Morgunblaðið - 24.06.2006, Page 18
18 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
UNGUR maður hellir eldsneyti á risavaxna andlitsmynd af Adolf Hit-
ler, leiðtoga Þriðja ríkisins, í síberísku borginni Krasnoyarsk á fimmtu-
dag, í tilefni þess að þá voru 65 ár liðin frá því að nasistar ýttu úr vör
Barbarossa-innrásaráætluninni svokölluðu. Innrásin, sem hafði það að
markmiði að hertaka Rússland, er enn í fersku minni Rússa enda leiddi
hún til gífurlegs mannfalls í Rauða hernum og herliði nasista. Hún er
jafnframt einn af helstu atburðum 20. aldar, en færa má sterk rök fyrir
því að hún hafi markað upphafið að endalokum draumsýnar Hitlers um
heimsyfirráð nasista.
Reuters
Barbarossa minnst
London. AP. | Bresk og bandarísk
stjórnvöld eru að rannsaka ásak-
anir á hendur British Airways
(BA) og annarra flugfélaga um
verðsamráð á sviði flugfargjalda
og aukagjalds fyrir eldsneyti. Hafa
tveir háttsettir framkvæmdastjór-
ar hjá BA þegar verið sendir í
leyfi vegna málsins sem er þó enn
á frumstigi.
Meðal annarra flugfélaga sem
liggja undir rannsókn eru Virgin
Atlantic, United Airlines og Am-
erican Airlines. Þessi flugfélög auk
BA hafa tilkynnt að þau eigi í sam-
starfi við rannsóknaraðila í málinu,
eða bandaríska dómsmálaráðu-
neytið og samkeppnisstofnun
Bretlands (OFT).
Beinast spjót OFT í upphafi
rannsóknarinnar einkum að Iain
Burns, yfirmanni samskiptamála
hjá BA, og símasamskiptum hans
við starfsbróður sinn hjá Virgin
Atlantic, að því er fram kemur í
frétt dagblaðsins Guardian í gær.
Hátt heimsmarkaðsverð á olíu
hefur leitt til hækkunar á sérstöku
aukagjaldi fyrir eldsneyti þegar
um lengri flugferðir er að ræða.
Dæmi er að farþegar BA á flug-
leiðinni London til New York
greiða um 9.700 króna aukagjald
fyrir eldsneyti fyrir flug fram og
til baka.
Hækkaði aukagjaldið sex
sinnum á síðasta fjárhagsári
Hagnaður BA á fjárhagsárinu
sem lauk 31. mars sl. nam um 62
milljörðum króna, en félagið hafði
þá sex sinnum hækkað aukagjald
fyrir eldsneyti síðan í maí 2004.
Í yfirlýsingu frá OFT segir að
rannsóknin sé á frumstigi og að
„engar ályktanir skyldu dregnar
um að samkeppnislög hefðu verið
brotin“ fyrr en að henni lokinni.
Talsmenn ýmissa annarra flug-
félaga, til dæmis Delta, Ryanair,
Continental, Lufthansa, Finnair,
KLM, Icelandair og SAS, segja, að
fyrrnefnd rannsókn beinist ekki að
þeim.
Rannsaka
verðsamráð
flugfélaga
AP
FJÖLDI þeirra, sem sótt hafa um
hæli og landvist í Danmörku, hefur
minnkað mikið að undanförnu. Kem-
ur það fram í nýjum tölum frá
dönsku hagstofunni.
Þessi miklu umskipti eru ein-
göngu rakin til mjög hertra reglna
um hælisvist en á síðasta ári var það
alls 2.281 maður, sem um hana sótti.
Er það 30% fækkun frá 2004 og hafa
hælisleitendur ekki verið færri frá
árinu 1984.
Þrír stærstu hóparnir, sem sóttu
um hæli á síðasta ári, voru fólk frá
Serbíu og Svartfjallalandi, Afganist-
an og Írak.
Á sama tíma og mikil fækkun hef-
ur orðið í þessum flokki, hefur þeim,
sem fá tímabundið atvinnuleyfi í
Danmörku, fjölgað mikið eða um
40% á einu ári.
Stórfækkun
hælisbeiðna
VAXANDI andúðar virðist
gæta á jeppavæðingunni í
Bretlandi en eigendur stóru
bílanna eru sakaðir um að
vera hættulegir í umferð-
inni vegna þess tillitsleysis,
sem þeir sýni öðrum öku-
mönnum.
Síðasta gagnrýnin kemur
frá breskum læknum í grein
í tímariti þeirra, The British
Medical Journal. Þar segir
frá rannsókn, sem sýni, að
ökumenn stóru bílanna eigi það
vissulega síður á hættu en aðrir að
slasast í árekstri en aftur á móti
valdi öryggistilfinningin því, að þeir
séu oft hættulegir vegna þjösna-
skapar gagnvart öðrum.
Fram kom í rannsókninni, að
jeppaeigendur notuðu lausa farsíma
meira en aðrir undir akstri og væru
síður í bílbeltum. Raunar er hættan
á, að þeir slasist í umferðaróhappi
fjórum sinnum minni en hjá „venju-
legum“ ökumönnum en hins vegar
eru þeir sagðir 11-sinnum líklegri til
að valda öðrum skaða.
Í Bretlandi er nú sjöundi hver bíll
á vegunum jeppi eða bíll af því tag-
inu en stjórnmálamenn margir hóta
að stórauka skattaálögur á stóra bíla
og bensínfreka. Þá hefur Ken Li-
vingstone borgarstjóri, sem tekur
stundum dálítið stórt upp í sig, kall-
að eigendur stóru bílanna „full-
komna fáráðlinga“.
Ökumenn stórra
bíla gagnrýndir
Bagdad. AP, AFP. | Íraksstjórn lýsti yf-
ir neyðarástandi í Bagdad í gær og
setti á útgöngubann eftir að skæru-
liðar komu fyrir vegartálmum í mið-
borginni og hófu skothríð á banda-
ríska og íraska hermenn rétt við hið
vel víggirta Græna svæði.
Í allan gærmorgun börðust íraskir
og bandarískir hermenn við skæru-
liða á einni aðalgötu Bagdadborgar
og beittu þeir síðarnefndu byssum,
handsprengjum og sprengjuvörpum.
Réðust skæruliðarnir einnig á hóp
sjíta, sem voru á leið til Buratha-
moskunnar en þar ætluðu þeir að
minnast þeirra, sem féllu þar í sjálfs-
morðsárás fyrir viku.
Öryggisgæsla í Bagdad hefur verið
stóraukin og eru atburðirnir í morg-
un því nokkurt áfall fyrir stjórnina.
Þá virðast átök utan borgarinnar
vera að aukast, til dæmis í Basra í
suðurhluta landsins þar sem breska
herliðið er með sínar aðalstöðvar. Þar
sprakk bílsprengja í gær og varð 10
mönnum að bana. Í borginni Mosul
hafa 25 manns verið drepnir á nokkr-
um dögum en þar eru átökin á milli
súnníta og Kúrda. Líkar fréttir er að
hafa frá öðrum borgum og bæjum í
landinu. Þannig féllu 12 í sprengju-
árás á mosku súnníta í bænum Hib-
hib, þar sem Abu Musab al-Zarqawi,
leiðtogi samtakanna al-Qaeda í Írak,
var myrtur fyrr í mánuðinum.
Pyntingar og aftökur
Íraska lögreglan fann í gær lík
fimm manna, sem voru í hópi 64
manna, sem rænt var fyrr í vikunni.
Voru þeir upphaflega sagðir hafa ver-
ið um 100 en það hefur verið leiðrétt.
Slepptu mannræningjarnir öllum
konum og súnnítum í hópnum en
fluttu hina á kjúklingabú skammt frá
borginni Baquba. Sagt er, að líkin
fimm, sem fundust í gær, hafi borið
merki um miklar pyntingar.
Til frekari tíðinda dró svo í Írak í
gær þegar 500 föngum í Abu Ghraib-
fangelsinu í Bagdad var sleppt. Þá
sagði George Casey, hershöfðingi og
yfirmaður bandaríska herliðsins í
Írak, í fyrradag, að Íranar þjálfuðu
herskáa sjíta, sem síðan beittu sér
gegn Bandaríkjamönnum í landinu.
Neyðarástandi lýst
yfir í Bagdad
AP
Íraskar konur hraða sér heim eftir
að útgöngubann var sett á.
NUNING, sem er átján ára órangútan-api, heldur á
mánaðargömlu afkvæmi sínu sem enn hefur ekki verið
gefið nafn. Þau mæðginin, sem eru búsett í Prigen saf-
arí-garðinum á Indónesíu, voru eins og sjá má í mestu
makindum þegar ljósmyndara bar að garði í gær. Ór-
angútan-apar eru í útrýmingarhættu, meðal annars
vegna ólöglegs skógarhöggs og þjófa sem drepa full-
orðna apa og selja afkvæmin til Asíu þar sem þau eru
gjarnan höfð sem gæludýr. Óttast náttúruvernd-
arsinnar að haldi skógareyðingin áfram með sama
hraða muni villtir órangútan-apar verða horfnir með
öllu að 12 árum liðnum.
AP
Ást og umhyggja í dýragarði
Belgrad. AFP. | Ratko Mladic, sem er
fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-
Serba og eftirlýstur fyrir stríðs-
glæpi, liggur fyrir dauðanum eftir að
hafa fengið þriðja
heilablóðfallið í
síðustu viku, ef
marka má frétt
serbnesks dag-
blaðs í gær.
„Ásigkomulag
Ratkos Mladic er
mjög alvarlegt og
möguleikar hans
á að lifa af litlir,“
sagði í frétt serb-
neska dagblaðsins Kurir í gær. „Að-
alvandamálið er að hann hefur ekki
aðgang að fullnægjandi læknis-
hjálp.“
Að sögn blaðsins byggði það frétt
þessa á upplýsingum frá „vel upp-
lýstum heimildamanni sem hefði
verið nákominn hershöfðingjanum í
Bosníustríðinu“, en það fullyrðir að
greftrunarstaður Mladic hafi þegar
verið ákveðinn.
Serbar hafa verið undir miklum
þrýstingi frá Evrópusambandinu um
að handsama Mladic og framselja
hann svo rétta megi yfir honum fyrir
aðild að stríðsglæpum í Bosníustr-
íðinu á tímabilinu 1992 til 1995.
Í Kurir segir ennfremur að Mladic
hafi fengið heilablóðfall 1995 og
1999, en heimildamaður þess fullyrð-
ir að hans sé gætt af 800 „vel þjálf-
uðum og vel búnum“ vörðum sem líti
á hann sem „föður“.
Mladic hefur ásamt Radovan Ka-
radzic, fyrrverandi leiðtoga Bosníu-
Serba, verið á flótta síðan 1995 þegar
stríðsglæpadómstóllinn í Haag
kærði þá fyrir þjóðarmorð, stríðs-
glæpi og glæpi gegn mannkyni í
Bosníustríðinu.
Mladic
sagður í
lífshættu
Ratko Mladic
Peking. AFP. | Apanum Xiku, sem er
keðjureykjandi sjimpansi, hefur
næstum því tekist að drepa endan-
lega í, þökk sé starfsmönnum dýra-
garðsins í Urumqi, höfuðborg Xinji-
ang-hérðas í Kína. Það vildi þó ekki
betur til en svo, að Xiku skipti yfir í
bjór þegar honum var gert að draga
úr reykingunum.
Xiku starfaði áður fyrr í sirkus þar
sem hann skemmti áhorfendum með
því að herma eftir mannfólkinu, sem
gjarnan henti til hans sígarettum.
Þegar mest var reykti Xiku 10 sígar-
ettur á dag en nú þarf hann að láta
sér lynda fjórar. Hann lét öllum ill-
um látum þegar sígaretturnar voru
fyrst skammtaðar en róar sig nú nið-
ur með flösku af bjór.
Apinn Xiku
í bjórinn
♦♦♦
♦♦♦