Morgunblaðið - 24.06.2006, Síða 52

Morgunblaðið - 24.06.2006, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA STAFRÆ SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 2 - 4 - 6 - 8 CARS M/ENSKU TALI kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 SLITHER kl. 10 B.I. 16.ÁRA. CARS M/ENSKU TALI kl. 3:30 - 6 - 8:30 - 11 BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 3:30 - 4:45 - 6 - 7:15 - 8:30 KEEPING MUM kl. 3:30 - 6 - 8:20 - 10:30 B.I. 12.ÁRA. THE POSEIDON ADVENTURE kl. 4 - 6:10 - 8:20 - 10:30 B.I. 14.ÁRA. MI : 3 kl. 9:30 - 11 B.I. 14.ÁRA. BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 1 - 3:15 - 5:30 - 8 SHE'S THE MAN kl. 1 - 3:15 - 5:30 KEEPING MUM kl. 8 - 10:10 B.I. 12 ÁRA 16 BLOCKS kl. 10:15 B.I. 14 ÁRA FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR ENDURGERÐINA AF „DAWN OF THE DEAD“ eee VJV, Topp5.is FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM" HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA. eee V.J.V.Topp5.is FRÁ J.J. ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS FRÁ FRAMLEIÐENDUM „THE INCREDIBLES“ & „LEITIN AÐ NEMO“ NÝJASTA MEISTARAVERKIÐ FRÁ PIXAR SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM. VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ. SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI eee S.V. MBL. eee L.I.B. Topp5.is eee Kvikmyndir.is S.U.S. XFM eeee VJV, Topp5.is H ljómsveitin Ham er ein helsta hljómsveit ís- lenskrar rokksögu – hljómsveit sem naut mikillar virðingar en takmarkaðra vinsælda, í það minnsta á helsta starfstíma hennar í lok átt- unda áratugar og byrjun níunda ára- tugar síðustu aldar, en vinsældir sveitarinnar hafa reyndar aukist talsvert síðan. Ham var fræg fyrir gríðarlega þunga rokktónlist með dimmradda hádramatískum söng og einstaklega fyndnum textum, þó fæstir hafi reyndar getað greint orða skil. Sam- herjar í framlínu sveitarinnar voru þeir Sigurjón Kjartansson, gítarleik- ari og söngvari, og Óttarr Proppé söngvari, sem báðir hafa verið áber- andi í íslensku menningar- og listalífi síðan Ham lagði upp laupana, hvor á sinn hátt. Þótt hljómsveitin hafi hætt var það allt í mesta bróðerni og því kom ekki á óvart þegar Ham kom saman aftur til að hita upp á miklum tónleikum Rammstein fyrir nokkrum árum og svo aftur þegar Ham var ein af hljómsveitunum sem spiluðu á Náttúrutónleikunum svonefndu í Laugardalshöllinni í byrjun ársins. Þreyttir á öllu nema hver öðrum Á Náttúrutónleikunum átti eflaust margur von á að þetta væri í síðasta sinn sem Ham myndi birtast á sviði, í það minnsta leið mér þannig sem áhorfanda. Því kom það talsvert á óvart að nýtt lag fékk að hljóma – vísbending um að eitthvað væri í vændum. Það sannast svo í vikunni, því Ham heldur tónleika í Nasa á fimmtudagskvöld og ætlar þá meðal annars að leika nýtt efni. Þegar Ham hætti á sínum tíma voru menn orðnir langþreyttir á bransanum, langþreyttir á harki og veseni í kringum útgáfu og tilheyr- andi, eiginlega þreyttir á öllu nema hver öðrum, því þótt hljómsveitin Ham hafi hætt að starfa spiluðu þeir saman í ýmsum hljómsveitum í nokk- urn tíma á eftir og hafa reyndar haldið því áfram alla tíð síðan. Ham lognaðist útaf 1993 og hélt kveðjutónleika á Tunglinu 4. júní 1994 sem hljóðritaðir voru og gefnir út. Eftir það heyrðist ekki meira af sveitinni fyrr en þeir Ham-félagar voru beðnir að koma saman að hita upp fyrir þýsku rokksveitina Ramm- stein í Laugardalshöll. Ýmislegt ófrágengið Þegar æfingar hófust fyrir það verkefni kom í ljós að það var ým- islegt ófrágengið í fórum hljómsveit- arinnar, ekki ný lög, en ýmsir af- gangar þegar þeir litu yfir farinn veg til að velta fyrir sér hvað þeir höfðu gert rangt og hvað rétt. „Við sett- Fundnir snillingar Hljómsveitin Ham snýr aftur til starfa í vikunni, tekur þá upp þráðinn þar sem frá var horfið fyrir meira en áratug og flytur þá meðal annars ný lög. Árni Matthíasson tók þá Óttar Proppé og Sigur- jón Kjartansson tali. Morgunblaðið/ÞÖK „Það er aðallega þetta suð í eyrunum sem við erum að sækjast eftir, suðið eftir hverja tónleika sem endist yfirleitt í viku.“ Sigurjón Kjartansson og Óttarr Proppé.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.