Morgunblaðið - 24.06.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.06.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Það væri æðislegt ef þú gætir, við erum svo vön að fara öll í bað með hundinum. Barna- og unglinga-geðdeild Landspít-ala – háskóla- sjúkrahúss (BUGL) og Miðstöð heilsuverndar barna (MHB) hafa gert samstarfssamning vegna þjónustu við börn með erf- iðleika á geð- og hegðunar- sviði. Með samningnum verður þjónusta aukin vegna barna með vanda- mál svo sem ofvirkni, at- hyglisbrest og aðrar hegð- unar- eða lyndistruflanir, sérstaklega hvað varðar ráðgjöf og eftirfylgd auk greiningar. Mikil umfjöllun hefur verið und- anfarin ár um stöðu geðheilbrigð- ismála barna og unglinga hér á landi. Biðlistar lengjast sífellt eftir þjónustu hjá BUGL en starfsfólk deildarinnar hefur bent á að að- staðan sé alls ekki nægilega góð og til þess að bregðast við eftir- spurn séu stöðugt fleiri sjúklingar lagðir inn á deildina en rými sé fyrir. Markmið að beina megi tilvísunum annað Biðtíminn eftir þjónustu hjá BUGL er nú um 12 mánuðir og er hann farinn að lengjast. Í samtali við Morgunblaðið sögðu þau Guð- rún Bryndís Guðmundsdóttir, barna- og unglingageðlæknir, og Páll Magnússon sálfræðingur, hjá BUGL, að til þess að létta álagið á deildinni sé mikilvægt að efla þjónustu á öðrum stigum heil- brigðisþjónustunnar. Heilbrigðisþjónusta sé skipu- lögð í þremur stigum þar sem 1. stigið sé almenna heilsugæslan. Síðan sé 2. stig sem er sérhæfðara og sérstök greiningar- og með- ferðarteymi tilheyri sem geti tekið á vandasamari viðfangsefnum. Loks tilheyri sjúkrahúsdeildir eins og BUGL 3. stiginu. Páll bendir á að í rauninni ætti ekki að vísa til BUGL nema erfiðustu til- fellunum og þeim sem önnur úr- ræði dygðu ekki fyrir. Nauðsyn- legt sé að byggja upp þekkingu hjá öðrum stofnunum og það eigi að vera eitt af hlutverkum BUGL að miðla slíkri þekkingu. Í þessum samstarfssamningi felist að BUGL aðstoði Miðstöð heilsu- verndar barna við að koma sér upp getu til að greina og veita meðferð við ofvirkni og hegðunarerfiðleik- um hjá börnum og vonandi muni það minnka álagið hjá deildinni þegar fram í sæki. Barna- og ung- lingageðdeildin geti þá frekar ein- beitt sér að alvarlegum tilfellum eins og börnum og unglingum með margþætt eða samsett vandamál. Páll bætir við að þetta sé ekki fyrsti samningurinn af þessu tagi sem gerður hafi verið. BUGL hafi gert svipaðan samning við skóla- skrifstofuna og heilsugæsluna á Akranesi og hjálpað til við að koma upp greiningarteymi þar. Sá samningur hafi gefið góða raun og tilvísunum frá Akranesi hafi fækk- að. Mun bæði sjá um greiningu og meðferð Miðstöð heilsuverndar barna (MHB) hefur til þessa annast frumgreiningu þegar grunur hef- ur vaknað um þroskafrávik. Oft hefur tilfellum síðan verið vísað þaðan til BUGL eða annarra stofnana þar sem biðlistinn hefur verið langur. Gyða Haraldsdóttir, sviðsstjóri þroska- og hegðunar- sviðs hjá MHB, segir að þetta hafi verið óheppilegt. „Við erum að vonast eftir því að hægt verði að stytta biðtímann niður í örfáa mánuði og þá sé verið að grípa fyrr inn í vandamál og kannski koma í veg fyrir að þetta verði vandamál sem vindi upp á sig.“ Gyða tekur fram að MHB muni einnig veita meðferðarúrræði. Áð- ur hafi miðstöðin skilað sínum nið- urstöðum út í kerfið aftur en nú verði börnunum fylgt meira eftir. Boðið verði upp á ráðgjöf fyrir for- eldra svo að þeir sem sjái um upp- eldi barnsins hafi getu til að fást við þarfir þess. Hjá miðstöðinni sé þverfaglegur hópur sérfræðinga sem veitt geti ýmis meðferðarúr- ræði, t.d. lyfjameðferð ef þörf er á. Skjólstæðingar BUGL og MHB eru þó á ólíkum aldri. Barna- og unglingageðdeildin hefur fyrst og fremst séð um börn á grunnskóla- aldri en Miðstöð heilsuverndar barna hefur aðallega starfað með börnum á leikskólastiginu. Nokk- ur skörun hefur samt orðið í 1. bekk grunnskólans. Gyða vonast til að einmitt þar geti árangur mið- stöðvarinnar orðið mestur og að MHB muni leggja áherslu á að taka þau börn í greiningu og eft- irfylgd sem grunnskólarnir sendi áfram eftir skimanir í upphafi skólaársins. Ef hægt sé að stytta biðtíma þessara barna sé hægt að koma í veg fyrir að jafn mörg mál verði alvarleg. Gyða viðurkennir að miðstöðin þyrfti að fá meiri fjárveitingu til að anna þessum störfum þótt stofn- unin hefði fengið aukið fjármagn vegna þessara verkefna. Fljótlegt sé að vinna að greiningu en hætt sé við því að skortur verði á með- ferð og eftirfylgni. „Við ákváðum að byrja á þessu og svo verður maður að vona að það mæti skiln- ingi í ráðuneytinu ef álagið og eft- irspurnin verður það mikil að við náum ekki að veita þá þjónustu sem við viljum,“ segir Gyða. Fréttaskýring | Samstarf um úrræði Reyna að stytta biðlista Samningur við Miðstöð heilsuverndar barna um að létta álaginu af BUGL Aðsetur Miðstöðvar heilsuverndar barna. Verkaskipting í geðheil- brigðismálum barna  Barna- og unglingageðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss hefur gert samstarfssamning við Miðstöð heilsuverndar barna um að aðstoða miðstöðina við að koma upp greiningar- og með- ferðarúrræðum. Með þessu standa vonir til að hægt verði að létta að einhverju leyti álagið á BUGL og deildin geti einbeitt sér að alvarlegri tilfellum. Áhrifin munu þó að líkindum vera til lengri tíma og enn er þörf á meira fjármagni. Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is SIGLINGAR franskra sjómanna á Íslandsmið forðum verða ofarlega í huga manna í hafnarbænum Paim- pol á Bretaníuskaga í dag, en þá hefst þar siglingakeppni sem skír- skotar til fiskveiða á frönskum gólettum við Ísland á 18., 19. og framan af 20. öld. Nítján skútur leggja þá upp í keppnina Skippers d’Islande. Tómas Ingi Olrich sendi- herra í París ræsir skúturnar af stað. Tvær aldnar gólettur, sömu gerðar og skútur sem sigldu til Ís- landsveiða frá Paimpol, verða í höfninni við upphaf keppninnar, en þær notar franski flotinn sem skólaskip. Í fyrstu lotu verður siglt frá Paimpol til Reykjavíkur og er skút- unum ætlað að vera komnar þang- að 4. júlí. Frá Reykjavík verður siglt til Grundarfjarðar 8. og 9. júlí en þar voru miðstöðvar útgerð- armanna frá Paimpol á Íslandi. Ís- lenskar skútur taka þátt í þeirri siglingu og verður sérstök keppni milli þeirra og frönsku skútanna á þeirri leið. Frá Grundarfirði verða skút- urnar ræstar af stað 12. júlí og sigla þær í einum áfanga til Paimpol í Frakklandi eða um 1.300 sjómílna vegalengd. Eiga þær að vera komn- ar á leiðarenda 21. júlí. Heild- arvegalengd sem lögð verður að baki í keppninni er um 2.600 sjómíl- ur eða rúmlega 4.800 km. Nokkrir skútustjóranna nota keppnina til að öðlast þátttökurétt í mikilli siglingakeppni frá St. Malo til Karíbahafsins í október, eftir Rommleiðinni svonefndu. Meðal keppenda í Skippers d’Island eru nokkrar skútur sem þegar hafa uppfyllt kröfur til þátttöku þar. Konur við stjórn á tveimur af skútunum Tvær skútanna verða undir stjórn kvenna, þar á meðal skútan Vedettes de Brehat. Henni stjórnar 24 ára frönsk kona að nafni Serv- ane Escoffier frá Saint-Malo. Hún er orðin þekkt meðal kappsiglinga- manna sakir þess að hún varð sl. vetur í þriðja sæti í Transat- keppninni frá Le Havre í Frakk- landi til Salvador de Brehat, hinnar fornu höfuðborgar Brasilíu. Stysta leið þar á milli er 4.340 sjómílur og lagði hún leiðina að baki við annan mann á röskum 20 sólarhringum. Hún sigldi skútu sem vann þá keppni 2003 og siglinguna eftir Rommleiðinni 2002. Sömu skútu, Vedettes de Brehat, stýrir hún í keppninni milli Frakklands og Ís- lands í ár og þar ætlar hún að upp- fylla skilyrði til þátttöku í keppn- inni eftir Rommleiðinni í haust. Þá vann Servane Escoffier ekki minna afrek er hún stýrði skútu sinni til sigurs í flokki 40 feta ein- bytna í hinni sögufrægu Fastnet- siglingakeppni við Bretlandseyjar í fyrrasumar. Meðal annarra kepp- enda er faðir Servane, Bob, sem er reyndur siglingamaður. Meðal þátt- takenda nú eru og skútustjórar og áhafnir sem áður hafa tekið þátt í Skippers d’Islande og einnig vænt- anlegir keppendur Frakka á ólymp- íuleikjunum í Peking 2008. Að þessu sinni fer keppni Skip- pers d’Islande fram þriðja sinni. Um er að ræða einhverja nyrstu út- hafskeppni á skútum sem haldin er í heiminum. Fyrst var efnt til kapp- siglingarinnar árið 2000 og þótti hún takast vonum framar. Í henni tóku aðeins þátt skútur sem siglt er af áhugamönnum en ekki atvinnu- mönnum. Keppt var að nýju 2003 og þótti hún takast jafnvel enn bet- ur. Kappsiglingin er á góðri leið með að skapa sér fastan sess. Á að efla vináttuböndin Markmið aðstandenda í Paimpol með keppninni er að efla frekar vináttubönd við Ísland og minnast Íslandssjómannanna frönsku. Í ára- tugi sigldu skútur upp að Íslands- ströndum frá Paimpol. Úthald skút- anna var venjulega hálft ár. Margar þeirra sneru aldrei aftur og þúsundir franskra sjómanna hlutu vota gröf á Íslandsmiðum. Um helmingur þeirra, eða um 2.000 sjó- menn, voru frá Paimpol og blóð- taka bæjarins því mikil. Sögu þessara veiða hefur Elín Pálmadóttir blaðamaður gert ræki- leg skil í bók sinni Fransí Biskví, en sú bók var gefin út endurbætt í franskri þýðingu sl. vetur. Þá er sögu veiðanna einnig haldið vel til haga í Paimpol. Þar bera götur, kapellur og önnur kennileiti nöfn sem minna á Íslandsveiðarnar. Þá voru sjómennirnir frönsku manna á meðal í heimalandi sínu kallaðir „Íslendingarnir frá Paimpol“. Þess má geta að Icelandair er meðal helstu styrktaraðila sigl- ingakeppninnar. 19 skútur í kappsiglingu til Íslands frá Paimpol Skútan Khayyam er fegursta keppnisskútan en hún er smíðuð árið 1939. Núverandi eigendur keyptu hana árið 1991 og björguðu frá eyðileggingu. Eftir Ágúst Ásgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.