Morgunblaðið - 11.06.2006, Side 64
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og sys-
tur,
GUNNHILDAR SNORRADÓTTUR,
Völvufelli 46,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Lands-
pítalans við Hringbraut.
Svavar Guðmundsson,
Margrét S. Guðmundsdóttir, Þórir Ingi Friðriksson,
Guðmundur Svavarsson, Sukunya Panalap,
Erna Björk Svavarsdóttir, Einar Ármannsson,
María Björk Svavarsdóttir,
barnabörn,
Pálína Snorradóttir, Jón Steinar Snorrason.
64 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elsku pabbi minn,
ekki strax, það er ekki
kominn tími, við eig-
um svo margt eftir að
ræða. Ég hugsa til
baka til Ólafsvíkur er þú fórst með
mig niður á bryggju til að veiða, og
ég byrjaði á að kasta færinu út í bát
og festa, þú dróst bátinn að okkur til
að losa festuna, þá hugsaði ég, ég á
sterkasta pabba í heimi. Þrek þitt og
dugnaður voru aðdáunarverð og
aldrei féll þér verk úr hendi, alltaf
að hugsa um að fjölskyldan hefði
nóg að bíta og brenna. Þú vannst í
slökkviliðinu og hjá Bigga Guðna á
milli vakta, en samt passaðir þú allt-
af upp á það að fjölskyldan þín fengi
einhvern tíma saman, þó ekki væri
það annað en að skreppa eina nótt í
BERGUR
VERNHARÐSSON
✝ Bergur Vern-harðsson fædd-
ist í Vestmannaeyj-
um 4. janúar 1944.
Hann lést á heimili
sínu í Keflavík 31.
maí síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Keflavíkur-
kirkju 9. júní.
tjald upp á Snorra-
staðatjörnum. Aldrei
gleymi ég því þegar
ég var 12 ára og þú
tókst mig með út í
Hvalseyjar með hin-
um körlunum til að
veiða lunda. Þá fannst
mér ég vera stór, já
risastór þegar strák-
arnir fengu að heyra
þegar heim var komið
um ævintýrið sem ég
átti með pabba úti í
eyju lengst úti í hafi.
Ekki gleymi ég því
hve stoltur þú varst þegar þú keypt-
ir þinn fyrsta bát einn, hann Bolla,
og ekki var ég minna stoltur þegar
þú réðst mig sem háseta til þín, og
oftar en ekki veiddum við meira en
hinir. Var það fyrst og fremst dugn-
aði þínum að þakka. Þegar þú fórst á
sjóinn fyrir nokkrum dögum og
komst með fullan bát að landi átti
enginn von á því að þetta væri þín
síðasta sjóferð. Þetta er ekki sann-
gjarnt að þú, aðeins 62 ára, sért tek-
inn frá okkur, en ég vil trúa því að
þinna krafta sé óskað annars staðar.
Og þegar guð kallar ræður enginn
við neitt, ekki einu sinni sterkasti
pabbi í heimi.
Elsku pabbi, ég veit að þegar við
hittumst næst setjumst við niður og
spjöllum lengi saman. Vil ég biðja
þig, góði Guð, að styrkja mömmu og
okkur systkinin í sorginni sem er
framundan.
Birnir.
Fallinn er frá, langt um aldur
fram, fyrrverandi samstarfsmaður
og félagi, Bergur Vernharðsson.
Bergur var aðeins 62 ára að aldri er
hann varð bráðkvaddur.
Bergur hóf störf hjá Slökkviliðinu
á Keflavíkurflugvelli á árinu 1967 og
starfaði þar allt þar til fyrir tveimur
árum eða svo að hann lét af störfum.
Við erum nokkrir sem höfum starfað
með Bergi nær öll þessi 37 ár og
kunnum við honum bestu þakkir
fyrir samstarfið. Bergur var dugleg-
ur og góður vinnufélagi og hrókur
alls fagnaðar þegar komið var sam-
an utan vinnu. Bergur var fylginn
sér og var þá óragur að segja sína
meiningu, en réttsýni og umhyggja
var honum í blóð borin.
Um leið og við kveðjum góðan fé-
laga vottum við Margréti eiginkonu
Bergs og öðrum ástvinum okkar
dýpstu samúð. Megi hann ganga á
Guðs vegum.
F.h. fyrrv. vinnufélaga,
Þórður Kristjánsson.
Hæ, ég er kominn.
Aðeins of seint, en
mættur. Þess hressi-
lega andblæs sem
fylgdi Pétri Þorvarð-
arsyni verður sárt
saknað. Stórt skarð hefur verið rofið
í nemendahópinn, fráfall hans er
Menntaskólanum mikill missir. Fjöl-
skyldu hans og vinum sendum við
PÉTUR
ÞORVARÐARSON
✝ Pétur Þorvarð-arson fæddist á
Egilsstöðum 10.
apríl 1989. Hann
lést um miðjan maí
og var útför hans
gerð frá Egilsstaða-
kirkju 30. maí.
innilegar samúðar-
kveðjur með þessu
ljóði, Vegferð, og biðj-
um þeim öllum Guðs
blessunar.
Látlaus eru
fótsporin til fjalla.
Fögur eru bros
og stöku glott.
Einhver sem að
getur gefið alla
gleði sína
það er ljúft og gott.
Framtíð sem að
fer of snemma burt
og fegurð sem að
hefur bara spurt
að því sem kann að kætast langtum best
er kannski á himni vorsins einna mest.
(Sigurður Ingólfsson.)
Starfsfólk Menntaskólans
á Egilsstöðum.
Elsku Pétur okkar. Á stundu sem
þessari koma minningar liðinna ára
upp í hugann. Þú tókst alltaf á móti
okkur með bros á vör og komst til
dyranna eins og þú varst klæddur.
Þú varst snillingur í að koma öllum í
gott skap hvernig sem ástandið var.
Jakkadansinn þinn ógurlegi á seint
eftir að líða okkur úr minni. Einnig
gleymum við aldrei kosningabaráttu
þinni í nemendaráðskosningunum
2004 þegar þú sagðist ætla að gefa
öllum popp og kók ef þeir myndu
kjósa þig. Þú varst ábyggilega einn
mesti Turtles aðdáandi í heimi. Þú
varst vinur allra og gerðir aldrei
mannamun. Ætíð munum við sakna
þín, elsku Pétur, og við erum þakklát
fyrir þann tíma sem við áttum með
þér.
Þínir bekkjarfélagar úr Grunn-
skólanum á Egilsstöðum og Eiðum.
Kom, huggari, mig hugga þú,
kom, hönd og bind um sárin,
kom dögg og svala sálu nú,
kom sól og þerra tárin,
kom hjartans heilsulind,
kom heilög fyrirmynd,
kom ljós og lýstu mér,
kom líf er ævin þver,
kom eilífð bak við árin.
(Vald. Briem.)
Bekkjarfélagar úr Grunnskól-
anum Egilsstöðum og Eiðum.
Elsku afi minn, mig
langar að þakka þér og
ömmu fyrir öll sumrin
sem ég dvaldi hjá ykk-
ur í sveitinni. Það var
alltaf jafngott að koma til ykkar. Ég
var svo montin að eiga afa og ömmu
uppi í sveit og vissi ekki betri tíma en
þessar vikur sem ég fékk að vera hjá
ykkur á sumrin.
Ég á margar góðar minningar um
þig. Það var gaman að keyra út póst-
✝ Kjartan JónssonHallgrímsson
fæddist á Siglufirði
19. janúar 1928.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Sauðárkróks
24. maí síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Hofsós-
kirkju 2. júní.
inn með þér, sérstak-
lega að fá að taka þátt í
starfinu, að flokka
póstinn og hlaupa með
hann í póstkassana.
Það var líka gaman að
sjá alla sveitabæina og
að heyra af fólkinu
sem bjó þar. Ég man
ennþá skýrt eftir póst-
húsinu á Hofsósi og
öllum blýklumpunum í
fötunni sem ég lék
mér að á meðan þú
spjallaðir við fólkið á
pósthúsinu. Það var
líka mikið stuð að fá að sitja hjá þér í
traktornum og veltast um á meðan
þú varst að slá.
Ég man eftir fyrsta skiptinu sem
ég sá þig slá með orfi og ljá. Ég hafði
aldrei séð slíkt áður og fylltist að-
dáun.
Það var líka gaman að fara með
þér og ömmu að vitja netanna. Mér
fannst alltaf svo langur og erfiður
gangur niður að sjó, en samt svo
spennandi að sjá hvort það væri
kominn fiskur.
Eina skiptið sem ég var viðstödd
sauðburðinn þá leyfðuð þið mér að
eiga eitt lambið. Þó að það væri að-
eins að nafninu til, þá var ég stolt af
því í mörg ár, jafnvel þó að ég sæi
það auðvitað aldrei aftur. Það var
svo gott að sitja á kvöldin á Tjörnum
og heyra tifið í hjartanu þínu á með-
an við krakkarnir dunduðum okkur.
Þá vissi ég að þú værir ekki langt
undan og það var fullkomin ró.
Ég vildi að ég hefði getað hitt þig
meira undanfarin ár, og að ég hefði
getað kvatt þig. En ég er þakklát
fyrir að hafa fengið að þekkja þig og
eiga þig sem afa, og hvað þið amma
hafið verið dugleg að halda sambandi
við mig í gegnum tíðina. Þið hafið
gert líf mitt mun ríkulegra og fjöl-
breyttara en ella.
Ég vona að þér líði vel þar sem þú
ert núna.
Steinunn Marta.
KJARTAN JÓNSSON
HALLGRÍMSSON
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR NARFI JAKOBSSON,
Reykjadal 2,
Mosfellsbæ,
lést á heimili sínu sunnudaginn 4. júní. Útförin fer
fram frá Mosfellskirkju þriðjudaginn 13. júní
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
Guðbjörg Sigurjónsdóttir,
Birgir Sigurðsson, Ágústa Þóra Kristjánsdóttir,
Baldur Sigurðsson,
Guðlaug Sigurðardóttir,
Bára Sigurðardóttir, Jón Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar okkar elskulegu eiginkonu, móður, tengda-
móður og ömmu,
GUÐJÓNU GUÐNADÓTTUR,
Hrauntungu 119,
Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll.
Þór Pálsson,
Atli Þórsson,
Árni Þórsson, Lilja Guðmundsdóttir,
Kittý Arnars Árnadóttir,
Eyrún Arnars Árnadóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARÍU JÓNSDÓTTUR,
Víðilundi 20,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungssjúkra-
húss Akureyrar fyrir góða umönnun.
Börn, tengdabörn og ömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför
PÉTURS GUÐLAUGSSONAR,
Austurbrún 37,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar LSH,
Kópavogi.
Halldóra E. Jónmundsdóttir,
Valur Karl Pétursson,
Soffía Margrét Pétursdóttir,
Guðrún Karólína Pétursdóttir,
tengdabörn og barnabörn.