Morgunblaðið - 24.06.2006, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.06.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 169. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Nýbakað brauð í hvert mál þar sem þú finnur heitustu bakaríin um land allt Umlukinn hávaðaveggnum Sigurjón og Óttarr í Ham sækjast á ný eftir suði í eyrum | Menning Lesbók | Kúrekarnir koma  Listahátíð Lincoln Center  Geislum lýsist hugarslóð Börn | Myndagleði í skák  Verðlaunaleikur vikunnar Íþróttir | Frakkland áfram  FH, Valur og ÍA í Evrópukeppni Í DANMÖRKU eins og víðar hafa náms- menn bætt fjárhaginn með ýmiss konar sumarvinnu en nú eiga þeir í samkeppni úr heldur óvæntri átt, nefnilega við eftir- launaþega. Þeir eru að verða eftirsóttur vinnukraftur á hótelum, sumarbúðum, tjald- stæðum og miklu víðar. Frá þessu segir í Nordjyske Stiftstidende og hefur blaðið eftir atvinnurekendum að þeir séu miklu betri vinnukraftur en unga fólkið. Þeir séu ekki alltaf með annað augað á klukkunni, hafi til að bera ákveðinn myndug- leika og kunni að ræða við gesti og gangandi vegna mikillar og langrar reynslu. „Eftirlaunaþegarnir kunna til verka, kunna að beita skóflu, haka eða hrífu, og þeir kúgast ekki þótt gera þurfi við bilað klóak,“ sagði Hans Henrik Hansen, eigandi Blokhus Camping. Á hóteli í Frederikshavn er reynt að komast hjá því að ráða námsmenn. Hella ekki í sig um helgar „Þeir gömlu vakna á morgnana, eru sjald- an veikir og hella ekki svo mikið í sig um helgar að þeir geti ekki mætt á mánudegi,“ sagði Janne Fresen í Frederikshavn. Þeir, sem vinna að málefnum aldraðs fólks, fagna þessari þróun. Það sé ekki bara að eftirlaunaþegarnir fái nokkrar aukakrón- ur í vasann heldur komist þeir út á meðal fólks og eigi síður á hættu að einangrast. Gamalt og gott Miami. AFP. | Mennirnir sjö, sem handteknir voru í Bandaríkjunum á fimmtudag vegna gruns um að þeir hygðust sprengja upp Sears-turn- inn í Chicago, komu fyrir rétt í gær þar sem þeim var birt ákæra. Ættingj- ar mannanna fullyrða að handtökurnar séu „sjón- arspil“ sem ætlað sé að hræða bandaríska borgara. Alberto Gonzales, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að þeir væru hryðju- verkamenn sem hefðu orðið fyrir áhrifum af ofbeldisfullum boðskap um heilagt stríð og snúist gegn samfélaginu sem þeir byggju í. Verði þeir fundnir sekir eiga þeir yfir höfði sér allt að 70 ára fangelsisdóm. Sjömenn- ingarnir ákærðir  Sagðir | 19 TORTRYGGNI virðist ríkja á milli múslímaheimsins og Vesturlanda og er hún á báða bóga, samkvæmt könn- un á viðhorfi íbúa heimsins. Margir Vesturlandabúar líta á múslíma sem ofstækisfulla og óumburðarlynda of- beldismenn og margir múslímar á hinn bóginn telja Vesturlandabúa sjálfselska, siðlausa og gráðuga, sam- kvæmt könnuninni sem rannsóknar- stofnunin Pew í Washington gerði. Í rannsókninni voru könnuð viðhorf 14.000 manna í 13 löndum, að því er fram kemur á fréttavef breska rík- isútvarpsins, BBC. Roger Hardy, sérfræðingur í mál- efnum íslams hjá BBC, telur atburði eins og sprengjuárásirnar í London 7. júlí í fyrra og uppnámið vegna skop- myndanna af Múhameð spámanni í Jótlandspóstinum, hafa haft áhrif á viðhorf beggja. Konum ekki sýnd virðing Höfundar rannsóknarinnar tala um „djúpa gjá“ á milli þessara samfélaga sem endurspeglist m.a. í því að bæði fordæmi hitt fyrir hvernig komið sé fram við konur hjá þeim. Fjöldi Vest- urlandabúa telji að múslímar „sýni konum ekki virðingu“ á meðan fjórir af hverjum fimm múslímum segi hið sama um Vesturlandabúa. Tortryggni ríkir á báða bóga Könnun á viðhorfi múslíma og Vesturlandabúa hvorra til annarra ÁRIÐ 2004 sóttu 76 einstakling- ar um hæli hér á landi en engum þeirra var veitt hæli. Í hópnum voru sjö frá Nígeríu og sjö frá Búlgaríu, sex komu frá Írak, sex frá Serbíu og aðrir sex frá Sri Lanka. Þá kom töluverður fjöldi manna frá stríðshrjáðum löndum, svo sem tveir frá Afganistan, einn frá Sierra Leone, þrír frá Palestínu og þrír frá Kongó. Þetta kemur fram í grein eftir Sigrúnu Sigurðardóttur sagn- fræðing í Lesbók í dag. Í greininni kemur einnig fram að einn flóttamaður fékk hæli hérlendis á árunum 1999 til 2003 af 264 einstaklingum sem sóttu um hæli sem pólitískir flótta- menn. Óljóst um afdrifin Um tuttugu hælisleitendur hafa fengið tímabundið dvalar- leyfi á Íslandi en flestum hefur verið vísað úr landi. Hvað orðið hefur um þá er ekki vitað. Ein- hverjir þeirra hafa verið sendir til heimalands síns, aðrir hafa fengið mál sitt til umfjöllunar í einhverju öðru Evrópulandi. Ein af ástæðum þess hversu fáir hælisleitendur fá viðurkenn- ingu á stöðu sinni sem flótta- menn hér á landi, og þar með leyfi til að setjast hér að, er að Ísland er aðili að þremur sátt- málum eða reglugerðum sem gerir íslenskum yfirvöldum kleift að senda hælisleitendur til baka til landsins sem þeir höfðu síðast viðkomu í. Enginn 76 flóttamanna fékk hæli hérlendis 2004 Morgunblaðið/Þorkell Fáir flóttamenn fá hæli hér á landi. Einn fékk hæli sem pólitískur flóttamaður af 264 einstaklingum 1999–2003 ÍÞRÓTTALEIKLIST er sennilega besta orðið til að lýsa sýningunni Glímunni, sem frumsýnd var í Hafnarhúsinu í gær. Stefán Jónsson leik- stýrir sýningunni, en hann segir hana listræna kynningu á „þessari fornu íþrótt okkar Íslend- inga“. Hópurinn sem stendur að sýningunni heldur um helgina af stað í sýningarferðalag til Skandinavíu en einnig stendur til að halda frekari sýningar hér á landi, að sögn Stefáns. Glímusamband Íslands og Ungmennasamband Íslands standa að sýningunni, en þeir sem taka þátt í henni eru glímukonur og -karlar. Morgunblaðið/Eggert Íþróttaleiklist í Hafnarhúsinu Lesbók, Börn og Íþróttir í dag ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.