í nánum samleik við hljómsveitina eða í stutt- um einleikskadenzum, að ógleymdri einni langri sem skildi að annars samtengdu tvo þætti verksins. Þó hún léki af blaði lét fiðluleikurinn nánast í eyrum eins og hún hefði flutt verkið margsinnis áður – að viðbættri útgeisluninni sem ávallt virðist fylgja þessum frábæra músíkanti. Sam- tvinnunin við hljómsveitina gat varla betri verið undir jafnt natinni sem hvetjandi stjórn Rumons Gamba. Sinfónían er Sjostakovitsj kenndi við byltingarárið 1905 (sem kvik- myndaunnendur minnast helzt fyrir Beitiskipið Potemkin eftir Eisen- stein) stendur tæplega á fimmtugu; samin 1956–57. Bendir sú langa bið varla til að verkið hafi þótt aðsókn- arvænt hér á landi, enda né heldur meðal vinsælustu hljómsveitarverka meistarans á heimsvísu. En nú var loks að því komið, þökk sé Sjostakovitsj-röðinni sem fast- astjórnandi SÍ hratt af stað í fyrra- vetur ef rétt er munað. Sögupólitískt prógrammverk sem þetta er afar vandmeðfarið, einkum ef skila á innlifun höfundar óslævðri til áheyrenda sem eru víðsfjarri til- urðartíma og því frekar viðfangs- tíma, enda rétt til fundið hjá tónleika- skrárritara að verkið komi oft fyrir sem „kvikmyndatónlist án kvik- myndar“. Í því sambandi má minna á að Sjostakovitsj var um þetta leyti löngu sjóaður í tónsetningu kvik- mynda er hann nánast neyddist til að lifa af meðan hann mest var undir smásjá Stalíns Kremlarbónda. Hefði harðstjórinn ugglaust tekið fjörkipp hefði hann lifað slíka sovétrealíska viðleitni hjá annars jafntaumfælnum þegni og Sjostakovitsj. Enda vakti verkið mikla lukku hjá næstu eft- irmönnum Stalíns. Eftir sem áður þykir hljómkviðan enn í dag torgþung í vestrænum tón- leikasölum. Ekki sízt vantar – líkt og í 6. sinfóníu Mahlers nýverið – alger- lega upplífgandi scherzóefni til mót- vægis angistinni, hryllingnum og harminum sem 11. sinfónían veltir sér upp úr vegna hörmunga „Blóð- uga sunnudagsins“ 1905 þegar her- menn Nikulásar II brytjuðu niður hundruð friðsamra mótmælenda af litlu tilefni. Það gekk því kraftaverki næst hvað tókst þrátt fyrir allt að halda áheyrendum vel við efnið í liðlega klukkutíma löngu verki um nánast eingöngu ógn, skelfingu, viðbjóð og harm. Partur galdursins fólst ugg- laust í ofurdýnamískri stjórn Ru- mons Gamba, er laðaði stundum fram einhverja styrkminnstu spila- mennsku sem heyrzt hefur af palli Háskólabíós. T.a.m. í nærri 10 mín. langa inngangsatriðinu – „Morg- unkyrrð fyrir Brávallavíg“ eins og mætti nefna það – er hélt hárinu á höfði manns bísperrtu mestallan tím- ann. Að atgangshörðustu staðirnir skyldu á móti vera með því hávær- asta sem glumið hefur á hlustir tón- leikagesta í langan tíma (hávaðinn af nýfluttri 1. sinfóníu Waltons virtist nú aðeins smámunir) er svo annað mál. En jafnvel þar tók maður stund- um ósjálfrátt að iða í sæti – þökk sé afburða snörpum og samtaka leik hljómsveitarinnar er sannaði enn sem áður að í góðum höndum er henni ekkert ómögulegt. Ógn og skelfing TÓNLIST Háskólabíó Áskell Másson: Fiðlukonsert (frumfl.). Sjostakovitsj: Sinfónía nr. 11 Op. 103, „Árið 1905“ (frumfl. á Ísl.). Sigrún Eð- valdsdóttir fiðla ásamt Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Stjórnandi: Rumon Gamba. Fimmtudaginn 8. júní kl. 19.30. Sinfóníutónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/ÞÖK „Lét fiðluleikurinn nánast í eyrum eins og hún hefði flutt verkið margsinnis áður – að viðbættri útgeisluninni sem ávallt virðist fylgja þessum frábæra músíkanti. Samtvinnunin við hljómsveitina gat varla betri verið undir jafnt natinni sem hvetjandi stjórn Rumons Gamba,“ segir Ríkarður Örn Pálsson meðal annars um frumflutning Sigrún- ar Eðvaldsdóttur og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á nýjum einleikskonsert Áskels Mássonar. UNDANFARIN sumur hefur bær- inn Krókur á Garðaholti í Garðabæ verið opinn almenningi til sýnis. Krókur verður opinn á hverjum sunnudegi í sumar frá og með deg- inum í dag frá klukkan 13 til 17. Krókur er lítill bárujárns- klæddur burstabær sem var endur- byggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó þar til ársins 1985. Afkomendur Þor- bjargar og Vilmundar í Króki gáfu Garðabæ bæjarhúsin í Króki ásamt útihúsum og innbúi árið 1998. Í Króki er einnig herbergi sem hefur verið nýtt sem vinnuaðstaða fyrir listamenn og sífellt fleiri lista- menn hafa sóst eftir að fá þar að- stöðu. Tilvalið er fyrir fjölskyldur að fá sér sunnudagsrúnt og koma við í Króki. Bílastæði eru við hliðina á Samkomuhúsinu á Garðaholti og Krókur er þar á ská á móti. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Opið hús í Króki á Garðaholti Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Opið hús er í Króki á Garðaholti frá klukkan 13 til 17 í dag. Aðgangur er ókeypis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.