Morgunblaðið - 11.06.2006, Page 67
BRAUTSKRÁNING fór fram frá
starfsstöð Landbúnaðarháskóla Ís-
lands á Reykjum í Ölfusi í Hvera-
gerðiskirkju 2. júní sl. 61 nemandi
brautskráðist, 43 úr starfsmennta-
náminu, þar af 15 fjarnemar og 18
úr diplómanámi skólans.
Dúx skólans er Guðrún Sigríður
Vilhjálmsdóttir, nemandi á skrúð-
garðyrkjubraut, með einkunnina
9,25. Þá fengu fjölmargir aðrir
nemendur viðurkenningu fyrir
námsárangur sinn.
Landbúnaðarháskóli Íslands tók
til starfa 1. janúar 2005. Skólinn
er vísindaleg fræðslu- og rann-
sóknastofnun á háskólastigi auk
þess sem þar er boðið upp á
starfsmenntanám í búfræði og
garðyrkjutengdum greinum á
Reykjum í Ölfusi. Rektor skólans
er dr. Ágúst Sigurðsson. Stað-
arhaldari á Reykjum er Guðríður
Helgadóttir.
Útskriftarhópurinn frá Reykjum, sem stundað hefur garðyrkjunám síðustu ár, ásamt forsvarsmönnum skólans.
Nýir garðyrkjufræðingar útskrifaðir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2006 67
FRÉTTIR
M
IX
A
•
fí
t
•
60
27
7
Kynningarfundur í utanríkisráðuneytinu
15. júní 2006
frá kl. 9.00 til 10.30
Haldinn verður kynningarfundur fyrir íslensk fyrirtæki og
ráðgjafa um möguleg viðskiptatækifæri hjá undirstofnun NATO,
NC3a (Consultation, Command and Control Agency).
NC3a sér um innkaup á vörum og þjónustu á sviði hugbúnaðar,
upplýsingatækni, fjarskipta, vöktunarkerfa, gervihnattakerfa
og þróunar- og þekkingarstjórnunar.
Framsöguerindi:
John D. Edell, Director of Acquisition
Tom Herway, Chief of Contracts
Vinsamlega skráið þátttöku og óskir um einkafundi
á netfangið berglind@mfa.is
Viðskiptatækifæri
hjá NATO
FUNDUR í Skógræktarfélagi skáta
við Úlfljótsvatn, sem haldinn var að
lokinni gróðursetningarferð skógar-
skáta að Úlfljótsvatni 30. maí sl.,
átelur Orkuveitu Reykjavíkur og
Klasa hf. harðlega vegna fyrirhug-
aðrar og umfangsmikillar sumar-
húsabyggðar við Úlfljótsvatn.
Í ályktun fundarins segir m.a:
„Áætlanir OR/Klasa um að skipta
jörðinni Úlfljótsvatni sem er í al-
menningseigu, upp í mörg hundruð
lóðaskika og selja til hæstbjóðendum
til einkaafnota, stefnir í voða mann-
ræktar- og skógræktarstarfi sem
skátar hafa unnið að við Úlfljótsvatn
í áratugi. Skógarskátar beina þeim
eindregnu tilmælum til OR/Klasa að
falla þegar í stað frá þessum fram-
kvæmdum, en þess í stað að efla það
mannræktar, uppeldis- og menning-
arstarf sem þegar er unnið að við
Úlfljótsvatn.
Skógarskátar telja að með þeim
hætti verði hagsmunum almennings
til útivistar, hreinleika og sérstöðu
náttúrunnar best borgið. Verði
áform OR/Klasa að veruleika verða
ræktunarsvæði Skógarskáta á Úlf-
ljótsvatni, ýmissa skátafélaga um
land allt, sem og barna og unglinga
sem dvalist hafa á staðnum við leik
og störf stórlega skert og vísar að
framtíðarskógum, sem þegar hafa
myndast á landareigninni, verða
eyðilagðir.
Fyrirhuguð sumarhúsabyggð OR/
Klasa við Úlfljótsvatn þjónar því
ekki hagsmunum almennings en er á
kostnað náttúru, dýraríkis, votlend-
is, vatnsverndar og friðaðra mýra
um gjörvallt svæðið.
Ljóst er að þessar hugmyndir
ganga á svig við fyrri áætlanir
Reykjavíkurborgar um framtíðar-
sýn að nýtingu Úlfljótsvatnsjarðar-
innar sem starfsemi og tilvist skáta-
hreyfingarinnar byggir að verulegu
leyti á.“
Skógræktarfélag skáta við Úlf-
ljótsvatn var stofnað 1987. Skömmu
áður hafði jörðin loks verið girt fjár-
heldri girðingu. Hafist var handa við
að gróðursetja skjólbelti á tjald-
svæðum þar sem stór skátamót hafa
verið haldin sem og á svæðum for-
eldrabúða. Smám saman var komið
upp skógarlundum á ýmsum stöðum.
Skátafélögum var úthlutað svæðum
þar sem félagsmenn þeirra gróður-
settu „sín“ tré. Þátttakendur í skáta-
mótum hafa annast gróðursetningu
trjáa og fræðst um skógrækt. Síð-
ustu árin hefur Skógræktarfélag
skáta unnið markvisst að því að
planta skógarplöntum víðs vegar á
svæðinu. Í vaxandi mæli eru gróð-
ursettar alíslenskar trjátegundir og
auka þær þannig gildi landsins til
útivistar, bæði fyrir almenning,
skáta og aðra útilífsunnendur. Gróð-
ursetningin hefur ávallt verið sjálf-
boðastarf þúsunda skáta, ekki aðeins
íslenskra, heldur einnig útlendra
skáta sem sótt hafa skátamót á Úlf-
ljótsvatni. Börn og unglingar, þátt-
takendur í námskeiðum af öllu tagi
og í sumarbúðum, hafa einnig flest
átt þátt í því uppgræðslustarfi sem
unnið hefur verið undir markvissri
forystu Skógræktarfélags skáta.
Vilja að hætt verði við
byggð við Úlfljótsvatn
VISA Ísland og Íþróttasamband
fatlaðra (ÍF) hafa framlengt sam-
starfssamning sinn. Samningurinn
er til þriggja ára og um er að ræða
fjárhagslegan styrk sem er ætlaður
til styrktar ÍF, m.a. við undirbúning
og þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra
í Peking 2008. Samningurinn gildir
frá 2006 til 2008.
Á myndinni sjást þeir Leifur
Steinn Elísson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri VISA Ísland, og
Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður
ÍF, við undirritun samningsins. Með
þeim á myndinni eru Kristín Rós
Hákonardóttir og Jón Oddur Hall-
dórsson en þau tóku þátt í VISA
paralympic Cup, boðsmóti sem
fram fór í Manchester í Englandi á
dögunum.
VISA og ÍF
framlengja
samning
SVÆÐISSKRIFSTOFA málefna
fatlaðra í Reykjavík er tíuþúsund-
asti viðskiptavinur Símans í Cent-
rex þjónustu. Í tilefni þess afhenti
Síminn forsvarsmönnum svæð-
isskrifstofunnar 22 heyrnartól sem
notast er við með Centrex sím-
unum.
Á myndinni eru Ingvar Páll Inga-
son, viðskiptastjóri hjá Símanum,
Eva Magnúsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans, Birna Björnsdóttir,
Kjartan Þór Halldórsson og Jón
Heiðar Ríkharðsson hjá Svæð-
isskrifstofu málefna fatlaðra í
Reykjavík.
Fengu heyrnartól að gjöf
LJÓSIÐ, endurhæfingar- og stuðn-
ingsmiðstöð fyrir krabbameins-
greinda og aðstandendur þeirra,
hefur fengið styrk til starfseminnar
frá Krabbameinsfélagi Íslands að
upphæð 2,5 milljónir króna.
Styrkurinn var afhentur á aðal-
fundi Krabbameinsfélagsins um
miðjan maí. Þar kom fram að félag-
ið telur starfsemi Ljóssins mikils-
verða viðbót við þá þjónustu sem
hefur verið í boði á öðrum vett-
vangi og að mikilvægt sé að efla
góða samvinnu um stuðning við
krabbameinssjúklinga og aðstand-
endur þeirra, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Á myndinni eru Laufey Jóhanns-
dóttir og Erna Magnúsdóttir frá
Ljósinu og Guðrún Agnarsdóttir og
Sigurður Björnsson frá Krabba-
meinsfélaginu.
Krabbameinsfélagið
styrkir Ljósið