Morgunblaðið - 24.06.2006, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Hafsteinn Sig-urðsson sjómað-
ur fæddist á Siglu-
firði 25. mars 1939.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Siglufjarðar 15. júní
sl. Foreldrar hanns
voru þau Sigurður
Jóhannesson bif-
reiðarstjóri, fæddur
8. apríl 1905, dáinn
18. september 1972,
og Sigríður Anna
Þórðardóttir frá
Siglunesi, fædd 5.
október 1913, dáin 3. ágúst 1992.
Bræður Hafsteins eru Þórður,
fæddur 16. október 1936, Jónas
Þráinn, fæddur 20. águst 1943, og
Valgeir Tómas, fæddur 3. október
1947.
Eiginkona Hafsteins er Marlis
Sólveig Hinriksdóttir, fædd 7.
október 1942 í Ham-
borg í Þýskalandi.
Foreldrar hennar
voru Else og Hel-
muth Marock. Börn
þeirra eru: 1)
Brynja Ingunn,
fædd 1966, gift
Karli Guðmunds-
syni, börn þeirra
eru Marlís Jóna Þór-
unn og Hafsteinn
Úlfar. Börn Karls
eru Guðmundur
Halldór og Anna
Kristín. 2) Haf-
steinn, fæddur 1968. 3) Signý,
fædd 1968, maki Garðar Garðars-
son, börn þeirra eru Sunna og Ið-
unn. Dóttir Garðars er Erlends-
ína.
Útförin verður gerð frá Siglu-
fjarðarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
Tengdafaðir minn, Hafsteinn
Sigurðsson sjómaður, hefur lokið
sinni síðustu vakt og við tekur frí-
vaktin eilífa. Eins og alltaf skilar
Hafsteinn vaktinni án þess að skilja
eftir sig ókláruðu verki, það var
ekki hans stíll að ganga frá hálf-
kláruðu verki.
Orrustan við sjúkdóminn hefur
staðið í rúm þrjú ár og hefur það
verið aðdáunarvert að fylgjast með
þeim mikla baráttuanda sem Haf-
steinn hefur sýnt og æðruleysið
verið með ólíkindum. Aldrei kvart-
aði hann þótt hver orrustan af ann-
arri tapaðist, alltaf var haldið
áfram. Nú síðustu mánuðina þegar
ljóst var að lokastundin færðist nær
kom ekkert annað til greina en að
safna kröftum til að komast norður
á Sigló og gekk það eftir. Þar voru
hans rætur og þar voru Halli Árna
og aðrir góðir vinir og skyldmenni
og honum leið hvergi betur en á
Sigló eða á Siglunesi.
Hafsteinn var ákaflega ljúfur
maður í samskiptum, orðfár en
hreinskiptinn, snyrtimenni svo eftir
var tekið. Orð voru ekki svo nauð-
synleg þegar maður var nálægt
honum heldur skynjaði maður hlýju
og vináttu án margra orða. Haf-
steinn var mikill fjölskyldumaður
og lagði mikla rækt við börnin sín
og barnabörn.
Mig langar með þessum fátæk-
legu orðum að þakka Hafsteini,
tengdaföður mínum, vináttu hans
og umhyggju fyrir mér og mínum.
Ég kveð Hafstein með kveðjunni
sem við notum á vaktaskiptum á
sjónum og segi: „Hafsteinn, góða
vakt.
Karl Guðmundsson.
Hann Hafsteinn frændi er allur
eftir erfiða baráttu við illvígan sjúk-
dóm. Hann varð líka að láta undan,
eins og reyndar við öll að lokum.
Þegar við bræðurnir komum til
Reykjavíkur í eitt af okkar fyrstu
skiptum, 12–13 ára gamlir, bauðst
þú okkur í mat hjá ykkur Marlis. Þá
voruð þið nýflutt í Hraunbæinn með
Brynju litlu. Þar sýndir þú eins og
alltaf þá einstöku umhyggju sem þú
barst alltaf fyrir okkur bræðrum.
Það voru líka stoltir litlir drengir
sem sáu Hafstein frænda stjórna
stóru jarðýtunni, við snjómokstur á
Siglufirði í gamladaga, og fengum
við stundum að setjast upp í.
Ánægjan var líka mikil að eiga
frænda sem sigldi á fraktskipum til
útlanda og gat sagt okkur sögur það-
an. Okkur fannst eiginlega aldrei
komið sumar á Siglufirði fyrr en þú
varst kominn á Siglunesið. Það hafa
verið einstök forréttindi að eiga slík-
an frænda. Þín verður sárt saknað á
nesinu, en eftir eigum við allar góðu
stundirnar með þér þar. Elsku
frændi, nú ert þú farinn frá okkur en
eftir standa minningar um einstakan
góðan dreng.
Elsku Marlis, Brynja, Hafsteinn,
Signý, makar og afabörn, megi allar
góðir vættir styrkja ykkur í sorg-
inni.
Árni og Þórður.
Fallin er vinur og einn af okkar
traustu félögum í Sjómannafélagi
Reykjavíkur til áratuga. Siglfirðing-
urinn Hafsteinn Ingi Sigurðsson,
dagmaður í vél hjá h/f Eimskipa-
félagi Íslands. Okkar kynni hófust
hinn 29. ágúst 1977 er ég kom af m/s
Dettifossi, þegar ég skráðist sem há-
seti á mótorskipið m/s Mánafoss, þar
vorum við saman skipsfélagar til 10.
júní 1980. Þessi tími var ógleyman-
legur.
Hafsteinn var algjört snyrtimenni
og skipulagður, enda báru verk hans
þess merki. Í vélinni var allt á sínum
stað, og ekki vantaði dugnaðinn við
að koma þessum hlutum í lag, enda
voru yfirvélstjórar yfir sig hrifnir af
verkum hans hvað sem hann tók sér
fyrir hendur, hvort það var að þrífa
eða mála vélarúmið eða laga það sem
þurfti. Allt lék þetta í höndunum á
honum enda einstaklega laghentur
maður. Á þessum árum sátum við oft
saman í herbergi hans eða mínu, þar
var mikið rætt um Siglufjörð og mál-
efni Sjómannafélags Reykjavíkur,
sem var stolt hans. Hann passaði vel
uppá samningana, að þeir væru í lagi
og hvað væri til bóta. Ennfremur að
fara út í Siglunes á ættarsetur fjöl-
skyldunnar, sem ég kallaði óðalsset-
ur, enda voru fríin skipulögð og til-
hlökkunin mikil að komast út í
Siglunes á hverju ári og þegar gafst
tími til á sínum slöngubát. Hafsteinn
var góður og traustur félagi og barn-
góður enda tók hann börnin sín með
til útlanda, til að sýna þeim og kynna
þeim heiminn.
Leiðir okkar lágu saman aftur og
aftur, sem skipsfélagar á skipum
Eimskipafélagsins, svo sem á m/s
Eyrarfossi, enska m/s Laxfossi, og
m/s Bakkafossi. Hans síðasta skip
var m/s Selfoss er hann varð að fara í
land vegna veikinda sem átti ekki að
vera lengi, en það varð lengra en
hann ætlaði. Hafsteinn Sigurðsson
var sæmdur æðstu orðu sjómanna-
dagsins árið 2003.
Tíminn er svo fljótur að líða, síðan
við hittumst síðast. Þá varstu kom-
inn á líknardeildina í Kópavogi og
var sonur þinn Hafsteinn hjá þér.
Það var í síðasta skipti sem við hitt-
umst. Þegar ég kom til þín varst þú
óvenju hress og að búa þig til að fara
heim. Elskulega konan þín, Marlis,
ætlaði að sjá um þig heima, enda var
tilhlökkunin mikil. Þín síðustu orð
við mig þegar við ræddum um mynd-
irnar á veggnum frá Siglufirði voru:
„Jói, mikið væri gaman að komast
norður áður en ég fer.“ Þar var ætt-
armót fyrirhugað og gleðin skein úr
augunum þínum. Það voru dapurleg
tíðindi þegar hringt var í mig af þín-
um tengdasyni, Karli, sem tilkynnti
mér að þetta væri búið og þér hefði
tekist að komast, eins og þú vildir
sjálfur, heim á Siglufjörð. Eftir situr
minning um góðan dreng sem seint
gleymist. En hugurinn verður alltaf
með þér og til Sigluness, þegar ég
horfi út fjörðinn og hugsa til baka.
Nú ertu kominn á Siglufjörð, sem þú
þráðir. Elsku Marlis og fjölskylda.
Megi guð umvefja ykkur kærleika
og hlýju, og vera með ykkur í sorg-
inni. Guð blessi ykkur.
Jóhann Páll Símonarson.
HAFSTEINN
SIGURÐSSON
Ég skrifa þessar lín-
ur í tilefni þess að í dag
eru liðin 75 ár frá fæð-
ingu Helga bróður
míns, en hann lést á heimili sínu í
Garðabæ 3. janúar sl. eftir langa bar-
áttu þar sem dauðinn hafði á end-
anum betur. En það mun hafa verið
haustið 1979 að hann veiktist þegar
aðalslagæðin frá hjartanu gaf sig. Þá
voru læknavísindin hér á landi ekki
komin á það stig sem nú er, svo að
hann var sendur til Bandaríkjanna
vorið 1980 í stóra aðgerð sem heppn-
aðist betur en margir þorðu að vona,
en veikindin voru ekki búin fyrir því.
HELGI INGVAR
VALDIMARSSON
✝ Helgi IngvarValdimarsson
fæddist á Neðri-
Torfustöðum í Mið-
firði 24. júní 1931.
Hann lést á heimili
sínu 3. janúar síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá
Garðakirkju
10. janúar.
Alltaf af og til var
hann á sjúkrahúsum
eftir þetta með alls
konar sjúkdóma, en
alltaf stóð hann upp
aftur og í einni sjúkra-
húslegunni þegar ég
fór suður að heim-
sækja hann þá sagði
hann: „Ætli þeir vilji
mig nokkuð þarna hin-
um megin?“ Svo að
alltaf var stutt í húm-
orinn.
Þar sem við vorum
bara hálfbræður og
hann 19 árum eldri þá hafði hann
mjög mótandi áhrif á mig, að sumu
leyti meiri en foreldrar mínir. Ég
mun aldrei gleyma því þegar við vor-
um saman í fjárhúsunum á kvöldin
að gefa fénu, ég rétt byrjaður að
labba um og reyna að gera gagn. Það
voru eftirminnilegar stundir þegar
hann með sinni prúðmennsku og
hógværð en um leið léttleika kenndi
mér margt. Það lýsir honum líka vel
að sjaldan sást hann skipta skapi, þó
að hann hefði ákveðnar skoðanir á
hlutunum. Alltaf fyrirgaf hann smá
hrekki og prakkaraskap. Eitt sinn
eftir að Land-Roverinn kom að
Kollafossi en Ferguson-traktorinn
var ekki kominn, þá var Helgi að
slóðadraga með bílnum og ég með ca
5 ára, þá þóttist hann vera þreyttur
og lagðist fram á stýrið og ég átti að
segja honum hvernig átti að beygja.
Og ég í prakkaraskap sagði honum
að beygja í aðra áttina en þar var
fyrir hár skurðruðningur svo að bíll-
inn var fastur og slóðinn var þannig
að það var ekki hægt að bakka með
hann. Þannig að það var dálítið mál
að losa bílinn en allt var fyrirgefið.
Já, margs er að minnast frá liðn-
um árum og ég verð að viðurkenna
að það hefur stundum farið um mig
einhver tómleikatilfinning í vetur,
Helgi bróðir horfinn af sjónarsviðinu
og við fjölskyldan getum ekki spjall-
að og leitað ráða hjá honum lengur.
En af því að ég veit að honum líður
vel núna og við eigum eftir að hittast
aftur seinna þá sætti ég mig við
þetta.
Elsku Dísa mín og krakkarnir, ég
þakka öll gömlu árin, þá ekki síst
áratuga félagsbúskap og samvinnu í
Vesturárdalnum.
Gunnlaugur P. Valdimarsson
og fjölskylda, frá Kollafossi.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar hjartkæra
PÁLS JÓNSSONAR,
Hóli,
Hvítársíðu.
Guð blessi ykkur öll.
Edda Magnúsdóttir,
Jón Magnús Pálsson, Hrafnhildur Hróarsdóttir,
Finnbogi Pálsson, Hrönn Vigfúsdóttir,
Páll Bjarki Pálsson, Eyrún Anna Sigurðardóttir,
Erlendur Pálsson, Guðrún Harpa Bjarnadóttir,
Þorbjörg Pálsdóttir, Ragnar Páll Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ást-
kæra föður, tengdaföður og afa,
PÉTURS ÞORBJÖRNSSONAR
skipstjóra,
Skúlagötu 20,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunarfólks á deild
11 E Landspítalanum við Hringbraut fyrir einstaka alúð og umhyggju.
Ágústa Pétursdóttir, Sigurður Helgason,
Eyjólfur Pétursson, Ingveldur Gísladóttir,
Líney Björg Pétursdóttir, Kristinn Sigmarsson,
Pétur Örn Pétursson, Ólöf K. Guðbjartsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför
EINARS NIKULÁSSONAR
forstjóra,
Breiðagerði 25,
Reykjavík.
Kristín Þórarinsdóttir
frá Stóra Hrauni,
Rósa Einarsdóttir, Guðmundur Ingimundarson,
Ragnar Már Einarsson, Arngunnur Atladóttir,
Þórhildur Einarsdóttir, Halldór Kristófersson,
Nikulás Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegrar systur
og móðursystur,
ÁSRÚNAR JÓNSDÓTTUR
frá Einarsstöðum.
Sérstakar þakkir til Valgerðar Valgarðsdóttur
djákna og sr. Örnólfs Ólafssonar fyrir einstaka
alúð og hjálpsemi.
Sigríður Jónsdóttir,
Sólveig Rósa Jónsdóttir, Bragi Árnason,
Aðalsteinn Jónsson,
Lilja Kr. Bragadóttir, Valdemar Gísli Valdemarsson,
Anna Þóra Bragadóttir, Haraldur Kr. Ólason,
Guðrún Jóna Bragadóttir,
Jóhanna Bragadóttir, Sigurjón Hendriksson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR NARFA JAKOBSSONAR,
Reykjadal 2,
Mosfellsbæ.
Guðbjörg Sigurjónsdóttir,
Birgir Sigurðsson, Ágústa Þóra Kristjánsdóttir,
Baldur Sigurðsson,
Guðlaug Sigurðardóttir,
Bára Sigurðardóttir, Jón Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.