Morgunblaðið - 24.06.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● VIÐSKIPTI í Kauphöllinni námu
18,5 milljörðum króna í gær, mest
með hlutabréf fyrir um 15,7 millj-
arða en næstmest með íbúðabréf
fyrir 2,2 milljarða. Mestu hlutabréfa-
viðskipti voru með bréf FL Group hf.
fyrir um 14.990 milljónir króna, en
tilkynnt var um tilfærslu hlutafjár
Baugs í FL Group í dótturfélagið BG
Capital. Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,38% og er nú 5.564,14 stig.
Millibankamarkaðurinn lifnaði við
í gær eftir nokkurra daga rólegheit
og nam 26,5 milljörðum króna.
Krónan veiktist um 1,2%, geng-
isvísitalan var í upphafi dags
130,65 og undir lokin 132,2 stig og
mikið um að erlendir aðilar væru að
selja krónur. Dollarinn er nú 76,2
kr., evran 95,5 kr. og pundið 138,8
kr.
Átján milljarða
viðskipti í Kauphöll
● EKKERT er hæft í þeim orðrómi að
Baugur sé hættur við kauptilboð sitt
í bresku verslunarkeðjunni House of
Fraser (HoF), að
því er segir í frétt
á fréttavef The
Scotsman. Þar
segir að tals-
maður Baugs
neiti stað-
fastlega þessum
orðrómi sem
gengið hefur
manna á milli í
fjármálahverfi Lundúna. Nú standi yf-
ir áreiðanleikakönnun á HoF og ekk-
ert óvænt hafi komið í ljós til þessa.
Þrátt fyrir það féllu bréf HoF um 3,4%
á fimmtudaginn.
Í frétt The Scotsman segir að ann-
ar orðrómur um að Baugur ætli að
bjóða í bresku stórmarkaðskeðjuna
William Morrissons sé ósannur.
Baugur ekki hættur
við kaup á HoF
● RÚMLEGA eitt þúsund manns
hafa skráð sig í farsímaþjónustu lág-
gjaldasímafélagsins SKO. Þúsund-
asti viðskiptavinur fyrirtækisins,
Bára Hólmgeirsdóttir, var heiðruð
sérstaklega af því tilefni og fékk hún
10 þúsund króna inneign og blóm-
vönd frá fyrirtækinu, samkvæmt
fréttatilkynningu.
Viðskiptavinir SKO
orðnir þúsund talsins
EINN helsti spekingurinn í jap-
önsku fjármálalífi, Yoshiaki Mura-
kami, hefur verið ákærður fyrir inn-
herjasvik. Meðal þeirra fyrirtækja,
sem Murakami er ákærður fyrir að
hafa nýtt sér innherjaupplýsingar
um, er netfyrirtækið Livedoor sem
komst í fréttirnar í janúar síðastliðn-
um vegna gruns um að hafa stundað
ólögleg hlutabréfaviðskipti og bók-
haldssvindl.
Er Murakami í haldi lögreglu.
Murakami viðurkennir að hafa nýtt
sér innherjaupplýsingar þegar hann
keypti hlutabréf í Nippon Broad-
casting System á
síðasta ári. Segist
hann hafa keypt
bréfin þar sem
hann hafi vitað að
Livedoor ætlaði
að kaupa hlut í fé-
laginu.
Ef Murakami
verður sakfelldur
gæti hann átt yfir
höfði sér þriggja
ára fangelsi og sekt upp á þrjár millj-
ónir jena, tæpar tvær milljónir
króna.
Fjármálaspekingur
í haldi lögreglu
Yoshiaki
Murakami
HLUTHAFAFUNDUR Dags-
brúnar hf. samþykkti í gær skipt-
ingu félagsins í tvo hluta. Tillaga
stjórnar um skiptingu félagsins í
tvo hluta og samruni annar þeirra
við Og fjarskipti ehf. í samræmi við
fyrirliggjandi skiptingar- og sam-
runagögn var samþykkt einróma.
Segir í tilkynningu frá félaginu
að einungis sé um að ræða lög-
formlega breytingu í samræmi við
ákvörðun samkeppnisráðs nr. 12/
2005 um samruna Og fjarskipta hf.
og 365 miðla en þar var gert að
skilyrði að fjarskiptarekstri Dags-
brúnar hf. yrði komið fyrir í sjálf-
stæðum lögaðila.
Skiptingin hefur hvorki áhrif á
heildarhlutafé Dagsbrúnar, né
heldur rekstur félagsins, dóttur-
eða hlutdeildarfélaga. Og fjar-
skipti ehf. tekur við fjarskipta-
rekstri félagsins og starfar áfram
undir heitinu Og Vodafone. For-
stjóri Og Vodafone er Árni Pétur
Jónsson.
Dagsbrún skipt
í tvö fyrirtæki
● BANDARÍSKI verðbréfasjóðurinn
Blackstone er að undirbúa yfirtöku-
tilboð í þýska símafyrirtækið
Deutsche Telekom, samkvæmt
þýska vikurit-
inu Wirtsc-
haftsWoche.
Samkvæmt
blaðinu mun
tilboðið vænt-
anlega hljóða
upp á 60
milljarða
evra. Forsvarsmenn Blackstone
neita því að eitthvað sé hæft í
fréttinni.
Blackstone á 4,5% hlut í
Deutsche Telekom og samkvæmt
upplýsingum frá Blackstone er
ekki ætlunin að auka við þann
hlut. Þýska ríkið er stærsti hlut-
hafinn í Deutsche Telekom með
beinan eignarhlut upp á 14,62%
auk þess sem það á 16,63% hlut í
gegnum KfW bankann. Hvorki
bankinn né stjórnvöld hafa heyrt
minnst á mögulegt yfirtökutilboð
Blackstone og hvorugur aðilinn
ætlar að selja sinn hlut á næst-
unni.
Yfirtaka á Deutsche
Telekom í
undirbúningi