Morgunblaðið - 11.06.2006, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 11.06.2006, Qupperneq 58
58 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN VIÐ félagar í Hesteigendafélaginu Geisla á Hellissandi lýsum furðu okkar á vinnubrögðum stjórnar Snæfellings varðandi úthlutun styrkja til byggingar reiðhúsa og reiðskemma á félagssvæði Snæfell- ings. Þann 10. apríl síðastliðinn barst stjórn Geisla bréf frá Snæfellingi. Bréfið var afhent af félögum í Hesteigendafélaginu Hring í Ólafs- vík. Erindi þessa bréfs var á þá leið að félagar í Geisla skyldu taka af- stöðu til þriggja kosta og svarið skyldi liggja fyrir ekki seinna en 17. apríl. Var brugðist skjótt við og hald- inn nokkuð fjölmennur fundur þar sem samþykkt var að gera það að tillögu okkar að þessum 40 millj- ónum, sem til úthlutunar voru, skyldi skipt þannig að 10 milljónir færu til félagsins í Stykkishólmi, 20 milljónir til félagsins í Grundarfirði og 5 milljónir á hvort félag í Snæ- fellsbæ, Hring og Geisla. Ef ekki væri hægt að verða við þessu þá töldum við að næstbesti kosturinn „sem boðið var upp á“ í bréfinu væri að reisa stóra reiðhöll fyrir Snæfelling í Grundarfirði. Boðið var upp á báða þessa kosti í bréfi Snæfellings, fyrir utan að talað var um 10 milljónir í Snæ- fellsbæ sem er félagssvæði Geisla og Hrings. Rökin fyrir því að við vildum skipta þessari upphæð eru að þessi hesteigendafélög eru með aðstöðu á sínu hvoru svæðinu og vegna fjar- lægðar er ekki kostur á að samnýta aðstöðuna á daglegum grundvelli, enda mun svona hús nýtast best á vetrum þegar samgöngur eru erf- iðar. Ekki brást stjórn Snæfellings síður skjótt við þegar kom að því að afgreiða umsókn okkar, því að okkur barst bréf dagsett 20. apríl, undirritað af einum stjórnarmanni Snæfellings, Sigrúnu Bjarnadóttur. Orðrétt var svarið á þessa leið: „Þar sem umsókn Hesteigenda- félagsins Geisla á Hellissandi um styrk til byggingar reiðhúss var ófullnægjandi gat stjórn Snæfell- ings ekki tekið hana til greina. Úr sama sveitarfélagi barst einnig um- sókn sem uppfyllti kröfur stjórnar og taldi stjórn Snæfellings ekki ráðlegt að sækja um styrk til byggingar á tveimur reiðhúsum í sama sveitar- félagi.“ Svo mörg voru þau orð. Nú viljum við spyrja stjórn Snæ- fellings, hvað er ófullnægjandi í umsókn okkar og hvað uppfyllir kröfu stjórnar? Við sækjum ná- kvæmlega um á þeim forsendum sem þið gefið okkur, að velja ein- hvern af þessum þremur kostum. Einnig viljum við spyrja, hvernig kynnti Snæfellingur þetta mál? Við fengum fyrst upplýsingar um að við ættum kost á að sækja um þetta fé 10. apríl 2006, þegar við fengum bréfið frá Snæfellingi úr höndum Hrings í Ólafsvík, sem greinilega hafði haft vitneskju um þetta í langan tíma og hafði meira að segja fengið úthlutaða lóð undir reiðhús á félagsvæði Hrings í Ólafsvík. Einn- ig hafði félagið fengið loforð hjá Snæfellsbæ um styrk í formi nið- urfellinga á aðstöðugjöldum fyrir væntanlegt reiðhús, „allt saman fyrir 10. apríl.“ Því miður lítur þetta út fyrir að hafa verið fyrirfram ákveðið af hálfu „einhverra“. Við félagar í Geisla skorum á stjórn Snæfellings að sniðganga ekki eitt hesteigendafélag af þeim fimm sem eru á svæðinu og endur- skoða afstöðu sína þannig að hún verði til hagsbóta fyrir alla fé- lagsmenn, ekki bara fáa útvalda. Með von um greið og skýr svör. Fyrir hönd Hesteigendafélagsins Geisla á Hellissandi, REYNIR AXELSSON, Hellissandi. Opið bréf til stjórnar Hesta- mannafélagsins Snæfellings Frá Reyni Axelssyni KOMDU sæll Einar. Þar sem mjög takmörkuð svör eða upplýsingar hafa borist við baráttu- máli okkar Skagfirðinga, um friðun fyrir dragnótaveiðum á Skagafirði innan línu sem dregin er úr Ketu- björgum í Almenningsnöf, þá finnst mér rétt að þú gæfir okkur grein- argóðar og málefnalegar upplýs- ingar um það hvar málefnið er statt í ráðuneytinu. Þetta baráttumál okkar Skagfirð- inga er búið að standa yfir í áratugi og ekkert jákvætt hefur gerst, við höfum einungis mætt útúrsnúningi og málefnið þæft fram og aftur. Finnst okkur hér heima að tími sé kominn til að snúa dæminu við og vinna fyrir okkur Skagfirðinga þannig einhver hreyfing komist á málið. Það var mikill dónaskapur og hroki hjá fyrirrennara þínum að hunsa fjögur hundruð mótmælaund- irskriftir héðan úr Skagafirði sem var safnað saman í fljótheitum. Svo lét hann húskarla sína senda bréf til sveitarstjórnar Skagafjarðar um að engar breytingar yrðu gerðar á dragnótaveiðum á Skagafirði og fannst fólki hér í firðinum lítið koma til þessa gjörningabréfs. Verður þess örugglega minnst í næstu alþingiskosningum, sem verða að ári. Þar sem ég er búinn að senda til ráðuneytisins talsvert af upplýs- ingum um reynslu og hug okkar Skagfirðinga til dragnótaveiða ætla ég ekki að tíunda þá hluti frekar. Þó vil ég minnast á að fyrir rúmum þrjátíu árum samþykkti sýslunefnd Skagafjarðar drög að lokun Skaga- fjarðar. Þá voru dragnótaveiðar búnar að ganga svo frá Skagafirði að ekki fékkst í matinn. Ég vil svo aftur leggja áherslu á það að fá málefnaleg svör, ekki lopa- þæfing eða útúrsnúninga sem alltof mikið er um ef stýrið er bundið fast í málefninu. RAGNAR SIGHVATS, sjómaður, Sauðárkróki. Opið bréf til sjávar- útvegsráðherra Frá Ragnari Sighvats ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122 Kringlan - endaraðhús Vandað 174 fm endaraðhús á eftirsóttum stað. Húsinu fylgir auk þess 26 fm stæði í bílageymslu. Húsið skip- tist m.a. í rúmgóðar stofur með fallegum arni, stórt eldhús og þrjú rúmgóð svefnherbergi. Úr stofum er gengið út í garð. Stórar suðursvalir eru útaf efri hæð hússins. Mikil lofthæð er á efri hæð. Parket og flísar á gólfum. Vandaðar innréttingar. Verð 49,9 millj. Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali OPIÐ HÚS Dísaborgum 3 Nýleg, björt og falleg 80,9 fm, 3ja herbergja endaíbúð, útsýnisíbúð á jarð- hæð með sérinngangi í fjórbýlishúsi. Stór afgirt suðursólverönd og garður. Húsið er klætt að utan með varan- legum hætti og stendur innst í lokaðri húsagötu. Verð 19,9 m. Eignin afhendist í júlí 2006. Andri og Rósa taka á móti gestum í dag, sunnudag, milli kl. 15 og 17. 52.000.000 Glæsilegt 212,1 fm parhús á þessum vinsæla stað í Garðabæ. Afar vönduð eign í alla staði. Frábært útsýni. Birkiás - 210 Garðabæ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.