Morgunblaðið - 24.06.2006, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EINUM VEITT HÆLI
Af þeim 76 einstaklingum sem
sóttu um hæli á Íslandi árið 2004 var
engum veitt hæli. Á árunum 1999 til
2003 fékk einn flóttamaður hæli hér-
lendis af þeim 264 sem sóttu um hæli
sem pólitískir flóttamenn. Óljóst er
um afdrif margra hælisbeiðenda
sem fengið hafa tímabundið dval-
arleyfi hér á landi en síðan verið vís-
að úr landi.
Einkavæðing vegagerðar?
Samgönguráðherra segir að í
nýrri samgönguáætlun, sem nú sé í
smíðum og til standi að leggja fyrir
Alþingi í vetur, verði reynt að leggja
aukna áherslu á að skapa einkaað-
ilum skilyrði til þess að standa að
vegagerð í samstarfi við ríkið.
Komu fyrir rétt
Mennirnir sjö, sem handteknir
voru í Bandaríkjunum á fimmtudag
vegna gruns um að þeir hygðust
sprengja upp Sears-turninn í
Chicago, komu fyrir rétt í gær þar
sem þeim var birt ákæra. Ættingjar
mannanna segja málið „sjónarspil“
sem eigi að hræða Bandaríkjamenn.
Eftirlaunaþegar eftirsóttir
Eftirlaunaþegar eru að verða eft-
irsóttur vinnukraftur í sumarstörf í
Danmörku meðal annars á hótelum,
sumarbúðum, tjaldstöðum og miklu
víðar. Þarna hafa námsmenn, sem
hafa hingað til yfirleitt gengið í þessi
störf, fengið samkeppni úr óvæntri
átt.
Met í brautskráningu
Í dag verða samtals 1.522 nem-
endur brautskráðir frá Háskóla Ís-
lands og Kennaraháskóla Íslands og
fara athafnir beggja skólanna fram í
Laugardalshöll. Aldrei hafa jafn-
margir kandídatar verið útskrifaðir
úr báðum skólunum; 957 kandídatar
frá HÍ og 565 frá KHÍ.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 31/32
Viðskipti 14 Bréf 32
Úr verinu 15 Minningar 33/39
Erlent 18/19 Skák 41
Akureyri 21 Kirkjustarf 42/73
Árborg 21 Dagbók 44
Landið 22 Víkverji 44
Suðurnes 22 Velvakandi 45
Listir 23 Staður og stund 45
Daglegt líf 24/27 Menning 48/53
Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54
Úr vesturheimi 30 Veður 55
Viðhorf 31 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann
Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Magnús
Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri,
sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Nú bjóðum við frábært tilboð til
Benidorm. Njóttu lífsins á þessum
vinsæla áfangastað.
Þú bókar og tryggir þér síðustu
sætin og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr.29.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, í íbúð í viku. Stökktu tilboð 29. júní eða
6. júlí. Flug, gisting, skattar og íslensk farar-
stjórn. Aukavika kr. 10.000.
Verð kr.39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó-
/íbúð í viku. Flug, gisting, skattar og íslensk
fararstjórn. Stökktu tilboð 29. júní eða 6. júlí.
Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn.
Aukavika kr. 10.000.
Síðustu sætin
Stökktu til
Benidorm
29. júní eða 6. júlí
frá kr. 29.990
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
SETUVERKFALL, sem starfsmenn
IGS, þjónustufyrirtækis Icelandair á
Keflavíkurflugvelli boðuðu á morgun,
hefur ekki verið blásið af og munu
starfsmennirnir því leggja niður störf
á milli klukkan 5 og 8 í fyrramálið að
öllu óbreyttu. Var boðað til verkfalls-
ins til að mótmæla launakjörum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru engar formlegar viðræð-
ur í gangi milli starfsmanna og yf-
irmanna, en mikill titringur er sagður
í fólki beggja megin borðsins. Þá mun
hafa verið boðað til starfsmannafund-
ar í fyrirtækinu upp úr hádeginu í
dag.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair, segir að fólk á vegum fyr-
irtækisins verði til staðar í Leifsstöð í
fyrramálið til að létta farþegum bið-
ina ef af aðgerðunum verður.
„Við verðum þarna með hressingu
handa fólki og leikföng handa börn-
um, en eins og er vitum við ekki hvert
umfang aðgerðanna verður. Fer
tvennum sögum af því hve þátttakan
verður mikil,“ segir Jón Karl.
Léttum farþegum biðina
„Því er ekki ljóst hve mikil áhrifin
verða, en við búumst við einhverjum
seinkunum og munum reyna, eins og
áður segir, að gera farþegum biðina
léttari,“ segir Jón Karl en telur að
ekkert flug muni falla niður vegna
þessa.
„Á milli sextán og sautján hundruð
farþegar eiga bókað flug í fyrramálið
frá Leifsstöð og verður því mikið að
gera hjá okkur, hvernig sem fer,“
segir Jón Karl.
Seinkanir á flugi vegna
setuverkfalls í Leifsstöð
Búast má við töfum í Leifsstöð í
fyrramálið verði af setuverkfalli.
BJARKI Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir luku í gær
hjólaferð sinni hringinn í kringum landið, þegar þau
komu hjólandi á barna- og unglingageðdeild Landspít-
alans, BUGL. Ferðalagið hófst í Reykjavík 15. maí og
samtals voru lagðir að baki 2.700 kílómetrar. Ferðin
var farin í þeim tilgangi að vekja athygli á málefnum
barna sem dvelja á BUGL.
Að sögn Bjarka mættu þau Gyða öllum blæbrigðum
íslensks veðurfars, einn daginn var frost og fljúgandi
hálka, annan daginn var glampandi sól og 20 stiga hiti.
Bjarki, sem gekk hringinn í fyrra, segir að auk þess að
vekja athygli manna á góðu málefni, vilji hann sýna
fram á að allt sé hægt ef viljinn er fyrir hendi, jafnvel
þótt menn glími við fötlun eins og hann.
Með Bjarka og Gyðu á myndinni er Ingibjörg Pálma-
dóttir, forsvarsmaður velferðarsjóðs barna.
Hjóluðu fyrir velferð barna
Morgunblaðið/Eggert
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, er sagður hafa gagnrýnt það
við Miriam Shomrat, sendiherra Ísr-
aels gagnvart Íslandi sem hefur að-
setur í Noregi, að ísraelsk yfirvöld
hafi enn ekki beðist afsökunar á því
að brottför eiginkonu hans, Dorrit
Moussaieff, frá Ísrael fyrir sex vik-
um hafi tafist um eina og hálfa
klukkustund. Frá þessu er greint á
ísraelska netmiðlinum Y Net News.
Örnólfur Thorsson forsetaritari seg-
ir forsetaembættið ekki ætla að tjá
sig um fund Ólafs Ragnars og
Shomrat.
Talsmaður ísraelska utanríkis-
ráðuneytisins hefur staðfest að for-
setinn hafi átt fund með Shomrat
sautjánda júní þar sem hann hafi lýst
óánægju sinni með þá framkomu
sem eiginkonu hans hafi verið sýnd.
Ekkert sé hins vegar hæft í staðhæf-
ingum um að Shomrat hafi því næst
verið hent út.
Sögð hafa skellt á eftir sér
Á ísraelska netmiðlinum Y Net
News er haft eftir ónefndum heim-
ildarmanni að forsetinn hafi skyndi-
lega tilkynnt Shomrat að samtali
þeirra væri lokið og fundinum slitið.
Þá er Shomrat sögð hafa skellt hurð-
inni á eftir sér er hún yfirgaf her-
bergið.
Örnólfur Thorsson sagði í samtali
við Fréttavef Morgunblaðsins í gær
að forsetinn ætti fjölda einkafunda
með fulltrúum erlendra ríkja á ári
hverju.
„Þetta eru fundir tveggja einstak-
linga. Við höfum ekki upplýst um
efni slíkra funda hingað til og ætlum
ekki að bregða út af þeirri reglu nú,“
sagði Örnólfur.
Forsetinn gagn-
rýndi Ísraela
Ekki upplýst um efni fundarins
ELDUR kom upp í gamla Hamp-
iðjuhúsinu í Brautarholti um átta-
leytið í gærkvöldi og fór allt tiltækt
slökkvilið á vettvang. Eldurinn virt-
ist í minna lagi og tók innan við
klukkustund að slökkva hann. Hús-
ið var að því búnu reykræst en mik-
ill reykur hafði myndast í því.
Þetta er þriðji bruninn í Hamp-
iðjuhúsinu með stuttu millibili í ár
en hústökufólk hefur dvalið þar um
nokkurn tíma. Ekki var ljóst hvað
olli upptökum eldsins.
Þrír brunar í
Hampiðjuhúsinu
á skömmum tíma
Morgunblaðið/Jim Smart
MIKIL mildi var að ekki hlaust af
alvarlegt slys þegar bíll með hjól-
hýsi í eftirdragi valt á Snæfells-
nesvegi í gær.
Slysið varð skammt norðan við
Urriðaá og voru tildrögin þau að
hjólhýsið lenti í misfellu á veginum
og byrjaði að skoppa. Endaði með
því að hjólhýsið valt og tók bílinn
með sér í fallinu svo allt ækið lagð-
ist þvert á veginn.
Að sögn lögreglu var heppni að
ekki skyldi hafa komið bíll úr gagn-
stæðri átt og lent á fyrirstöðunni.
Ekki síst var það mildi að enginn
skyldi hafa setið í framsæti bílsins
því þak hans lagðist saman. Öku-
maðurinn slapp með skrámur.
Lá við stórslysi á
Snæfellsnesvegi
FJÓRIR menn voru handteknir í
gær af lögreglunni á Blönduósi,
grunaðir um að hafa staðið að inn-
brotum í bænum í fyrrinótt.
Vitað er um þrjú innbrot í fyr-
irtæki og eru mennirnir taldir
tengjast þeim.
Þrír menn voru upphaflega
handteknir vegna málsins. Sá fjórði
var handtekinn eftir að hann ók bíl
sínum út af vegi og var hann hand-
tekinn eftir að grunur vaknaði um
að hann tengdist málinu.
Málið er í rannsókn lögreglunnar
á Blönduósi.
Teknir vegna inn-
brota á Blönduósi